Segir ríkisstjórn stefna að „sérstöku óskaskuldahlutfalli“ frekar en minnkuðu atvinnuleysi

Formaður Sam­fylk­ingar segir skulda­stöðu rík­is­ins afleið­ingu atvinnu­á­stands­ins og kallar eftir frek­ari aðgerðum til að minnka atvinnu­leysi. Rík­is­stjórnin hefur beitt sér til að milda höggið á efna­hags­lífið frá upp­hafi far­ald­urs að mati for­sæt­is­ráð­herra.

Logi Einarsson og Katrín Jakobsdóttir ræddu um efnahagslegar aðgerðir ríkisstjórnarinnar og atvinnuleysi í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag.
Logi Ein­ars­son og Katrín Jak­obs­dóttir ræddu um efna­hags­legar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar og atvinnu­leysi í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Mynd: Kjarninn/Samsett

Ekki verður hægt að vinna bug að skulda­stöðu rík­is­sjóðs nema atvinnu­leys­inu verði náð niður að mati Loga Ein­ars­sonar for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. Þetta sagði Logi í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í þing­inu í dag en hann beindi fyr­ir­spurn sinni til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Logi gaf lítið fyrir nýbirta fjár­mála­ætlun en sam­kvæmt henni verða á árinu fimm þús­und fleiri ein­stak­lingar atvinnu­lausir heldur en gert var ráð fyrir í síð­ustu fjár­mála­á­ætlun sem sam­þykkt var fyrir jól.

„Í kynn­ing­unni skautar rík­is­stjórnin svo algjör­lega fram hjá því að það er gert ráð fyrir fimm pró­senta atvinnu­leysi í lok tíma­bils­ins, árið 2023. Það er fimm­tíu millj­arða kostn­aður fyrir rík­is­sjóð á hverju ári og sá kostn­aður mun hald­ast um ókomna tíð ef ekki verður ráð­ist að rót vand­ans, sem er fjölda­at­vinnu­leysið,“ sagði Logi.

Logi vakti í kjöl­farið athygli á orða­notkun í fjár­mála­á­ætl­un­inni en þar er sagt að ef svart­sýn­ustu spár ganga eftir þá verði gripið til „afkomu­bæt­andi“ ráð­staf­ana. „Á skýr­ari íslensku heitir það nið­ur­skurður eða skatta­hækk­anir eða hvort tveggja. Það er ekk­ert sér­lega geðs­leg póli­tísk sýn sem felst í því að sætta sig við áfram­hald­andi atvinnu­leysi en hóta svo með ótil­greindum nið­ur­skurð­ar­til­lögum í lok tíma­bils­ins til þess eins að ná ein­hverju sér­stöku óska­skulda­hlut­falli,“ sagði Logi og bætti við að skulda­staðan væri afleið­ing atvinnu­á­stands­ins.

Segir aðgerðir ríkisstjórnar hafa minnkað samdrátt

Katrín sagði rík­is­stjórn­ina hafa beitt sér til þess að milda höggið á efna­hags­lífið í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. „Rík­is­stjórnin hefur frá fyrsta degi beitt sér fyrir aðgerðum til að draga úr efna­hags­legum og sam­fé­lags­legum afleið­ingum. Það eru póli­tískar ákvarð­anir, póli­tískar ákvarð­anir sem til að mynda snú­ast um að leggja áherslu á að halda skólum opnum þannig að atvinnu­lífið gæti haldið áfram að ganga sinn gang eins og mögu­legt var, þannig að ekki félli aukin byrði á konur umfram karla út af heims­far­aldri, póli­tískar ákvarð­anir sem fel­ast í því að kynna til sög­unnar bæði hluta­starfa­leið, lok­un­ar­styrki tekju­falls­styrki, við­spyrnu­styrki, hækkun atvinnu­leys­is­bóta og svo mætti lengi telja. Aðgerðir sem hafa skilað því að sam­drátt­ur­inn er minni en áður var spáð.“ [links]

Einka­neysla hafi þó að vegið að ein­hverju leyti upp á móti þeirri erf­iðu stöðu sem upp er komin og hún dregið úr sam­drætti að sögn Katrínar. Hún sagði rík­is­stjórn­ina hafa beitt sér fyrir því að fólk hafi getað haldið ráðn­ing­ar­sam­bandi með hluta­starfa­leið­inni en nú stæði til að draga úr lang­tíma­at­vinnu­leysi með nýjum aðgerðum undir yfir­skrift­inni „Hefjum störf.“

„Það er risa­stórt verk­efni sem mun skipta veru­legu máli til að draga úr lang­tíma­at­vinnu­leysi, koma fólki aftur út á vinnu­mark­að­inn því það er sam­fé­lags­legt böl ef hér verður áfram lang­tíma­at­vinnu­leysi,“ sagði Katrín undir lok fyrri ræðu sinnar.

Verið sé að „sætta sig við langtímaatvinnuleysi“

Logi steig í pontu öðru sinni og sagði aðgerð­irnar ekki nógu miklar. „Þær aðgerðir sem gripið er til, þær eru ekki nógu miklar og það er verið að sætta sig við lang­tíma­at­vinnu­leysi hér í landi,“ sagði hann.

Þá sagði Logi efna­hags­sam­drátt­inn bitna fyrst og fremst á konum, ungu fólki og fólki af erlendum upp­runa. Hann sagði fjórð­ung launa­fólks eiga í vanda með að láta enda ná saman og helm­ingur atvinnu­lausra. Hann spurði Katrínu loks hvort hún deildi þeirri sýn með fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­syni, að sjálf­bærni rík­is­bú­skapar snú­ist um til­tekna skulda­stöðu til skamms tíma frekar en að ná niður atvinnu­leysi „og skapa örugga atvinnu fyrir fólk og minnka ójöfnuð í þessu landi.“

Atvinnuleysi ógni jöfnuði

Katrín sagði að það væri ótíma­bært að tala um hvaða áhrif kór­ónu­kreppan hefði haft á stöðu jafn­aðar hér á landi en að hann hafi verið mestur í Evrópu fyrir heims­far­aldur. Mesta hættan fyrir jöfnuð stafi hins vegar af lang­tíma­at­vinnu­leysi og því hafi aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar snú­ist um að tryggja ráðn­ing­ar­sam­band fólks, tryggja afkomu þessu og að tryggja að hér séu sköpuð fleiri störf að sögn Katrínar.

„Við munum sjá núna aukn­ingu Í fjár­fest­ingu rík­is­ins, það hefur tölu­vert verið rætt um opin­bera fjár­fest­ingu og hlut ríkis og hlut sveit­ar­fé­laga í henni, þar sem við erum líka að skapa störf,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár