„Þegar ég segi tímabundið ástand myndi ég halda einhverjir mánuðir í viðbót“

Alma Möller land­læknir segir við­búið að far­ald­ur­inn standi í nokkra mán­uði í við­bót og að ekki sé ólík­legt að end­ur­taka þurfi bólu­setn­ingar í fram­tíð­inni, m.a. vegna hinna nýju afbrigða veirunnar.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Lögreglan

Átta greindust inn­an­lands í gær og voru fimm þeirra utan sótt­kvíar við grein­ingu. „Við erum áfram að sjá tölu­verðan fjölda grein­ast dag­lega inn­an­lands,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Flestir hafa verið í sótt­kví en nokkrir utan hennar sem erfitt er að rekja.

„Ákveðnar vís­bend­ingar eru um að þessi hópur gæti nú verið að fara vax­andi,“ sagði Þórólfur og tók fram að rakn­ing stæði enn yfir og beðið væri eftir nið­ur­stöðum úr rað­grein­ingu smita gær­dags­ins. Á þess­ari stundu væru engar vís­bend­ingar um að þeir sem greindust utan sótt­kvíar tengd­ust. Öll greindust smitin á Suð­ur­vestur- og Suð­ur­landi. „Þetta er merki um það að við erum ekki búin að ná utan um sam­fé­lags­smit á þess­ari stundu.“

[adspot]

Frá því að inn­an­lands­að­gerðir voru hertar í síð­ustu viku hafa 38 greinst inn­an­lands. 28 voru í sótt­kví og 10 utan hennar. Öll smitin eru af völdum nokk­urra und­ir­teg­unda breska afbrigðis veirunnar.

Flest smitin tengj­ast smitum sem komu upp í grunn­skólum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hins vegar, sagði Þórólfur, má stóran hluta smita sem greinst hafa utan sótt­kvíar und­an­farna daga rekja til ferða­manns – eða ferða­manna – sem greinst hafði í seinni skimun „og virð­ist hafa farið óvar­lega í sinni fimm daga sótt­kví.“

Spurður frekar út í þetta sagði Þórólfur að þegar „nánar hafi verið að gáð“ hafi sést að hópur fólks var að grein­ast með sömu veiruna sem hægt var að rekja til landamær­anna. „Og þá sjáum við hvernig smitið hefur orðið og þannig höfum við getað lokað hringnum í nokkrum til­fellum.“

Búast má við alvarlegum veikindum

Sótt­varna­læknir segir því of snemmt að segja til um hvenær tak­ist að ná utan um þau smit sem eru í gangi núna en von­ast til að það verði á næstu tveimur vikum. Hann sagði við­búið að fleiri smit ættu eftir að greinst hjá þeim sem eru nú í sótt­kví. Einnig væri við­búið að alvar­leg veik­indi og inn­lagnir á sjúkra­hús ættu eftir að verða á næstu 1-2 vikum.

Hann telur því mik­il­vægt að halda áfram aðgerðum til að minnsta kosti 15. apríl.

Þórólfur sagð­ist ánægður með síð­ustu reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra um enn hert­ari aðgerðir á landa­mær­unum. Allir sem koma frá „dökk­rauðum“ löndum eru nú skikk­aðir til að afplána sína sótt­kví í sótt­varn­ar­húsum. Þetta á jafnt við útlend­inga sem Íslend­inga. Honum var bent á að Íslend­ingum búsettum erlendis þætti þetta mörgum heldur hart. Hann svar­aði því til að fyrir þessu væru góð og gild rök. Dæmin sýndu að fólk væri ekki „almenni­lega“ að halda sótt­kví og þess vegna verði að bregð­ast við því með þessum hætti. „Og þetta er aðferðin til að gera það.“

Hægt væri að sækja um und­an­þágur en „ég á von á því að þar verðum við eins ströng og mögu­legt er.“ Hann hélt svo áfram: „Við erum að reyna að vernda inn­viði hér á landi eins og mögu­legt er og þetta er til­raun til þess.“

Bóluefnin koma hraðar

Nokkur upp­taktur í bólu­setn­ingum er vænt­an­legur á næst­unni að sögn Þórólfs. Þannig á hann nú von á því að fyrir apr­íl­lok verði komið hingað til lands bólu­efni til að full­bólu­setja um 80 þús­und manns. Rétt yfir 20 þús­und hafa verið full­bólu­settir nú þegar.

Alma Möller land­læknir sagði á fund­inum að það færi að stytt­ast í að við náum und­ir­tök­unum i bar­átt­unni við far­ald­ur­inn. Spurð hvort líkur færu á því að bólu­setja þyrfti fólk reglu­lega í fram­tíð­inni fyrir COVID-19 sagði hún að svo gæti mögu­lega farið.

„Þegar ég segi tíma­bundið ástand myndi ég halda ein­hverjir mán­uðir í við­bót. Bóluefni eru að fara að ber­ast á meiri hraða og bólu­efna­fram­leið­endur eru að auka fram­leiðslu­getu sína. En þessi nýju afbrigði eru áhættu­þáttur. Allir fram­leið­endur eru að búa sig undir það að þurfa að breyta bólu­efn­unum í takti við ný afbrigði. Það getur verið að bæta þurfi nýrri bólu­setn­ingu ofan á þær sem við erum að fá núna. En mér þykir ólík­legt að það næðu að rísa jafn­stórar bylgjur þegar lengra verður komið í bólu­setn­ingu.

Hins vegar gætum við þurft að end­ur­taka bólu­setn­ingar. Við vitum til dæmis ekki hversu lengi vörn þeirra dugar. Allir eru að huga að því að þetta gæti jafn­vel verið með okkur lengur þó að við þurfum ekki jafn tak­mark­andi aðgerðir í fram­tíð­inni og við erum með núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár