Mótmæltu yfirvofandi lokun Bíó Paradís

Fullt var út úr dyrum á sam­stöðu­fundi með Bíó Paradís. Skipu­leggj­andi segir fólk vera komið með nóg af því að geta ekki lifað af í mið­borg­inni.

Mótmæltu yfirvofandi lokun Bíó Paradís
Sam­stöðu­fundur Ásdís Sif Gunn­ars­dóttir lista­kona segir mik­il­vægt að hafa kvik­mynda­hús eins og Bíó Paradís í borg­inni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fullt var út úr dyrum á sam­stöðu­fundi með Bíó Paradís sem fram fór í húsa­kynnum þess þriðju­dag­inn 4. febr­úar. Að óbreyttu verður kvik­mynda­hús­inu lokað 1. maí næst­kom­andi þar sem eig­endur hús­næð­is­ins vilja þre­falda leigu­verðið. Ríki og borg hafa ekki brugð­ist við stöð­unni og starfs­fólki Bíó Paradís því verið sagt upp.

Ásdís Sif Gunn­ars­dóttir lista­kona er ein þeirra sem stóðu að mót­mæl­unum. „Við vorum öll jafn svekkt yfir því að Bíó Paradís ætti að loka og það kom upp sú hug­mynd að halda við­burð til að byrja sam­talið um hvernig ætti að mót­mæla,“ segir hún.

Ragnar BragasonLeik­stjór­inn var meðal þeirra sem tóku til máls á fund­inum.

Ásdís hefur mikla teng­ingu við rýmið, bæði sem áhuga­maður um kvik­myndir og lista­kona. Hún kom fram þar á hátíð­inni Sequences árið 2005 þegar kvik­mynda­húsið hét enn þá Regn­bog­inn. Þá hafa kvik­myndir sem hún tók þátt í að gera verið sýndar í Bíó Paradís. „Ég hélt líka upp á afmæli dóttur minnar í hús­inu,“ segir hún. „Þetta fékk mig til að hugsa um hversu mikið ég hef sótt það á þessu tíma­bili.“

Á mót­mæla­fund­inum tók fjöldi fólks til máls og segir Ásdís að í myndun sé hópur sem taki afstöðu til máls­ins í víð­ara sam­hengi. „Ég held að fólki finn­ist yfir­höfuð að stjórn­völd og borg­ar­yf­ir­völd þurfi að veita aðhald,“ segir hún. „Það er orðið dýrt fyrir íbúa að lifa af og lokun Bíó Paradís er bara eitt af mörgu sem sýnir það. Fólk er komið með nóg af því að geta varla búið hér.“

Samtök list­rænna kvik­mynda­húsa (CICAE) hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu til stuðn­ings Bíó Paradís, en í sam­tök­unum eru 2.100 með­limir í yfir 4.000 bíóum í yfir 44 löndum. Evrópsku kvik­mynda­verð­launin verða afhent í Hörpu og segir dr. Christian Bräuer, for­seti CICAE, að verð­launa­mynd­irnar ættu vel heima í Bíó Paradís að henni lok­inni. „Ísland hefur ítrekað verið leið­andi í Evrópu þegar kemur að stuðn­ingi við listir, við nátt­úr­una og við íbú­ana,“ skrifar Bräuer. „Ég hvet ykkur til að við­halda eina „arthouse“ kvik­mynda­hús­inu ykkar til þess að vernda sam­fé­lagið og halda sögum þess lif­andi.“

Hrönn Sveins­dóttirFram­kvæmda­stjóri Bíó Paradís segir það hafa legið lengi fyrir að leigan mundi hækka.

Ásdís segir góðan anda hafa verið á fund­inum og hvetur fólk til að fylgj­ast með gangi mála. Und­ir­skrifta­söfnun er hafin til stuðn­ings kvik­mynda­hús­inu á Ísland.is. „Hvort sem það er í Reykja­vík, París eða New York þá þurfa að vera bíó­hús eins og þetta þar sem eru sýndar list­rænar bíó­myndir,“ segir hún. „Það verður svo lítið eftir af þessum kúltúr ef við missum Bíó Paradís.“

Fullt út úr dyrumMargir láta sig lokun Bíó Paradís varða.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár