Forstjóri Bankasýslunnar þáði vínflöskur, flugelda, konfekt og málsverði frá ráðgjöfum

Kjarninn spurði Banka­sýsl­una hvort stjórn eða starfs­fólk hennar hefði þegið gjafir eða boðs­ferðir frá sölu­ráð­gjöfum fyrir 17 dögum síðan. Ekkert svar hefur borist þrátt fyrir ítrekun.

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri stofnunarinnar, sátu fyrir svörum á opnum fundi fjárlaganefndar í morgun.
Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, og Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri stofn­un­ar­innar, sátu fyrir svörum á opnum fundi fjár­laga­nefndar í morgun. Mynd: Skjáskot/Alþingi

„Við fengum þarna ein­hverjar vín­flöskur og flug­elda og konfekt­kassa. Svo nátt­úru­leg eigum við ein­hverja hádeg­is­verði og kvöld­verði með ráð­gjöfum og svo fram­vegis. En ekk­ert annað.“ Þetta sagði Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýsl­unnar, þegar Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, spurði hann á opnum fundi fjár­laga­nefndar í morgun hvort hann hefði þegið boð, gjafir, risnu eða annað slíkt í kjöl­far eða í aðdrag­anda beggja útboða sem fram hafa farið með hluti rík­is­ins í Íslands­banka. Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unnar, svar­aði sömu spurn­ingu neit­andi fyrir sitt leyti.

Nefnd­ar­menn fóru í kjöl­farið fram á frek­ari svör um málið og Jón Gunnar sagð­ist ætla að taka saman minn­is­blað um þessar gjafir og greiddu hádeg­is­verði.

Fund­ur­inn í morgun kom til vegna mik­illar gagn­rýni á sölu á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka 22. mars síð­ast­lið­inn á 52,65 millj­arða króna. Alls 207 fjár­festar fengu þá að kaupa hluti á verði sem var sam­an­lagt 2,25 millj­örðum króna undir mark­aðsvirði bank­ans í lok­uðu útboði sem fór fram sam­kvæmt til­boðs­leið.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á Banka­sýslu rík­is­ins, stjórn­ar­for­mann hennar og for­stjóra þann 10. apríl síð­ast­lið­inn þar sem spurt var: „Hafa stjórn­ar­menn eða starfs­menn þegið ein­hverjar gjafir eða boðs­ferðir frá ein­hverjum þeirra ráð­gjafa sem ráðnir voru til að sinna sölu­með­ferð á hlut í Íslands­banka í síð­asta mán­uði?“

[adspot]Þegar ekk­ert svar hafði borist níu dögum síðar var fyr­ir­spurnin ítrekuð. Ekkert svar hefur enn borist og í ljósi þess að stofn­unin svar­aði ekki fyr­ir­spurn frá fjöl­miðli með neinum hætti var ákveðið að vísa henni til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem Banka­sýsla rík­is­ins heyrir undir, þann 22. apríl síð­ast­lið­inn. Ekkert svar hefur heldur borist þaðan.

Hagsmunarárekstrar til skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands er að skoða hátt­semi ein­hverra þeirra fimm inn­lendu sölu­að­ila sem Banka­sýslan valdi til að vinna að útboð­inu. Heim­ildir Kjarnans herma að þar sé verið að skoða mögu­lega hags­muna­á­rekstra, meðal ann­ars vegna þess að starfs­menn sumra sölu­ráð­gjafa hafi sjálfir tekið þátt í útboð­inu.

Þegar listi yfir kaup­endur á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka var birtur kom þetta í ljós. Alls átta starfs­menn Íslands­banka tóku þátt í útboð­inu og stærsti eig­andi Íslenskra Verð­bréfa, sem er einnig eig­in­kona for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, keypti auk þess hlut.

Aðrir inn­lendir sölu­ráð­gjafar voru Fossar mark­aðir, sem var aðal inn­lendi sölu­ráð­gjafi Banka­sýsl­unnar, ACRO verð­bréf og Lands­bank­inn.

Í minn­is­blaði Banka­sýsl­unnar til fjár­laga­nefndar, sem birt var í gær, kom fram að það væri stofn­un­inni „mikil von­brigði að strax í kjöl­far útboðs­ins hefðu vaknað spurn­ingar um mögu­lega bresti í fram­kvæmd þess, m.a. hugs­an­lega hags­muna­á­rekstra hjá aðilum sem stóðu að fram­kvæmd söl­unnar og mögu­lega ófull­nægj­andi athugun á hæfi fjár­festa sem tóku þátt í útboð­inu.“

Á fundi fjár­laga­nefndar í dag sagði Jón Gunnar að allir fimm inn­lendu sölu­ráð­gjaf­arnir hefðu fengið fyr­ir­spurnir frá Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands vegna rann­sóknar þess, en að það lægi ekki fyrir að grunur væri um mögu­leg brot á reglum eða lögum gagn­vart þeim öllum.

Búið að greiða út stóran hluta af grunnþóknun

Allir sölu­ráð­gjaf­arnir sem Banka­sýslan valdi áttu sam­tals að fá 703 millj­ónir króna fyrir starf sitt við útboðið. Þar af áttu inn­lendir sölu­ráð­gjafar að fá 322,5 millj­ónir króna. Sú upp­hæð skipt­ist þannig að 193,5 millj­ónir króna áttu að greið­ast í svo­kall­aða grunn­þóknun en 129 millj­ónir króna í svo­kall­aða val­kvæða þóknun. Banka­sýslan hefur þegar greitt 79 millj­ónir króna í grunn­þóknun en lög­menn hennar skoða nú hvort mögu­leiki sé að halda þeim 114,5 millj­ónum króna sem eftir standa af henni eftir. Aðspurður um greiðslu val­kvæðu þókn­un­ar­innar sagði Jón Gunnar: „Valkvæða þókn­unin, við þurfum ekki að greiða hana.“

Staðan er öðru­vísi hvað varðar erlendu sölu­ráð­gjaf­anna í útboð­inu Þeir eru þegar búnir að fá 158 af 201,4 milljón króna grunn­þóknun sinni greidda og ógreidd val­kvæð þóknun til þeirra er 134,4 millj­ónir króna.

Í áður­nefndu minn­is­blaði Banka­sýslu rík­is­ins, sem birt var í gær, segir að engin ákvörðun verði tekin um greiðslu á val­kvæðri þóknun „fyrr en að nið­ur­staða athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka („FME“) liggur fyrir og hefur stofn­unin sagt opin­ber­lega að ef ein­hverjir sölu­ráð­gjafar hafi brugð­ist stofn­un­inni þá muni val­kvæð þóknun vera skert eða ekki greidd út.“

Fjár­mála­ráð­gjafi Banka­sýsl­unnar er búinn að fá allar þær 39,5 millj­ónir króna sem hann átti að fá greiddar og lög­menn sem unnu fyrir hana í ferl­inu 3,6 af 5,1 milljón króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár