Kennir sveitarfélögum um samdrátt í opinberri fjárfestingu

Þing­maður Við­reisnar segir rík­is­stjórn­ina ekki hafa efnt lof­orð um aukna inn­viða­fjár­fest­ingu. Fjár­mála­ráð­herra segir sveit­ar­fé­lögin bera ábyrgð á því að opin­ber fjár­fest­ing hafi dreg­ist saman en tölur frá Samtökum Iðn­að­ar­ins segja aðra sögu.

„Við höfum staðið við það sem lofað var,“ sagði Bjarni Benediktsson um opinberar fjárfestingar á þingi í dag.
„Við höfum staðið við það sem lofað var,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son um opin­berar fjár­fest­ingar á þingi í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Sveit­ar­fé­lögin hafa algjör­lega dregið að sér höndum í opin­berum fjár­fest­ingum að mati Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra. Þetta sagði Bjarni í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag eftir fyr­irpsurn frá Jóni Stein­dóri Valdi­mars­syni, þing­manni Við­reisnar, um sam­drátt í opin­berum fjár­fest­ingum.

„Þegar við skoðum opin­beru fjár­fest­ing­una upp­skipt milli ríkis og sveit­ar­fé­laga þá sjáum við mjög skýrt að við höfum staðið við það sem var lofað var, að auka við fjár­fest­ingu rík­is­ins. Og það sem meira er, við höfum fjár­magnað hluti sem að enn eiga eftir að koma til fram­kvæmda þannig að ég hef vænt­ingar um að við fáum dálítið sterka bylgju með okkur inn í árið 2021,“ sagði Bjarni meðal ann­ars í svari sínu.

Þörfin fyrir inngrip skýr

Í fyr­ir­spurn sinni sagði Jón Steindór rík­is­stjórn­ina ekki hafa gengið rösk­lega til verks í opin­berum fjár­fest­ingum og vís­aði í gögn um opin­bera fjár­fest­ingu sem segja að hún hafi dreg­ist saman um 9,3 pró­sent á árinu 2020 en 10,8 pró­sent árið á undan. Þá hafi var þörfin fyrir inn­grip af hálfu hins opin­bera þegar verið orðin „æpandi“ að mati Jóns Stein­dórs vegna merkja um sam­drátt í efna­hags­líf­inu.

Jón Steindór minnt­ist lof­orða stjórn­ar­flokk­anna um mikla inn­viða­upp­bygg­ingu í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga. „Einn þeirra lof­aði 100 millj­örðum og mætti því ætla að hann hafi verið til­bú­inn með áætlun. Ekki síst þess vegna vekur það sér­staka undrun að sjá hve illa und­ir­búið fram­kvæmda­valdið er fyrir að setja af stað lyk­ilfram­kvæmdir og fjár­fest­ingar á þeim tíma þegar að nauð­syn­legt hefði verið að beita þeim verk­færum í hag­stjórn­inni.“

Hann sagði fjár­mála­ráð­herra einnig vera tíð­rætt um sterka stöðu rík­is­sjóðs og hversu vel sú staða reynd­ist okkur nú þegar kreppir að. Hann sagði rík­is­stjórn­ina hafa lofað auknum útgjöldum og sér­stak­lega til fjár­fest­inga í innviðum í fjár­lögum og fjár­auka­lögum en ekki efnt þau lof­orð. „Gögnin sýna svart á hvítu að fjár­fest­ingin hefur ekki skilað sér. Loforðið hefur ekki verið efnt. Ég spyr hæst­virtan fjár­mála­ráð­herra hvernig útskýrir hann þennan mikla sam­drátt í opin­berum fjár­fest­ingum og er þetta að hans mati vottur um góða hag­stjórn í dýpstu kreppu síð­ari tíma,“ sagði Jón Steindór.

Kreppan ekki jafn djúp og búist var við

Bjarni svar­aði því til að aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar hafi skilað sér gríð­ar­lega vel. „Það birt­ist okkur meðal ann­ars í því að við stöndum núna ekki lengur í dýpstu kreppu í 100 ár heldur er sam­drátt­ur­inn á árinu 2020 tölu­vert minni en áður var spáð,“ sagði Bjarni en tók fram að þar spila aðrir þættir inn í, svo sem einka­neysla og fjár­fest­ing atvinnu­lífs­ins.

Líkt og áður var minnst á sagði Bjarni það skipta meg­in­máli þegar horft er til sam­dráttar í opin­berri fjár­fest­ingu að sveit­ar­fé­lögin hafi haldið að sér höndum. Hann sagði rík­is­stjórn­ina hafa staðið við það sem lofað var, að auka við fjár­fest­ingu rík­is­ins auk þess sem nú væri búið að fjár­magna verk­efni sem eiga eftir að koma til fram­kvæmda. Þá sagði hann að fjár­fest­ing­ar­á­tak rík­is­stjórn­ar­innar hafi fyrst og fremst verið efna­hags­að­gerð þar sem áhersla yrði lögð á mál sem væru þjóð­hags­lega mik­il­væg, að verk­efnin sem ráð­ist yrði í væru mann­afls­frek og að verk­efnin myndu veita mót­vægi við þeim sam­drætti sem þegar var far­inn að mynd­ast

Verðmæti framkvæmda minna en áætlað var

Eftir síð­asta Útboðs­þing Samtaka iðn­að­ar­ins sendu sam­tökin frá sér grein­ingu á fjár­fest­ingum hins opin­bera. Þar kemur fram að heild­ar­verð­mæti allra opin­berra fram­kvæmda á síð­asta ári hafi verið 29 pró­sentum minna heldur en boðað var á Útboðs­þing­inu í fyrra. Úr þess­ari grein­ingu má lesa að rík­is­stofn­anir- og fyr­ir­tæki fram­kvæmdu mun minna á árinu 2020 heldur en áætlað var á Útboðs­þingi 2020.

Á útboðs­þingi 2020 var heild­ar­verð­mæti áætl­aðra útboða lang­mest hjá Vega­gerð­inni, alls 38,7 millj­arðar króna. Fram­kvæmdir Vega­gerð­ar­innar á árinu námu hins vegar 31,1 millj­örðum króna, um 20 pró­sentum minna en til stóð. Það rík­is­fyr­ir­tæki sem komst næst Vega­gerð­inni í heild­ar­verð­mæti áætl­aðra útboða árið 2020 var ISAVIA. Verðmæti áætl­aðra útboða félags­ins nam 21 millj­arði en fram­kvæmt var fyrir 0,2 millj­arða á árinu. Þar á eftir kom Nýi Land­spít­al­inn með áætluð útboð upp á tólf millj­arða en fram­kvæmdir fyrir 11,4 millj­arða.

Á milli Vega­gerð­ar­innar og ISAVIA í verð­mæti áætl­aðra útboða á Útboðs­þingi 2020 var Reykja­vík­ur­borg. Áætlað verð­mæti útboða borg­ar­innar var 19,6 millj­arðar en þegar upp var staðið var fram­kvæmt fyrir 21,1 millj­arð á árinu. Á list­anum má einnig finna félög í eigu sveit­ar­fé­laga, svo sem Veitur, Orku Nátt­úr­unnar og Faxa­flóa­hafnir. Veitur fóru einnig fram úr áætlun, fram­kvæmdu fyrir 9,2 millj­arða sam­an­borið við 8,8 millj­arða áætlun. Bæði Orka nátt­úr­unnar og Faxa­flóa­hafnir fram­kvæmdu hins vegar fyrir brot af því sem áætlað var. Áætluð útboð Orku nátt­úr­unnar námu 4,5 millj­örðum en fram­kvæmt var fyrir hálfan millj­arð og áætluð útboð Faxa­flóa­hafna námu 2,2 millj­örðum en fram­kvæmt var fyrir 0,2.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár