Sextíu og eitt fyrirtæki hefur óskað eftir að endurgreiða hlutabætur

Reiknað er með því með því að heild­ar­end­ur­greiðslur frá fyr­ir­tækjum vegna hluta­bóta­leið­ar­innar muni nema 306 millj­ónum þegar allt verður saman talið. Kostn­aður við hluta­bóta­leið­ina hefur numið 18 millj­örðum króna til þessa.

Alls hefur 61 fyr­ir­tæki óskað eftir að greiða til baka and­virði þeirra hluta­bóta sem starfs­menn sömu fyr­ir­tækja fengu greiddar þegar þeir voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli í vor. Stjórn­völd reikna með því að heild­ar­end­ur­greiðslur vegna hluta­bóta­leið­ar­innar muni nema 306 millj­ónum þegar allt verður saman talið.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um stöðu helstu efna­hags­að­gerða sem gripið hefur verið til vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.[links]

Áður hafði komið fram hér á Kjarn­anum að fjöru­tíu og fjögur fyr­ir­tæki hafa þegar greitt bæt­urnar til baka og nema þær end­ur­greiðslur alls 210 millj­ónum króna. Stjórn­völd reikna því með tæpum 100 millj­ónum frá fyr­ir­tækj­unum 17 sem bæt­ast við.

Beinn kostn­aður íslenska rík­is­ins vegna hluta­bóta­leið­ar­innar nemur rúmum 18 millj­örðum króna til þessa, en þegar mest var í apr­íl­mán­uði voru yfir 32 þús­und manns í minnk­uðu starfs­hlut­falli. Hluta­bóta­leiðin var kynnt til sög­unnar í mars og gat í fyrstu falið í sér að ríkið greiddi allt að þrjá fjórðu launa starfs­manna sem fyr­ir­tæki þurftu að færa niður í minnkað starfs­hlut­fall tíma­bundið.

[adspot]

Í minn­is­blaði ráðu­neyt­is­ins kemur fram að stefnt sé að birt­ingu á tölum um end­ur­greiðslur fyr­ir­tækja þegar end­ur­greiðsl­unum er lokið. Hluta­bóta­leiðin rennur út núna í lok ágúst­mán­aðar, að öllu óbreyttu.

Fjöl­mörg fyr­ir­tæki gáfu það út opin­ber­lega að þau ætl­uðu sér að end­ur­greiða hluta­bæt­urnar, eftir að snörp gagn­rýni kom fram í opin­berri umræðu og frá stjórn­mála­mönnum í lok apríl á að stöndug fyr­ir­tæki með styrkan efna­hag væru að nýta hluta­bóta­leið­ina, þeirra á meðal fyr­ir­tæki sem væru búin eða hefðu í hyggju að greiða hlut­höfum sínum arð á árinu.

Í lok maí birti Rík­is­end­ur­skoðun skýrslu um hluta­bóta­leið­ina og fram­kvæmd hennar og kom þar fram sú túlkun að ekki yrði séð af lög­­unum um hluta­bóta­leið­ina né af lög­­­skýr­ing­­ar­­gögnum að það hafi verið ætl­­unin að stöndug fyr­ir­tæki myndu nýta sér leið­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár