Fjölmargir þættir í sölunni á Íslandsbanka sem Ríkisendurskoðun rannsakaði ekki

Rík­is­end­ur­skoðun til­tekur í skýrslu sinni að það séu fjöl­margir þættir í söl­unni á hlut rík­is­ins í Íslands­banka sem stofn­unin rann­saki ekki. Stjórn­ar­þing­menn lof­uðu rann­sókn­ar­nefnd ef úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar skildi eftir ein­hverjar spurn­ingar.

Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á þingi í apríl að ef úttekt Ríkisendurskoðunar „dugi ekki til þá mun ég styðja það að komið verði á fót sjálf­­stæðri rann­­sókn­­ar­­nefnd.“
Óli Björn Kárason, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði á þingi í apríl að ef úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar „dugi ekki til þá mun ég styðja það að komið verði á fót sjálf­­stæðri rann­­sókn­­ar­­nefnd.“ Mynd: Eyþór Árnason

Í skýrsl­u Rík­is­end­ur­skoð­unar á sölu íslenska rík­is­ins á 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka í mars síð­ast­liðnum kemur fram að stjórn­sýslu­út­tektin sem stofn­unin fram­kvæmdi sé ekki tæm­andi rann­sókn á söl­unni á Íslands­banka. Þar er til að mynda ekki tekin afstaða til þess hvort rétt­mætt hafi verið að selja hlut rík­is­ins í bank­anum á þeim tíma sem það var gert eða til þeirra 207 aðila sem fengu að kaupa. Það heyrir ein­fald­lega ekki undir Rík­is­end­ur­skoðun að rann­saka slíkt.

Þá er ekki tekin afstaða til þess hvort beita hafi átt annarri sölu­að­ferð né lagt mat á hvort vinnu­brögð umsjón­ar­að­ila sölu­ferl­is­ins, sölu­ráð­gjafa og sölu­að­ila, hafi verið í sam­ræmi við lög og gild­andi regl­ur. Þar með talið er hvort söl­unni hafi verið beint að öðrum en hæfum fjár­fest­um, en fyrir liggur að alls 59 aðilar fengu að kaupa fyrir minna 30 millj­­ónir króna í útboð­inu. „Það síð­ast­nefnda sætir eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands,“ segir í skýrsl­unni en það hefur verið með ákveðna anga söl­unnar til rann­sókn­ar. Þar er meðal ann­ars verið að skoða hluta­bréfa­við­skipti í aðdrag­anda útboðs­ins á tíma þar sem fjár­festar áttu ekki að vita að sala á hlut í Íslands­banka væri yfir­vof­and­i. Hægt er að lesa um þann anga hér.

[adspot]Þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­herra, óskaði eftir því skrif­lega þann 7. apríl að Rík­is­end­ur­skoðun myndi gera úttekt á útboði og sölu rík­is­ins á hlutnum í Íslands­banka síð­ast­lið­inn þá afmark­að­ist það við hvort ferlið hafi sam­rýmst lögum og góðum stjórn­sýslu­hátt­um.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar, sem birt verður síðar í dag en Kjarninn hefur undir höndum, er sölu­ferlið á Íslands­banka gagn­rýnt harka­lega. Stofn­unin segir fjöl­þætta ann­marka hafa verið á söl­unni. Í nið­ur­stöðu hennar segir að standa hefði átt betur að söl­unni og hægt hefði verið að fá hærra verð fyrir hlut­inn í bank­anum. Ákveðið var að selja á und­ir­verði til að ná fram öðrum mark­miðum en lög­bundnum. Huglægt mat réð því hvernig fjár­festar voru flokk­aðir og orð­spors­á­hætta af sölu­ferl­inu var van­metin.

Þingflokksformenn sögðust styðja rannsóknarnefnd

Fjöl­margir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn köll­uðu eftir því að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að fara yfir sölu­ferlið, en slík nefnd hefur víð­tæk­ari heim­ild­ir en Rík­is­end­ur­skoðun. Því var hafnað af stjórn­ar­flokk­unum, meðal ann­ars með þeim rökum að vinna þyrfti verkið hratt og því væri Rík­is­end­ur­skoðun betur til þess fallin að sinna því en rann­sókn­ar­nefnd. Skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar mun birt­ast sjö mán­uðum og sjö dögum eftir að beðið var um hana, en upp­haf­lega átti skýrslan að koma fyrir augu almenn­ings fyrir lok júní. Síðasta rann­sókn­ar­nefnd Alþingis sem sett var saman, til að rann­saka aðkomu þátt­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser í kaupum á 45,8 pró­sent eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands, lauk störfum sínum á innan við tíu mán­uðum. Nið­ur­staða hennar varp­aði algjör­lega nýju ljósi á atburða­rás söl­unnar og opin­ber­aði að aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á hlut í Bún­­­að­­­ar­­­bank­­­anum hafi verið blekk­ing.

Þegar sá far­vegur að láta Rík­is­end­ur­skoðun gera úttekt á söl­unni í stað þess að skipa rann­sókn­ar­nefnd var til umræðu á þingi skömmu fyrir síð­ast­liðna páska komu nokkrir stjórn­ar­þing­menn í pontu og sögðu að þeir myndu styðja skipun rann­sókn­ar­nefndar ef spurn­ingum væri ósvarað eftir að Rík­is­end­ur­skoðun lyki sinni vinnu. Þeirra á meðal voru Óli Björn Kárason, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, og Ingi­björg Isaksen, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks.

Landsmenn vildu rannsóknarnefnd

Orðrétt sagði Óli Björn í pontu á þingi þann 7. apríl síð­ast­lið­inn: „Ég hef sagt og ætla að end­­ur­­taka það hér að ef það verður nið­ur­staða þings­ins að út­­tekt rík­­is­end­­ur­­skoð­anda, sem ætti ekki að taka lang­an tíma, dugi ekki til þá mun ég styðja það að komið verði á fót sjálf­­stæðri rann­­sókn­­ar­­nefnd.“

[links]Orri Páll tók í svip­aðan streng og sagði að ef hug­mynd Bjarna um skoðun Rík­is­end­ur­skoð­unar á mál­inu væri ekki nóg „þá tek ég heils hugar undir með þeirri hug­mynd að setja á fót sér­staka rann­sókn í mál­inu, bara heils hug­ar. Það er allra hagur að þetta mál sé upp­lýst ef ein­hver vafi er um ferlið þannig ég tek heils hugar undir það, svo það komi skýrt fram.“

Ingi­björg sagði sama dag að gefi nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar „eitt­hvert til­efni til þess að skoða þetta enn frekar mun ekki standa á þing­flokki Fram­sóknar að stofna rann­sókn­ar­nefnd til þess að skoða þetta.“

Í könnun sem Gallup birti í apríl síð­ast­liðnum var meðan ann­ars spurt að því hvort rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþingis ætti að gera úttekt á söl­unni, líkt og þorri stjórn­­­ar­and­­stöð­unnar hefði lagt til. Nið­­ur­­staðan þar var sú að 73,6 pró­­sent lands­­manna töldu að það ætti að skipa rann­­sókn­­ar­­nefnd en 26,4 pró­­sent töldu nægj­an­­legt að Rík­­is­end­­ur­­skoðun geri úttekt á söl­unni, líkt og fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra hafði þegar falið henni að ger­a.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár