Skuld Secret Solstice við borgina greidd að fullu

Reykja­vík­ur­borg styrkir tón­list­ar­há­tíð­ina Secret Solstice um 8 millj­ónir í ár. Nýir rekstr­ar­að­ilar eru tengdir þeim fyrri, sem hljóm­sveitin Slayer hefur stefnt. Vigdís Hauks­dóttir borg­ar­full­trúi seg­ist til­búin í mála­ferli vegna ummæla sinna um rekstr­ar­að­il­ana.

Skuld Secret Solstice við borgina greidd að fullu
Secret Solstice Reykja­vík­ur­borg hefur gert nýjan samn­ing um hátíð­ina. Mynd: Pressphotos

Skuld tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Secret Solstice við Reykja­vík­ur­borg, sem í lok apríl í fyrra nam 19 millj­ónum króna, hefur verið greidd að fullu. Borgin styrkir hátíð­ina um 8 millj­ónir króna í ár og hefur skrifað undir nýjan samn­ing við rekstr­ar­að­il­ana, sem eru nátengdir þeim sem standa í mála­ferlum út af fyrri hátíðum.

Þetta kemur fram í svörum Reykja­vík­ur­borgar við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. Tvísýnt var síð­asta vor hvort hátíðin færi fram í Reykja­vík þar sem skuld rekstr­ar­að­ila við borg­ina sam­kvæmt samn­ingi nam 11,6 millj­ónum króna og kostn­aður við við­gerðir á völlum í Laug­ar­dal nam 7,4 millj­ónum króna. Ekkert hafði verið greitt á þeim tíma sem nefndur var í samn­ingi aðil­anna. Nú, eftir að hátíðin 2019 fór fram, hefur skuldin hins vegar verið greidd að fullu.

Nýr samn­ingur var sam­þykktur á fundi borg­ar­ráðs 9. jan­úar vegna hátíð­ar­innar sem fram fer í lok júní. Tilkynnt hefur verið um tón­list­ar­menn á hátíð­inni í sumar, meðal ann­ars hljóm­sveit­irnar Cypress Hill, Primal Scream og TLC.

Vigdís Hauks­dóttirBorg­ar­full­trúi hyggst ekki biðj­ast afsök­unar á ummælum um rekstr­ar­að­ila Secret Solstice.

Lögmenn aðstand­enda hátíð­ar­innar sendu Vigdísi Hauks­dóttur, borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins, bréf vegna ummæla hennar á fundi borg­ar­ráðs 30. jan­úar, að því er fram kemur í frétt RÚV. Vigdís vakti þar athygli á styrk­veit­ingu borg­ar­innar til hátíð­ar­innar. „Samkvæmt nýjum gögnum frá Reykja­vík­ur­borg kemur í ljós að Secret Solstice er rekin af a.m.k. þremur mis­mun­andi félögum og virð­ist algjör hend­ing ráða því hvaða félag er látið taka að sér hvaða skuld­bind­ingu vegna rekst­urs­ins,“ lét hún bóka. „Þá er full­yrt að aðstand­endur hátíð­ar­innar hafi gefið Reykja­vík­ur­borg rangar og mis­vísandi upp­lýs­ingar um eign­ar­hald félag­anna, aðkomu þeirra að hátíð­inni og héldu því rang­lega fram að félögin myndu greiða eða yfir­taka skuldir fyrri rekstr­ar­að­ila. Fullyrt er að félögin stundi skatta­snið­göngu og ýmis önnur lög­brot.“

„Fullyrt er að félögin stundi skatta­snið­göngu og ýmis önnur lög­brot“

Tengdir rekstraraðilar

Á fund­inum var kynnt bréf frá lög­manni hljóm­sveit­ar­innar Slayer sem ekki fékk borgað fyrir fram­komu á hátíð­inni 2018 og stendur í mála­ferlum. Tóku nýir rekstr­ar­að­ilar við í kjöl­farið. Reykja­vík­ur­borg segir mála­ferli Slayer að engu leyti snúa að borg­inni.

Hátíðin hefur verið gagn­rýnd þar sem skipt var um kenni­tölu, en nýr eig­andi hennar, Guð­mundur Hreið­ars­son Viborg, er tengdur fyrri eig­endum hátíð­ar­innar. Stjúp­sonur hans, Jón Bjarni Steins­son, var upp­lýs­inga­full­trúi hátíð­ar­innar, en hann er kvæntur Katrínu Ólafs­dóttur, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra fyrra rekstr­ar­fé­lags­ins. Hún er systir Friðriks Ólafs­sonar, eig­anda gamla félags­ins, og dóttir Jóns Ólafs­sonar, athafna­manns og eins helsta styrkt­ar­að­ila.

Jón ÓlafssonAthafna­mað­ur­inn er meðal helstu styrkt­ar­að­ila hátíð­ar­innar.

For­svars­menn nýja félags­ins, Lifandi við­burðir ehf., krefj­ast þess að Vigdís biðj­ist afsök­unar á bók­un­inni og beri hana form­lega til baka, ellegar verði farið í mál við hana og skaða­bóta kraf­ist. Hafna þeir tengslum við fyrri hátíð og að fyrri rekstr­ar­að­ilar hafi sagst hafa greitt Slayer að fullu. „Það vekur því furðu að þú, sem lýð­ræð­is­lega kjör­inn borg­ar­full­trúi, skulir án allrar gagn­rýni ljá þessu erindi vægi með því að leggja fram bókun á fundi borg­ar­ráðs þar sem umbjóð­endur mínir og fyr­ir­svars­menn þeirra eru án nokk­urra fyr­ir­vara sak­aðir um rang­færslur og lög­brot, þ.á m. skatta­snið­göngu,“ segir í bréfi þeirra.

„Nei, ég segi í þessu máli eins og öðrum málum sem ég hef verið sökuð um: See you in court“

Í sam­tali við RÚV seg­ist Vigdís ekki ætla að biðj­ast afsök­unar, heldur taka slag­inn fyrir alla kjörna full­trúa. „Nei, ég segi í þessu máli eins og öðrum málum sem ég hef verið sökuð um: See you in court.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár