Þjálfararnir velja í landsliðshópinn – án aðkomu stjórnar KSÍ

Lands­liðs­þjálf­arar karla­lands­liðs­ins í fót­bolta taka ákvörðun um hvaða leik­menn verða valdir í hóp­inn fyrir tvo heima­leiki í und­ankeppni HM 2022 án afskipta stjórnar KSÍ. Hópurinn verður til­kynntur á blaða­manna­fundi eftir hádegi í dag.

Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.
Arnar Þór Við­ars­son, þjálf­ari íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta. Mynd: Skjáskot/RÚV

Stjórn KSÍ hefur ekki haft afskipti af vali þjálf­ara karla­lands­liðs­ins í fót­bolta fyrir kom­andi leiki, að því er fram kemur í sam­tali deild­ar­stjóra sam­skipta­deildar Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) við Kjarnann.

Þjálf­arar KSÍ munu kynna leik­manna­hóp­inn fyrir tvo heima­leiki í und­ankeppni HM 2022 á blaða­manna­fundi í höf­uð­stöðvum KSÍ klukkan 13:15 í dag.

Leikið verður á Laug­ar­dals­velli gegn Armeníu þann 8. októ­ber næst­kom­andi og Liechtenstein þann 11. októ­ber. Ísland er í næst neðsta sæti rið­ils­ins, þremur stigum fyrir ofan Liechtenstein.

Sérstök nefnd fer yfir viðbrögð KSÍ

Mikið hefur gengið á innan raða KSÍ eftir að frá­sagnir af kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni lands­liðs­manna í knatt­spyrnu komu upp á yfir­borðið fyrr í sumar. Formaður KSÍ, Guðni Bergsson, sagði af sér emb­ætti í kjöl­farið og sömu­leiðis stjórnin.

Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­band Íslands (ÍSÍ) setti á stofn nefnd, eftir að KSÍ óskaði eftir því, til að gera úttekt á við­brögðum og máls­með­ferð sam­bands­ins vegna kyn­ferð­is­of­beld­is­mála sem tengst hafa leik­mönnum í lands­liðum Íslands.

Sam­kvæmt ÍSÍ á nefndin að fara yfir þá atburða­rás sem leiddi til afsagnar for­manns og fyr­ir­hug­aðrar afsagnar stjórnar KSÍ í sept­em­ber ásamt því að bregð­ast við ásök­unum sem fram hafa kom­ið. Í nefnd­inni sitja Hafrún Krist­jáns­dóttir, Kjartan Bjarni Björg­vins­son og Rán Ingv­ars­dóttir.

Kolbeinn tekinn úr hópnum

Lands­liðs­þjálf­ar­inn, Arnar Þór Við­ars­son, hefur kallað eftir skýrum ramma þegar kemur að því hvað þurfi að ger­ast til að þjálf­arar mega ekki velja ein­staka leik­menn í lands­liðið í kjöl­far þess að stjórn KSÍ tók ákvörðun um að víkja Kolbeini Sig­þórs­syni úr hópnum.

Kolbeinn var tek­inn út úr lands­liðs­hópi Íslands í haust eftir að umfjöllun birt­ist um mál sem kom upp á skemmti­stað fyrir fjórum árum. Þar var Kolbeinn sagður hafa beitt tvær konur ofbeldi og áreitt þær. Atvikið var kært til lög­reglu en málið fellt niður eftir að leik­mað­ur­inn greiddi kon­unum miska­bætur.

Á blaða­manna­fundi íslenska lands­liðs­ins fyrir leik liðs­ins gegn N-Makedóníu sem fram fór í byrjun sept­em­ber sagði Arnar Þór það ekki vera boð­legt fyrir þjálf­ara að þurfa að hringja í stjórn­ar­með­limi til að fá leyfi fyrir hverjum ein­asta leik­manni. „Við sem þjálf­arar, það er ómögu­legt fyrir okkur að vinna okkar starf ef við þurfum að hringja inn nöfn til stjórnar eða hvern sem er og fá leyfi til að velja fólk. Þá get ég ekki unnið starfið mitt. Ef ég get ekki unnið starfið mitt eins og ég vil vinna það þá þarf að finna ein­hvern annan þjálf­ara. Það þarf að gera þetta mjög fljótt. Þessi rammi þarf að vera klár eins fljótt og hægt er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár