Janet Yellen, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, gæti náð samkomulagi við Efnahags- og framfarastofnunina (OECD) um samning á milli rúmlega 140 landa um lágmarksskattheimtu á fyrirtæki. Samningurinn gæti einnig innihaldið breytingu í skattlagningu á netfyrirtækjum, en ef samningaviðræður Yellen við OECD eru árangursríkar gæti hann verið tilbúinn í sumar. Þetta kemur fram í frétt á vef Washington Post sem birt var í gær.
Tvær tillögur frá OECD
Í fréttinni segir að áætlanir ríkisstjórnar Bandaríkjanna um að hækka fyrirtækjaskatta til að fjármagna stækkun heilbrigðiskerfisins og innviðauppbyggingu þar í landi hafa mætt nokkurri gagnrýni úr röðum repúblikana. Samkvæmt þeim myndi slík skattlagning draga úr samkeppnishæfni bandarískra fyrirtækja og hvetja til þess að þau flyttu úr landi.
[links]Yellen hefur mætt þeirri gagnrýni með því að leita leiða til að búa til gólf á fyrirtækjaskatta á heimsvísu, en með því myndi samkeppnishæfni Bandaríkjanna ekki skerðast jafnmikið þótt skattlagning á fyrirtækjum jykist.
Hún hefur nú staðið í samningaviðræðum við OECD, sem leiðir sameiginlegt átak yfir 140 landa í að setja á fót alþjóðlega skatta með tveimur tillögum.
Önnur tillagan snýr að lágmarkssköttum fyrirtækja, en samkvæmt fréttinni er stefnt að því að löndin komi sér saman um lágmark á skattlagningu á hagnaði. Lágmarkið yrði ekki bundið í lög, en ríkisstjórnir þátttökulanda gætu innheimt viðbótarskatt af starfsemi fyrirtækja sinna í öðrum löndum þar sem lágmarksskatturinn væri ekki innheimtur. Ekki er enn ákveðið hvert lágmarkið yrði, en samkvæmt Washington Post gæti það verið í kringum 12 prósent af hagnaði fyrirtækja.[adspot]
Hin tillaga OECD snýr hins vegar að skattlagningu alþjóðlegra fyrirtækja sem starfa á netinu, en samtökin vilja skattleggja starfsemi fyrirtækjanna í þeim löndum þar sem notendur þeirra eru staddir, í stað þess að þau séu einungis skattlögð í löndunum sem þau eru skráð.
Breyttur tónn en áskorun að ná í gegnum þingið
Hingað til hafa stjórnvöld í Bandaríkjunum ekki verið jákvæð í garð þessarar tillögu, þar sem mörg netfyrirtækjanna eru skráð í Bandaríkjunum og skattlögð þar. Breyting á skattlagningu þeirra gætu því dregið úr skatttekjum þar í landi.
Hins vegar má greina breyttan tón gagnvart þessu ákvæði hjá Yellen, en á fundi G20 ríkjanna í síðasta mánuði sagði fjármálaráðherrann að Bandaríkin myndu ekki lengur vera griðarstaður fyrir netfyrirtæki sem væru á flótta undan skattlagningu. Samkvæmt Washington Post merkja þessi ummæli að Bandaríkin séu tilbúin til að gefa eitthvað eftir í afstöðu sinni gagnvart slíkri skattlagningu.
Ef Bandaríkin komast að samkomulagi við OECD um skattlagningu á netfyrirtækjum gæti farið svo að samkomulag myndi einnig myndast um lágmark fyrirtækjaskatts á heimsvísu. Hins vegar bætir Washington Post við að slíkt samkomulag þyrfti að fara í gegnum Bandaríkjaþing, sem gæti reynst erfitt í ljósi sterkra ítaka tæknifyrirtækjanna á meðal þingmanna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir