Tíu staðreyndir um íslenska húsnæðismarkaðinn

Hús­næð­is­verð hefur hækkað gríð­ar­lega á skömmum tíma, sölu­tími íbúða hefur aldrei verið styttri og fleiri en nokkru sinni áður borga yfir ásettu verði fyrir hús­næði. Hvað er eig­in­lega að ger­ast íslenska hús­næð­is­mark­aðnum?

1. Fáar íbúðir til sölu

Þegar fram­boð af íbúðum var sem mest, í maí í fyrra, voru rétt tæp­lega fjögur þús­und íbúðir til sölu á land­inu öllu. Í lok októ­ber voru þær 1.320, eða um þriðj­ungur af því sem var til sölu fyrir einu og hálfu ári. Nú eru þær, sam­kvæmt nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS), um 1.150. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru nú 626 íbúðir til sölu en þeim fækk­aði um 38 milli mán­aða. Framan af síð­asta ári voru á þriðja þús­und íbúðir til sölu á hverjum tíma á svæð­inu. Þróunin er sú sama í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ann­ars staðar á lands­byggð­inni. Alls staðar hefur orðið algjört hrun á fram­boði frá þeirri stöðu sem var á fyrstu mán­uðum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

2. Lán til heimila stóraukin

Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á greip Seðla­banki Íslands til þess ráðs að lækka eig­in­fjár­kvaðir á íslensku bank­anna til að hvetja þá til frek­ari útlána. Það átti að örva efna­hags­lífið. Nýjar tölur frá bank­anum sýna að íslensku við­skipta­bank­arnir nýttu það aukna svig­rúm sem þeir fengu með í að lána heim­ilum til hús­næð­is­kaupa.

Hlut­deild banka í úti­stand­andi íbúða­lánum er nú um 70 pró­sent en var 55 pró­sent í byrjun árs 2020. Á sama tíma hefur vaxta­munur bank­anna þriggja: Lands­bank­ans, Arion banka og Íslands­banka hald­ist svip­aður en hagn­aður þeirra stór­auk­ist. Þeir högn­uð­ust sam­tals um 60 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021, sem er meira en þeir hafa hagn­ast innan árs frá árinu 2015.

3. Lægri stýrivextir og aukinn kaupmáttur

Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á voru stýri­vextir Seðla­banka Íslands lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent. Þeir höfðu aldrei verið lægri. Það þýddi að það hafði aldrei verið ódýr­ara á Íslandi að fá pen­inga að láni.

Sparn­aður hrann­aðist á sama tíma upp vegna þess að ómögu­legt var að eyða honum t.d. í ferða­lög vegna ferða­tak­mark­ana, og samn­ings­bundnar launa­hækk­anir tók gildi.

Kaup­máttur lands­manna hefur því heilt yfir auk­ist sem þýðir að kaup­geta er meiri.

4. Miklar verðhækkanir

Þegar eft­ir­spurn er mikil, fram­boð lítið, pen­ingar eru gerðir ódýr­ari, aðgengi að lánsfé er stór­aukið og sparn­aður og kaup­máttur eykst þá er eitt algjör­lega óum­flýj­an­legt: verð á hús­næði mun hækka skarpt.

[adspot]Frá byrjun árs í fyrra hefur verð á hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að mynda hækkað um 24 pró­sent. Á síð­ustu tólf mán­uðum einum saman hefur verðið hækkað um 15,7 pró­sent fyrir fjöl­býli á svæð­inu og 17,5 pró­sent fyrir sér­býli. Á lands­byggð­inni er hækk­unin 9,2 pró­sent fyrir fjöl­býli og 13,9 pró­sent fyrir sér­býli.

5. Óverðtryggðu lánin taka yfir

Sam­hliða hefur orðið eðl­is­breyt­ing á lán­tökum lands­manna við það að hlut­fall óverð­tryggðra lána af öllum íbúða­lánum hefur hækkað gríð­ar­lega. Það var 27,5 pró­sent í byrjun árs 2020 en er nú komið yfir 50 pró­sent.

Hlut­fall lána sem er á breyti­legum vöxt­um, og fylgir því stýri­vaxta­hækk­un­um, hefur sömu­leiðis aldrei verið hærra. Í nýlegum Pen­inga­málum sagði enda að „áhrif vaxta­breyt­inga Seðla­bank­ans koma því fyrr fram en áður og ljóst er að nýlegra vaxta­hækk­ana er þegar farið að gæta í greiðslu­byrði hluta heim­ila.“

6. Færri kaupsamningar og færri litlar íbúðir til sölu

Minna fram­boð hefur þýtt að færri kaup­samn­ingar eru gerðir. Þeir voru 928 í októ­ber og fækk­aði um 16 pró­sent milli mán­aða. Fyrir vikið eru fleiri að berj­ast um færri íbúðir. Og fleiri eru til­búnir að borga yfir ásettu verði til að ná í þær eignir sem sóst er eftir.

Sér­stak­lega hefur dregið úr sölu á litlum íbúðum, eins her­bergja og stúd­íó­í­búðir, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í byrjun síð­asta árs voru yfir eitt hund­rað slíkar til sölu en nú eru ein­ungis níu slíkar til sölu.

7. Hlutfall íbúða sem selst á yfirverði aldrei hærra

Í októ­ber seldur 37,8 pró­sent allra íbúða í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að mynda yfir ásettu verði sam­kvæmt sam­an­tekt HMS. Það hlut­fall hefur aldrei verið hærra frá því að mæl­ingar hófust.

[adspot]Þótt aðeins hafi dregið úr hlut­falli sér­býla sem selst yfir ásettu verði frá því í sumar er það hærra en fyrir íbúðir í fjöl­býli eða 37,8 pró­sent og hækkar lít­il­lega á milli mán­aða. Sér­stak­lega er bit­ist um litlar íbúðir sam­kvæmt HMS, en stúd­íó­í­búðir, eins her­bergja og tveggja her­bergja íbúðir eru í 40 pró­sent til­vika að fara yfir ásettu verði. Hlutfall sér­býla á svæð­inu sem selst yfir ásettu er enn hærra, eða 38,8 pró­sent.

Á lands­byggð­inni fara 19 pró­sent íbúða í fjöl­býli yfir ásettu verði og 21,9 pró­sent sér­býla.

8. Meðalsölutíminn aldrei styttri

Með­al­sölu­tími íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var tæp­lega 37 dagar í októ­ber og hefur aldrei mælst styttri. Það tók styttri tíma að selja fjöl­býli (35 dagar) en sér­býli (43 dagar) á svæð­inu. Með­al­sölu­tím­inn var stystur á íbúðum sem seld­ust á 40 til 60 millj­ónir króna.

Á lands­byggð­inni tók 62 daga að með­al­tali að selja eignir sam­kvæmt mæl­ingum HMS. Tíminn var styttri í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins (52 dagar) en lengri ann­ars staðar á lands­byggð­inni (75 dagar).

9. Seðlabankinn grípur í bremsuna

Hratt hækk­andi fast­eigna­verð hefur verið leið­andi þáttur í að hækka verð­bólgu, sem nú mælist 4,8 pró­sent. Til að reyna að stemma stigu við þess­ari þróun hóf Seðla­bank­inn vaxta­hækk­un­ar­ferli í maí og hefur alls hækkað vexti fjórum sinnum síðan. Þeir eru nú tvö pró­sent.

Þá hefur Seðla­bank­inn sett reglur um hámarks­greiðslu­byrði íbúða­lána sem hlut­fall af ráð­stöf­un­ar­tekjum og lækkað hámarks­veð­hlut­föll fast­eigna­lána í þeim til­gangi að stemma stigu við eft­ir­spurn­ar­þrýst­ingi á fast­eigna­mark­aði.

Allt er þetta gert til að reyna að bremsa af hús­næð­is­mark­að­inn og hækk­anir á honum.

10. Það þarf 27 þúsund íbúðir til 2030

Tekist hefur verið á um það í opin­berri umræðu hvað valdi því að fram­boðið á hús­næði sé ekki meira en raun ber vitni. Samtök iðn­að­ar­ins hafa til að mynda sagt að hækk­andi íbúða­verðs sé vegna lóða­skorts en Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, hefur skotið þær hug­myndir niður og sagt hækk­anir vera vegna afleið­ingu af vaxta­lækk­unum og breyttri neyslu­hegðun.

Það liggur þó fyrir að byggja þarf umtals­vert af hús­næði, sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í nán­ustu fram­tíð.

Í skýrslu HMS segir að þótt umsvif á bygg­inga­mark­aði hafi dreg­ist saman frá því að þau náðu hámarki 2019 séu þau enn mikil í sögu­legu sam­hengi. „Um 3.000 íbúðir hafa verið kláraðar það sem af er ári og því útlit fyrir fækkun frá því á síð­asta ári þegar kláraðar voru tæp­lega 3.800 íbúðir. Áður hafði það þó aðeins gerst á upp­gangs­ár­unum 2004-2007 að kláraðar hafi verið yfir 3.000 íbúðir á ári.“

HMS hefur metið að byggja þurfi 27 þús­und íbúðir fram til árs­ins 2030 og að það þurfi 3.500 íbúðir á ári á fyrstu árum tíma­bils­ins vegna við­var­andi óupp­fylltrar íbúða­þarfar, auk­innar fólks­fjölg­unar og breyt­inga sem eru að verða á heim­il­is­gerð og ald­urs­sam­setn­ingu þjóð­ar­innar. Samkvæmt því mati þarf að bæta í fjölda íbúða í bygg­ingu til að upp­fylla íbúða­þörf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár