Íslandsbanki nú 250 milljarða króna virði og hefur aldrei verið verðmætari

Virði hluta­bréfa í Íslands­banka hefur aldrei verið hærra en við lokun mark­aða í dag. Sá hlutur sem ríkið seldi í bank­anum í júní hefur hækkað um 32,2 millj­arða króna, eða 58 pró­sent.

Íslandsbanki var skráður á markað í júní.
Íslands­banki var skráður á markað í júní. Mynd: Íslandsbanki

Sá 35 pró­sent hlutur sem íslenska ríkið seldi í Íslands­banka í júní síð­ast­liðnum er nú met­inn á 87,5 millj­arða króna. Hann hefur hækkað um 32,2 millj­arða króna frá því að útboðið fór fram, eða alls um 58 pró­sent.

Virði Íslands­banka hefur aldrei verið meira en það var við lokun mark­aði í dag, eða 250 millj­arðar króna. Mark­aðsvirði bank­ans í heild hefur hækkað um 92 millj­arða króna frá því í júní, en íslenskra ríkið á enn 65 pró­sent hlut í honum. Samkvæmt þessu er virði þess hluta nú 162,5 millj­arðar króna.

Sá sem keypti hlut í Íslands­banka af íslenska rík­inu á eina milljón króna í júní gæti selt þann hlut í dag á 1.580 þús­und krónur.

Rauk upp eftir tilkynninu um drög að uppgjöri

Virði hluta­bréfa í Íslands­banka hefur auk­ist um 4,3 pró­sent, eða 10,4 millj­arða króna, á síð­ustu tveimur dögum. Ástæða þess er sú að bank­inn birti drög að upp­gjöri þriðja árs­fjórð­ungs i gær sem benda til þess að hagn­aður hans á tíma­bil­inu verði langt yfir spám.

[adspot]Grein­ing­ar­að­ilar höfðu reiknað með hagn­aði upp á 4,6 millj­arða króna en drög að upp­gjöri benda til þess að hagn­að­ur­inn verði 7,6 millj­arðar króna, eða þremur millj­örðum krónum meiri en spár gerðu ráð fyrir. Gangi þetta eftir mun Íslands­banki hafa hagn­ast að með­al­tali um 82 millj­ónir króna á hverjum ein­asta degi frá byrjun júlí og til loka sept­em­ber­mán­aðar.

Spár grein­ing­ar­að­ila um hagnað voru sendar Íslands­banka á tíma­bil­inu 21. til 6. októ­ber og reynd­ust, líkt og áður sagði, langt frá veru­leik­anum. Þess vegna þurfti Íslands­banki að til­kynna mark­aðnum um stöð­una.

Sam­an­lagður hagn­aður Íslands­banka á fyrstu níu mán­uðum árs­ins er sam­kvæmt drög­unum um 16,6 millj­arðar króna.

Yfir­lýst mark­mið bank­ans er að greiða út 50 pró­sent af hagn­aði hvers árs í formi hefð­bund­inna arð­greiðslna. Þá ætlar hann auk þess að nýta umfram eigið fé bank­ans til frek­ari arð­greiðslna eða kaupa á eigin bréf­um.

Arðsemi eigin fjár langt yfir markmiði

Sá mæli­kvarði sem stjórn­endur banka nota til að mæla árangur sinn er ekki endi­lega hversu mik­ill hagn­aður er í krónum talið, heldur hver hlut­falls­leg arð­semi þessa eigin fjár er. Und­an­farin ár hefur þessi arð­semi verið nokkuð döpur og verið undir mark­miðum.

Íslands­banki setti sér það mark­mið að ná átta til tíu pró­sent arð­semi á eigið fé fyrir lok árs 2022 og að til lengri tíma yrði arð­semin yfir tíu pró­sent.

Á fyrsta árs­fjórð­ungi 2021 var arð­semin 7,7 pró­sent. Á þeim næsta var hún 11,6 pró­sent og þeim þriðja var hún orðin 15,7 pró­sent. Bankinn verður því að öllum lík­indum langt yfir lang­tíma­mark­miði sínu þegar árið 2021 verður gert upp.

Vaxta- og þóknanatekjur upp um milljarð milli ára

Mestu munar ann­ars vegar um að hreinar vaxta­tekjur hreinar þókn­ana­tekjur uxu sam­an­lagt um einn millj­arð króna milli ára.

Vaxta­tekjur mynd­ast af vaxta­mun, mun­inum á þeim vöxtum sem bank­arnir greiða fólki og fyr­ir­tækjum fyrir inn­lán sem þau geyma hjá þeim og vöxt­unum sem þeir leggja á útlán.

Þókn­ana­tekjur mynd­ast vegna þókn­ana sem bank­inn tekur fyrir t.d. eigna­stýr­ingu eða fyr­ir­tækja­ráð­gjöf. Í ljósi þess að íslensku bank­arnir starfa nán­ast ein­vörð­ungu í íslensku hag­kerfi þá verður að álykta að stór hluti við­skipta­vina þeirra séu stærstu fag­fjár­fest­arnir innan þess, íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir.

Hins vegar juk­ust hreinar fjár­muna­tekjur um 900 millj­ónir króna, aðal­lega vegna jákvæðrar virð­is­breyt­ingar á fjár­fest­ingu í óskráðum hlut­deild­ar­fé­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár