Gestafyrirlesarar um foreldraútilokun gagnrýndir fyrir „forneskjulegar hugmyndir“

Stígamót vara við fyr­ir­hug­uðu nám­skeiði fyrir fag­fólk á vegum Félags um for­eldra­jafn­rétti. Fyr­ir­les­ar­arnir eru bresk hjón sem hafa skrifað um hefð­bundin kynja­hlut­verk og gagn­rýnt femín­isma og kvenna­sam­tök. Skipu­leggj­andi segir hópa hafa hag af því að berj­ast gegn umræð­unni.

Gestafyrirlesarar um foreldraútilokun gagnrýndir fyrir „forneskjulegar hugmyndir“
Karen Woodall Verk­efna­stýra hjá Stíga­mótum segir Woodall hjónin sýna hugs­un­ar­hátt þar sem þolendum er ekki trúað. Mynd: YouTube

Stígamót segja breska fyr­ir­les­ara sem vænt­an­legir eru til lands­ins til að fjalla um for­eldra­úti­lokun breiða út hug­mynda­fræði þar sem konum og börnum er ekki trúað þegar sagt er frá heim­ilis- og kyn­ferð­is­of­beldi. Formaður Félags um for­eldra­jafn­rétti, sem stendur fyrir nám­skeið­inu, segir hins vegar óþarfi að færa umræð­una niður í „skot­grafir kynja­stríðs“.

Hjónin Karen og Nick Woodall munu halda heils­dags nám­skeið í lok jan­úar um börn og fjöl­skyldur sem kljást við for­eldra­úti­lokun. Hugtakið er umdeilt bæði á sviði sál­fræði og lög­fræði, en það skil­grein­ist sem það athæfi þegar annað for­eldri snýr barni gegn hinu for­eldr­inu með inn­ræt­ingu og hefur því verið lýst sem heila­þvotti for­eldris á barni. Félag um for­eldra­jafn­rétti sendi tölvu­póst um við­burð­inn á um 500 aðila nýverið og þar á meðal fag­að­ila í mála­flokknum.

„Við setjum stórt spurn­ing­ar­merki við að þetta fólk sé að fara að kenna íslensku fag­fólki eitt­hvað um barna­vernd og fjöl­skyldu­rétt,“ segir Steinunn Gyðu- og Guð­jóns­dóttir, verk­efna­stýra á Stíga­mótum, um Woodall-hjónin. „Skrif þeirra eru lituð af hug­myndum um að börn ljúgi til um kyn­ferð­is­of­beldi, heim­il­is­of­beldi snú­ist fyrst og fremst um að mæður beiti börn­unum fyrir sig til að úti­loka feður og þau virð­ast ekki taka neitt til­lit til þess að mæður reyni að vernda börn sín og sig sjálfar gagn­vart heim­il­is­of­beldi. Þetta er hugs­un­ar­háttur þar sem þolendum er ekki trúað.“

„Þetta er hugs­un­ar­háttur þar sem þolendum er ekki trúað“
Steinunn Gyðu- og Guð­jóns­dóttirVerk­efna­stýra á Stíga­mótum segir annað fag­fólk betur til þess fallið að fjalla um mála­flokk­inn.

Steinunn segir hjónin einnig vera með aðrar „forn­eskju­legar hug­myndir“ um jafn­rétti, sem eigi ekki við í íslensku sam­fé­lagi. „Þarna eru hug­myndir um að mæður eigi að vera heima með börnin og feður úti­vinn­andi, skýr og klár verka­skipt­ing byggð á gömlum stað­al­hug­myndum. Það er mjög skrítið að Félag um for­eldra­jafn­rétti, sem kennir sig við jafn­rétti, bjóði okkur upp á þessa fyr­ir­les­ara, sem standa alls ekki fyrir jafn­rétti.“

Hún segir heims­mynd­ina sem Woodall-hjónin vinna út frá ekki vera til þess fallna að leið­beina fag­fólki. „Þau tala um að börnin séu upp­full af rang­hug­myndum og að þau ljúgi fyrir hönd mæðra sinna og að baki þeim standi fem­inísk sam­tök,“ segir Steinunn. „Sjálf­sagt eru til dæmi þess að börnum sé beitt á ósann­gjarnan hátt þegar kemur að skiln­aði for­eldra, en þetta er ekki fag­fólkið sem ætti að vera að fræða okkur um það.“

Flókin og erfið mál

Dofri Her­manns­son, for­maður Félags um for­eldra­jafn­rétti, segir Woodall-hjónin halda nám­skeiðið með milli­göngu félags­ins og að þau séu sér­fræð­ingar á þessu sviði. Hvetur hann alla sem áhuga hafa að sækja sér fræðslu um málið.

Dofri Her­manns­sonFormaður Félags um for­eldra­jafn­rétti segir fyr­ir­les­ar­ana vera sér­fræð­inga í mála­flokknum.

„For­eldra­úti­lokun er þegar annað for­eldrið beitir þekktum aðferðum til að slíta sam­bandi barns­ins við hitt for­eldrið,“ segir hann. „Þetta er tækni sem er ekk­ert síður notuð af feðrum en mæðrum og til okkar leit­uðu á síð­asta ári fleiri mæður en feður. Þeim mæðrum er lít­ill greiði gerður með að taka þetta niður í nafni femín­isma þar sem þetta er útmálað sem hug­tak sem ofbeld­is­fullir feður nota til að halda áfram að ofsækja börn sín og fyrr­ver­andi eig­in­konur.“

Woodall-hjónin halda tvö nám­skeið á vegum félags­ins. Annað er fyrir for­eldra og aðra úti­lok­aða aðstand­endur eða börn sem telja sig hafa verið beitt til­finn­inga­mis­notkun. Hitt er ætlað barna­vernd­ar­starfs­mönnum, sátta­mönnum, sál­fræð­ingum, félags­fræð­ingum, félags­ráð­gjöfum, lög­mönnum, dóm­urum og öðrum sér­fræð­ingum.

Dofri segir deilur um hug­takið „for­eldra­úti­lokun“ hafa í raun verið fag­manna­deilu, en á tíma­bili var reynt að skil­greina „for­eldrafirr­ing­ar­heil­kenni“ sem sér­stakan kvilla í sál­fræði. „Karen og Nick Woodall eru tví­mæla­laust meðal færasta fólks­ins á þessu sviði og hik­laust gott fag­fólk,“ segir Dofri. „Við viljum ekki taka þátt í leðjuslagnum, heldur fá færasta fólk heims­ins hingað til að tala milli­liða­laust við þá sem eru að reyna að leysa úr þessum hrika­lega flóknu og erf­iðu málum.“

Hann segir for­eldra­úti­lokun vera and­legt ofbeldi gagn­vart börnum þar sem þeim er inn­rættur ótti og jafn­vel fyr­ir­litn­ing gagn­vart öðru for­eldr­inu. Mik­il­vægt sé þó í þessum málum að úti­loka fyrst að raun­veru­legt heim­ilis- eða kyn­ferð­is­of­beldi hafi átt sér stað, en að skýr grein­ar­munur sé á ein­kennum barna eftir því um hvort sé að ræða. „Það eru mjög margir og sterkir hópar, sér­stak­lega hópar í nafni femín­isma, sem vilja taka umræðu um for­eldra­úti­lokun niður í skot­grafir kynja­stríðs,“ segir hann. „En það er mis­skiln­ingur, sem þær virð­ast hafa hag af að halda uppi.“

Gagnrýnir femínista ítrekað á bloggi sínu

Karen og Nick Woodall stýra Family Separation Clinic, sem er stofnun sem sér­hæfir sig í skiln­að­ar­málum þar sem börn hafna sam­skiptum við annað for­eldrið. Karen skil­greinir sig sem „upp­gjaf­ar­femínista“ á blogg­síðu sinni, hafnar hug­tökum á borð við feðra­veldi og er gagn­rýnin á fem­inísk sam­tök og við­burði eins og Millj­arður rís á vegum UN Women þar sem sjónum er beitt að kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Millj­arður rísVið­burður UN Women hefur verið hald­inn víða um heim til að mót­mæla kyn­bundnu ofbeldi.

„Kven­rétt­inda­þrýsti­hópar vilja ekki að umræða um heim­il­is­of­beldi fari að snú­ast um geð­heil­brigð­is­mál því það mundi taka okkur út úr póli­tísku nálg­un­inni á feðra­veldi sem er til­bún­ing­ur­inn sem femínistar nota til þess að öðl­ast og við­halda stjórn í kynja­stríð­unum sem þetta skapar,“ skrif­aði hún á síðu sína nýverið.

„Sú hug­mynd að allir karl­menn séu hættu­legir börnum sínum þar til annað er sannað [...] er afurð kynja­stríðs­ins“

„Er feðra­veldið til? Eru allir menn í grunn­inn með for­rétt­indi umfram konur? Ég geng um götur London og sé heim­il­is­lausa, nær alfarið karl­menn, og ég veit að þessi til­bún­ingur byggir ekki á raun­veru­leik­anum. Lífið er ekki eins auð­velt að greina og kynja­stríðs­menn­irnir vilja að við trúum. Sambönd barna við for­eldra eftir skilnað eru ekki hluti af kynja­stríð­inu og sú hug­mynd að allir karl­menn sé hættu­legir börnum sínum þar til annað er sannað [...] er afurð kynja­stríðs­ins sem við þurfum að kom­ast yfir.“

Þá var Karen ávítt af sam­tökum breskra sál­fræð­inga árið 2015 með ein­róma ákvörðun nefndar þess efnis að hún hefði framið brot í starfi með kæru­leysi og ófull­nægj­andi fag­legri þjón­ustu sem hafi verið langt undir við­miðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindi feðra

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár