Nýttu hlutastarfaleið fyrir tugi starfsmanna en stefna nú að 230 milljóna arðgreiðslu

S4S sem rekur fjölda skó­búða nýtti hluta­starfa­leið­ina fyrir 52 starfs­menn í mars og apríl í fyrra. Í árs­skýrslu S4S segir að far­ald­ur­inn hafi haft „veru­lega jákvæð áhrif á sölu félags­ins“ en stjórnin leggur til að 230 millj­ónir verði greiddar í arð.

S4S starfrækir fjölda skóbúða í Kringlunni og Smáralind, þar á meðal Steinar Waage.
S4S starf­rækir fjölda skó­búða í Kringl­unni og Smára­lind, þar á meðal Steinar Waage. Mynd: Steinar Waage

Stjórn S4S leggur til að allt að 230 millj­ónir króna verði greiddar í arð til hlut­hafa á árinu 2021 fyrir rekstr­ar­árið 2020 en félagið hagn­að­ist um rúm­lega 250 millj­ónir króna á því ári. Þar að auki lækk­aði félagið hlutafé sitt um 110 millj­ónir króna á árinu 2020.

S4S rekur fjölda skó­búða, til að mynda Kaup­fé­lagið, versl­anir með Ecco og Skechers skó, Steinar Waage, AIR og Skór.is, auk þess sem félagið á og rekur Ell­ing­sen sem sér­hæfir sig í úti­vi­starfatn­aði og -bún­aði.

Félagið þurfti að loka sumum versl­unum sínum tíma­bundið í fyrra vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og var starfs­hlut­fall hluta starfs­fólks því lækkað. Samkvæmt skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar sem kom út í maí í fyrra nýtti S4S hluta­starfa­leið­ina fyrir 52 starfs­menn í mars og apríl. Ekki fást upp­lýs­ingar um það hversu há fjár­hæð fór í hluta­bætur starfs­manna félags­ins.

Pétur Þór Hall­dórs­son er for­stjóri S4S. Pétur Þór er einnig stjórn­ar­for­maður félags­ins og annar stærstu eig­enda þess en hann heldur á 40 pró­senta hlut í félag­inu. Félagið Sjáv­ar­sýn ehf., sem er í eigu Bjarna Ármanns­sonar, á 40 pró­senta hlut í S4S og þeir Hermann Helgason og Georg Krist­jáns­son eiga tíu pró­sent hvor.

Faraldurinn hafði „verulega jákvæð áhrif á sölu félagsins“

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn til S4S og spurði hversu háa fjár­hæð félagið hefði þegið í formi hluta­bóta. Þar var einnig spurt hvort það hefði komið til tals að end­ur­greiða hluta­bæt­urnar líkt og önnur stöndug fyr­ir­tæki gerðu á síð­asta ári.

Í skrif­legu svari Péturs Þórs sagði hann að S4S hefði ekki þegið neinar greiðslur heldur starfs­fólkið sem vann í minnk­uðu starfs­hlut­falli. Pétur minnt­ist ekki á end­ur­greiðslur í svari sínu en svar Péturs fylgir hér í heild sinni:

„Stjórn­völd settu fram hluta­bóta­leið­ina til þess að starfs­mönnum yrði ekki sagt upp í stórum stíl vegna Covid 19. Fyr­ir­tæki voru hvött til þess að nýta sér þetta úrræði og gera tíma­bundið sam­komu­lag við sína starfs­menn um minnkað starfs­hlut­fall. Þeir starfs­menn S4S sem nýttu sér þessa leið fóru því í hluta­starf og fengu greidd laun frá S4S í sam­ræmi við sitt vinnu­fram­lag. S4S fékk engar greiðslur til sín. Fyr­ir­tækið stóð frammi fyrir gríð­ar­legri óvissu í upp­hafi far­ald­urs­ins og var sumum versl­unum S4S lokað tíma­bundið. Um leið og búið var að ná nokk­urri stjórn á afleið­ingum far­ald­urs­ins fóru allir starfs­menn aftur í 100% starfs­hlut­fall og voru fleiri til ráðnir til vinnu. Þess má geta að nú vinna yfir 180 starfs­menn hjá fyr­ir­tæk­inu.“

Í skýrslu stjórnar í árs­reikn­ingi S4S er sér­stak­lega fjallað um áhrif COVID-19 á rekstur félags­ins. Þar er far­ald­ur­inn sagður hafa haft mikil jákvæð áhrif á rekstur félags­ins. „Aðgerðir stjórn­enda voru að tryggja öryggi starfs­manna og við­skipta­vina ásamt því að halda uppi fram­leiðni. Félagið leit­aði allra leiða til að þjóna við­skipta­vinum sínum sem best miðað við aðstæður á árinu og hafði heims­far­ald­ur­inn veru­lega jákvæði áhrif á sölu félags­ins. Sala jókst umtals­vert á árinu og þá sér­stak­lega net­versl­unin og var lagt mikið upp úr því að nýta tækn­ina sem best.“

Ráðherra útiloki ekki að farið verði fram á endurgreiðslu

Lög um hluta­bætur voru fyrst sam­þykkt á Alþingi í mars á síð­asta ári þegar bráða­birgða­á­kvæði við lög um atvinnu­leys­is­trygg­ingar voru sam­þykkt. Þá voru skil­yrði til atvinnu­veit­anda tak­mörkuð. Það var ekki fyrr en úrræðið var fram­lengt í maí að girt var fyrir arð­greiðslur fyr­ir­tækja sem nýta sér hluta­bóta­leið. Þá var atvinnu­veit­endum sem nýta sér hluta­bóta­leið­ina meinað að lækka hlutafé sitt. Þessi skil­yrði voru sett fyrir greiðslum sem greiddar voru frá og með 1. júní 2020. [links]

Síðasta sumar var tekin ákvörðun innan ýmissa stöndugra fyr­ir­tækja um að ýmist hætta að nýta hluta­starfa­leið­ina eða end­ur­greiða hluta­bætur starfs­fólks síns. Að þessu er meðal ann­ars vikið í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar: „Í hópi þeirra aðila sem hafa nýtt sér hluta­starfa­leið­ina eru fyr­ir­tæki og fyr­ir­tækja­sam­stæður sem búa að öfl­ugum rekstri og traustum efna­hag en ekki verður séð af lög­unum og lög­skýr­ing­ar­gögnum að slíkt hafi verið ætl­unin Nokkur fyr­ir­tæki hafa til­kynnt um að horfið verði frá nýt­ingu hluta­starfa­leiðar og önnur boðað end­ur­greiðslu á fram­lagi Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs.“

Í sér­stakri tíma­línu um hluta­starfa­leið­ina í skýrsl­unni er sagt frá því að fjár­mála- og efn­hags­ráð­herra úti­loki ekki að farið verði fram á end­ur­greiðslu frá stönd­ugum fyr­ir­tækjum. Bjarni Bene­dikts­son sagði í við­tali við Vísi í maí í fyrra það vera eðli­legt að þegar betur áraði myndu fyr­ir­tæki greiða til baka þann stuðn­ing sem ríkið hefði veitt þeim. Þá sagði hann fyr­ir­tæki sem ekki þyrftu á slíkum stuðn­ingi að halda en nýttu hann samt „reka rýt­ing í sam­stöð­una“ sem stjórn­völd hefðu kallað eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár