Kínverska sendiráðið aflýsir viðburðum vegna kórónaveirunnar

Lista­fólk sem koma átti til Íslands frá Kína kemst ekki úr landi vegna smit­hættu. Yfir hund­rað eru látnir og á fimmta þús­und eru smit­aðir. Fjögur til­vik eru stað­fest í Evrópu en ekk­ert hér á landi.

Kínverska sendiráðið aflýsir viðburðum vegna kórónaveirunnar
Breiðist út frá Kína Kór­óna­veiran er enn sem komið er mikið til stað­bundin í Kína en breið­ist engu að síður út um heim­inn allan. Mynd: Shutterstock

Sendiráð kín­verja á Íslandi hefur aflýst tveimur við­burðum sem halda átti í næstu viku. Ástæðan er ótti við útbreiðslu kór­óna­veit­unnar svo­nefndu. Kín­verskt lista­fólk sem koma átti til lands­ins og troða upp á við­burð­unum koma ekki til lands­ins vegna veirunnar. Veiran hefur ekki borist til lands­ins svo vitað sé.

Kín­verska sendi­ráðið á Íslandi sendi í gær­kvöldi frá sér tölvu­póst til ýmissa aðila þar sem til­kynnt var að fyr­ir­hug­aður opinn dagur í Hörpu næst­kom­andi sunnu­dag, 2. febr­úar, í til­efni af kín­versku vor­há­tíð­inni yrði felldur niður. Hið sama á við um hátíð­ar­sam­komu í til­efni kín­verska nýárs­ins sem halda átti í Háskóla­bíói að kvöldi 3. febr­úar. Á báðum við­burð­unum átti kín­verskt lista­fólk, Inner Mongolia Per­form­ing Group, að koma fram. Vegna útbreiðslu kór­óna­veirunnar hefur lista­fólkið aflýst ferðum sínum frá úr landi. „Til að koma í veg fyrir hugs­an­lega útbreisðlu veirunnar, hefur kín­verska sendi­ráðið ákveðið að aflýsa umræddum við­burðum,“ segir í tölvu­póst­inum.

Á fimmta þús­und manns hafa veikst af veirunni svo vitað sé, lang flestir í Hubai-hér­aði og borg­inni Wuhan í Kína. Yfir 100 manns eru látnir úr kór­óna­veirunni sem er alvar­leg lungna­sýk­ing.

Rík­is­lög­reglu­stjóri lýsti yfir óvissu­stigi almanna­varna í gær, í sam­ráði við sótt­varn­ar­lækni og emb­ætti land­læknis, vegna veirunnar. Ekki hefur verið stað­fest smit af hennar völdum hér á landi en fjögur til­vik hafa verið stað­fest í Evrópu, þrjú í Frakk­landi og eitt í Þýska­landi. Grunur lék á um að tveir Íslend­ingar, 66 ára gömul kona og 52 ára gam­all maður, hafi sýkst af veirunni og voru þau lögð inn á spít­ala íTor­revi­eja á Spáni, að því er Rík­is­út­varpið greinir frá. Konan mun hafa verið á ferða­lagi í Kína og hafi kennt ein­kenna þegar til Spánar var komið. Maðurinn mun hafa ekið henni á spít­ala vegna þess og hafa verið settur í ein­angrun við kom­una þangað, án þess að hafa kennt ein­kenna. Í ljós er komið að fólkið er ekki með kór­óna­veiruna og hefur ein­angrun þess verið aflétt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár