Ríkisstjórnin samþykkti áframhaldandi styrkjagreiðslur til fjölmiðla en til eins árs

Áfram sem áður er ágrein­ingur innan rík­is­stjórnar Íslands um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla. Styrkja­kerfið verður fram­lengt til eins árs í stað tveggja. Um er að ræða mála­miðlun til að ná frum­varp­inu úr rík­is­stjórn.

Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórnin afgreiddi frum­varp Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, um áfram­hald­andi styrkja­greiðslur til einka­rek­inna fjöl­miðla á fundi sínum á þriðju­dags­morgun.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var það gert í kjöl­far tölu­verðra átaka og með þeirri breyt­ingu að frum­varpið verði ein­ungis látið gilda til eins árs, í stað tveggja líkt og drög þess gerðu ráð fyrir. Sú and­staða sem er til staðar við frum­varpið innan rík­is­stjórn­ar­innar kemur fyrst og síð­ast frá ráð­herrum Sjálf­stæð­is­flokks.

Þá á að skipa nefnd sem á að móta fram­tíð­ar­til­lögur um skipu­lag stuðn­ings til einka­rekna fjöl­miðla.

Tæp fimm ár eru síðan að nefnd um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla afhenti Lilju skýrslu sína með alls sjö til­lögum sem gætu bætt rekstr­ar­skil­yrði einka­rek­inna fjöl­miðla. Sú nefnd hafði starfað í meira en ár.

Eina til­laga nefnd­ar­innar, sem leidd var af Björg­vini Guð­munds­syni, sem ratað hefur í fram­kvæmd er umrætt styrkja­kerfi sem nú á að fram­lengja til eins árs.

[adspot]Hinar, sem ekk­ert hefur verið gert með, sneru meðal ann­ars að stöðu Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði, skatta­legu umhverfi, textun og tal­setn­ingu og end­ur­greiðslu fram­leiðslu­kostn­aðar á fréttum og frétta­tengdu efni. Þá var einnig ítar­leg sam­an­tekt um opin­beran stuðn­ing við fjöl­miðla í helstu nágranna­ríkjum auk sér­á­lits tveggja nefnd­ar­manna.

Boðaði nýtt frumvarp til fimm ára

Í styrkja­kerf­inu felst að 377 millj­ónum króna verður að óbreyttu veitt í end­ur­greiðslur á rit­stjórn­ar­kostn­aði þeirra fjöl­miðla sem upp­fylla ákveðin fram­sett skil­yrði á næsta ári. Í ár fengu 25 fyr­ir­tæki styrk. Alls 53 pró­sent upp­hæð­ar­innar fór til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, Árvak­urs, Sýnar og Torgs.

Um er að ræða fram­leng­ingu á fyr­ir­komu­lagi sem verið hefur í gildi frá 2021 en hefur verið fram­lengt ár frá ári um eitt ár í senn. Sú breyt­ing átti að verða nú að frum­varpið átti að gilda til tveggja ára. Nú liggur fyrir að svo verður ekki.

Í drögum að frum­varp­inu kom fram að stefna stjórn­valda væri að innan gild­is­tíma frum­varps­ins yrði „lagt fram nýtt frum­varp til fimm ára sem sé í takt við þá þróun sem er að verða á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Þannig verður Ísland ekki eft­ir­bátur hinna land­anna er kemur að stuðn­ingi við einka­rekna fjöl­miðla.“

Á mál­þingi sem Blaða­manna­fé­lag Íslands og Rann­sókn­ar­setur um fjöl­miðlun og boð­skipti við Háskóla Íslands stóðu fyrir í febr­úar síð­ast­liðnum boð­aði Lilja að hún vildi fara „dönsku leið­ina“ í mál­efnum fjöl­miðla. Í Dan­mörku er DR, danska rík­is­sjón­varpið, ekki á aug­lýs­inga­mark­aði og stutt er við einka­rekna fjöl­miðla með nokkrum mis­mun­andi leiðum með það að mark­miði að tryggja fjöl­ræði á fjöl­miðla­mark­aði.

Styrkirnir nýttust vel

Í grein­ar­gerð með drögum þess frum­varps sem nú hefur verið breytt til að koma í gegnum rík­is­stjórn sagði að við mat á stuðn­ingi árs­ins 2021 hafi mátt greina að sá stuðn­ingur sem einka­reknir fjöl­miðlar fengu hafi nýst afar vel. „Stuðn­ingur við einka­rekna fjöl­miðla hefur meðal ann­ars gert sumum fjöl­miðlum kleift að fjölga stöðu­gildum á rit­stjórn, halda útgáfu óbreyttri, komið í veg fyrir frekara aðhald í rekstri og bætt aðstöðu blaða­manna, svo fátt eitt sé nefnt. Styrk­þegar eru sam­mála um að styrk­ur­inn hafi skipt miklu máli. Þrátt fyrir fram­an­greint hefur komið fram gagn­rýni að stuðn­ings­kerfið sé ekki nægi­lega fyr­ir­sjá­an­legt en gild­is­tími kafla lag­anna um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla var ein­ungis til tveggja ára. Til að auka fyr­ir­sjá­an­leika og stöð­ug­leika kerf­is­ins er gert ráð fyrir að fram­lengja gild­is­tíma kafl­ans til tveggja ára og skipa úthlut­un­ar­nefnd til sama tíma.“

[adspot]Þar var einnig farið yfir að í Dan­mörku, Nor­egi og Sví­þjóð sé unnið að umfangs­miklum breyt­ingum á stuðn­ingi við einka­rekna fjöl­miðla. „Í þessum löndum virð­ist þró­unin vera sú að auka fjár­magn til úthlut­unar en lækka þak ein­stakra styrkja. Þegar þetta er ritað hafa drög að frum­vörpum þess efnis ekki verið birt. Í ljósi þess að gíf­ur­lega miklar breyt­ingar eru í vændum á stuðn­ings­kerfum Dan­merk­ur, Nor­egs og Sví­þjóðar og þeirrar miklu reynslu sem fram­an­greind lönd hafa af fjöl­miðla­styrkjum verður gild­is­tími laga­á­kvæða sam­kvæmt frum­varpi þessu aðeins tvö ár, með það að mark­miði að innan þess tíma verði lagt fram frum­varp til laga með gild­is­tíma til fimm ára sem sé í takt við þróun ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­um. Þannig verði Ísland ekki eft­ir­bátur hinna land­anna er kemur að stuðn­ingi við einka­rekna fjöl­miðla.“

Ísland er sem stendur í 15. sæti á lista sam­tak­anna Blaða­menn án landamæra um fjöl­miðla­frelsi í heim­in­um. Nor­eg­ur, Sví­þjóð og Dan­mörk eru í efstu sætum þess lista.

Framlög til RÚV hækkað ár frá ári

Á sama tíma og fjöl­miðlar hafa fengið úthlutað úr styrkja­kerf­inu þrí­vegis hafa fram­lög til RÚV hækkað umtals­vert. Á næsta ári er gert ráð fyrir að þau auk­ist um 290 millj­ónir króna og verði 5.375 millj­ónir króna. Fram­lög til RÚV voru hækkuð um 430 millj­ónir króna milli áranna 2021 og 2022 og því munu fram­lögin hafa hækkað um 720 millj­ónir króna á tveimur árum, verði fjár­laga­frum­varpið sam­þykkt óbreytt.

Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lagði í gær frambreyt­ing­ar­til­lögu við frum­varp til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna fjár­laga þess efnis að fram­lög til RÚV verði ekki hækkuð milli ára.

Í umsögn um frum­varps­drögin sem afgreidd voru úr rík­is­stjórn á þriðju­dag gagn­rýndi Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins og tengdra miðla, meðal ann­ars að stuttur gild­is­tími styrkja­kerf­is­ins drægi úr fyr­ir­sjá­an­leika í rekstri fjöl­miðla. „Þá er þetta sér­stak­lega óheppi­legt þegar um er að ræða rík­is­stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla því að með skömmum gild­is­tíma eru þessi mál til stöðugrar umfjöll­unar sem getur sett frjálsa fjöl­miðla í óheppi­lega stöðu gagn­vart stjórn­völd­um, sen hafa verður í huga að meðal mik­il­vægra hlut­verka frjálsra fjöl­miðla er að veita stjórn­völdum aðhald.“

[links]Afleið­ing þeirrar þró­unar sem átt hefur sér stað á rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi hefur átt sér ýmsar birt­ing­­ar­­mynd­­ir. Ein slík birt­ist í Menn­ing­­ar­vísum Hag­­stof­unnar sem birtir voru í fyrra­sum­­­ar. Þar kom fram að árið 2013 hefðu 2.238 manns starfað í fjöl­miðlun á Íslandi. Árið 2020 voru þeir orðnir tæp­­­lega 876 tals­ins. Fækk­­­unin hafði ágerst hratt á síð­­­­­ustu árum. Frá árinu 2018 og út árið 2020 fækk­­­aði starf­andi fólki í fjöl­miðlum 45 pró­­­sent, eða 731 manns. Staðan hefur því versnað hratt í tíð sitjanei rík­is­stjórnar.

Sam­hliða fækkun starfs­­­manna fjöl­miðla hefur launa­sum­­­ma, árleg summa stað­greiðslu­­­skyldra launa­greiðslna launa­­­fólks, einnig dreg­ist saman meðal rekstr­­­ar­að­ila í fjöl­mið­l­un. Árið 2018 var launa­summan 8,1 millj­­­arður króna. Árið 2020 var hún hins vegar komin niður í 5,3 millj­­­arða króna og hafði því dreg­ist saman um 35 pró­­­sent á tveimur árum.

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­fyllir skil­yrði fyrir rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár