Ísland tengt við mútugreiðslur og peningaþvætti

Ísland fær­ist upp um þrjú sæti í mæl­ingum Spill­ing­ar­vísi­tölu Transparency International, en sér­stak­lega er fjallað um Sam­herj­a­málið. Samtökin vara við áhrifum fjár­sterkra aðila í stjórn­málum.

Ísland tengt við mútugreiðslur og peningaþvætti
Bern­hardt Esau og Þor­steinn Már Bald­vins­son Sam­herj­a­málið vakti athygli á heims­vísu.

Sérstök umfjöllun er um Sam­herj­a­málið í nýrri skýrslu sam­tak­anna Transparency International um Spill­ing­ar­vísi­töl­una svoköll­uðu fyrir árið 2019. Ísland fær­ist upp um þrjú sæti á list­anum og er í 11. sæti yfir minnst spilltu ríki heims, þrátt fyrir hneyksl­is­málið.

„Löndin sem fá hæstu ein­kunn Spill­ing­ar­vísi­töl­unnar, eins og Danmörk, Sviss og Ísland, eru ekki ónæm fyrir spill­ingu,“ segir í rit­inu. „Þrátt fyrir að Spill­ing­ar­vísi­talan sýni að opin­beru geirar þess­ara landa séu með þeim hrein­ustu í heim­inum er spill­ing engu að síður til staðar, sér í lagi í mál­efnum eins og pen­inga­þvætti og annarri spill­ingu í einka­geir­anum.“

Spill­ing­ar­vísi­talan er árleg sam­an­burð­ar­könnun á því hversu vel lönd eru varin gegn spill­ingu. Í til­kynn­ingu frá Gagnsæi, íslenskum sam­tökum gegn spill­ingu, segir að vísi­talan sýni að þessu sinni hversu erfitt sé að upp­ræta kerf­is­læga spill­ingu, þar sem litla breyt­ingu sé að finna á milli ára. „Ísland fær­ist upp um þrjú sæti frá því í fyrra, í 11. sætið af 180 mældum löndum, en of snemmt er að full­yrða um hvort það sé merki um að landið hafi tekið sig á í mála­flokknum og hert lög­gjöf og aukið eft­ir­lit með þáttum eins og hags­muna­á­rekstrum, vina- og frænd­hygli, fjár­styrkjum til stjórn­mála­flokka, mútu­greiðslum íslenskra fyr­ir­tækja erlendis, o.s.frv., eða hvort önnur lönd hafi ein­fald­lega færst til og Ísland því hlut­falls­lega einnig. Sem fyrr verma enn hin Norð­ur­löndin efstu sætin, með Danmörku, Noreg, Finnland og Svíþjóð meðal þeirra 10 efstu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Að mati Gagnsæis hefur orðið mark­verð breyt­ing á við­horfi fólks til spill­ingar á Íslandi frá því á árunum fyrir banka­hrun. „Á árunum 2005 og 2006 var Ísland í 1. sæti CPI list­ans, með 95-97 stig. Á árinu 2008 féll Ísland niður í 7. sætið og niður fyrir 90 stiga múr­inn. En síð­ast­liðin 10 ár hefur leiðin legið niður á við. Árið 2018 féll Ísland niður í 14. sæti, með aðeins 76 stig.“

Úr skýrslu Transparency InternationalSér­stak­lega er fjallað í skýrsl­unni um hvernig Samherji greiddi mútur til að kom­ast yfir fisk­veiði­heim­ildir.

Í frétta­til­kynn­ingu Transparency International segir for­maður sam­tak­anna, Delia Ferreira Rubio: “Til að berj­ast gegn spill­ingu þurfa stjórn­völd að sporna við áhrifum fjár­sterkra aðila, sem í krafti fjár­magns síns hafa of mikil mót­andi áhrif á stjórn­mála­kerfið í heild sinni, og í stað­inn leit­ast við að draga fram og fara eftir vilja umbjóð­enda sinna, almenn­ings, í stefnu­mörkun sinni.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár