Vilja hækka veiðigjöld, leggja kolefnisskatt á stóriðju, selja banka og fækka ráðherrum

Viðreisn vill greiða lækka opin­berar skuldir og auka stuðn­ing við barna­fjöl­skyldur. Þá vill flokk­ur­inn auka fram­lög til heil­brigð­is­mála. Þetta vill hann fjár­magna með hærri álögum á útgerðir og 13,5 millj­arða króna kolefn­is­gjaldi á stór­iðju.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Eyþór Árnason

Viðreisn vill selja eft­ir­stand­andi hlut rík­is­ins í Íslands­banka á næsta ári, svo lengi sem að aðgerðin við söl­una verði opin og gegnsæ, og nýta sölu­and­virðið til að greiða niður opin­berar skuldir. Þá vill flokk­ur­inn hækka veiði­gjöld um sex millj­arða króna og leggja kolefn­is­gjöld á stór­iðju sem eiga að skila 13,5 millj­örðum króna í nýjar rík­is­tekjur. Flokk­ur­inn vill enn fremur ráð­ast í mark­vissar hag­ræð­ing­ar­að­gerðir til þess að greiða niður opin­berar skuldir, meðal ann­ars með því að draga til baka fjölgun ráðu­neyta og ráð­herra­stóla frá upp­hafi kjör­tíma­bils, en auka fram­lög til barna­fjöl­skyldna og heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Þetta er meðal þeirra til­lagna að breyt­ingum á fjár­laga­frum­varp­inu sem Viðreisn leggur til.

Í til­kynn­ingu frá flokknum segir að með þeim aðgerðum sem hann leggi til verið tek­ist á við halla­rekstur rík­is­ins – sem er nú áætl­aður 119 millj­arðar króna á næsta ári – að þjóðin „fái sann­gjarna greiðslu fyrir nýt­ingu á sjáv­ar­auð­lind­inni, að grænir skattar og hvatar verði nýttir til að takast á við lofts­lags­vand­ann, að fjár­fest verði í heil­brigð­is­kerf­inu, sér­stak­lega með því að bæta þar hag kvenna­stétta og síð­ast en ekki síst að stutt verði við barna­fjöl­skyldur í land­inu, sem finna mjög fyrir verð­bólgu og háum vöxtum.“

Vilja fækka ráðherrum og spara þrjá milljarða

Viðreisn telur fjár­laga­frum­varpið gera lítið til að draga úr verð­bólgu, sem nú er 9,3 pró­sent, og þenslu. Það felist mikil tæki­færi í hag­ræð­ingu í rík­is­rekstr­inum. Til dæmis mætti spara þrjá millj­arða króna með því að draga til baka fjölgun ráðu­neyta og ráð­herra í tólf, líkt og ákveðið var að gera í upp­hafi þessa kjör­tíma­bils þegar Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur end­ur­nýj­uðu stjórn­ar­sam­starf sitt.

Viðreisn vill að skuldir rík­is­ins verði lækk­aður um 20 millj­arða króna strax á næsta ári.

[adspot]Flokk­ur­inn vill auka útgjöld til vaxta-, barna- og hús­næð­is­bóta um 7,5 millj­arða króna á næsta áti og að sex millj­örðum króna til við­bótar verði varið auka­lega í heil­brigð­is­kerfið, með áherslu á það mark­mið að bæta kjör kvenna­stétta innan þess.

Til að mæta þessum kostn­að­ar­auka vill Viðreisn láta veiði­gjöld end­ur­spegla mark­aðsvirði veiði­rétt­inda. „Met­hagn­aður hefur verið í sjáv­ar­út­vegi en í fyrra nam hann um 65 millj­örðum eftir skatta og gjöld. Mark­aðsvirði veiði­rétt­inda nú er um sex millj­örðum hærri en núver­andi veiði­gjöld. Viðreisn leggur til hækkun sem því nemur.“

Þá segir í til­kynn­ingu flokks­ins að Ísland eigi að vera í fremstu röð í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum. „Öfl­ug­asta og skil­virkasta verk­færi stjórn­valda til þess eru hag­rænir hvatar á borð við kolefn­is­gjald sem legg­ist á alla losun. Lögð verði á kolefn­is­gjöld á stór­iðju, sem hingað til hefur verið und­an­þegin slíkum gjöldum þrátt fyrir að vera ein stærsta upp­spretta gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi. Það mun auka tekjur rík­is­sjóðs um 13,5 millj­arða.“

Selja bankann ef aðferðin verður opin og gagnsæ

Síðasta til­laga Við­reisnar snýr að frek­ari sölu á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka, en ríkið á enn 42,5 pró­sent hlut í bank­anum. Frekari sala var sett í salt í apríl á meðan að Rík­is­end­ur­skoðun og Fjár­mála­eft­ir­litið rann­sök­uðu síð­asta sölu­ferli, þegar 22,5 pró­sent hlutur var seldur í lok­uðu til­boðs­fyr­ir­komu­lagi fyrir 52,65 millj­arða króna til 207 fjár­festa.

[links]Rík­is­end­ur­skoðun skil­aði nýverið skýrslu sinni og felldi þar marg­háttað áfelli yfir Banka­sýsl­u rík­is­ins og sölu­ferl­inu. Að mati stofn­un­­­ar­innar voru ann­­­markar sölu­­­ferl­is­ins fjöl­margir sem lúta bæði að und­ir­­­­­bún­­­­­ingi og fram­­­­­kvæmd söl­unn­­­­­ar. Í skýrsl­unni segir meðal ann­­­­ars að ljóst megi vera að „orð­­­­­sporðs­á­hætta við sölu opin­berra eigna var van­­­­­metin fyrir sölu­­­­­ferlið 22. mars af Banka­­­­­sýslu rík­­­­­is­ins, fjár­­­­­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­­­neyti og þing­­­­­nefndum sem um málið fjöll­uðu í aðdrag­anda söl­unn­­­­­ar.“ Hægt hefði, að mati Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­un­­­ar, að fá hærra verð fyrir eign­­­ar­hlut rík­­­is­ins en ákveðið var að selja á lægra verði til að ná fram öðrum mark­miðum en lög­­­bundn­­­um. Þá hafi hug­lægt mat ráðið því hvernig fjár­­­­­festar voru flokk­að­­ir.

Ekki er búist við að Fjár­mála­eft­ir­litið klári sína rann­sókn á ýmsum öngum sölu­ferl­is­ins fyrr en snemma á næsta ári.

Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar er reiknað með að eft­ir­stand­andi hlutur rík­is­ins í Íslands­banka verði seldur, jafn­vel þótt salan sé á ís. Tekjur vegna þessa eru áætl­aðar 79 millj­arðar króna. Inn­heimt­ist þær ekki mun þurfa að fjár­magna það gat með lán­töku.

Viðreisn segir í til­lögu­pakka sínum að fjár­laga­frum­varpið van­meti verð­mæti eign­ar­hluta síns í Íslands­banka um 13 millj­arða króna, og áætla því að vænt sölu­virði geti orðið 92 millj­arðar króna. Flokk­ur­inn leggur til að eft­ir­stand­andi eign­ar­hlutur í Íslands­banka verði seldur, að því til­skildu að aðferðin við sölu verði opin og gegnsæ, og að sölu­and­virð­inu verði varið til nið­ur­greiðslu skulda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár