Vilja gera það refsivert að afneita helförinni

Tveggja ára fang­elsi gæti legið við því að afneita eða gera gróf­lega lítið úr hel­för­inni gegn gyð­ingum í seinni heim­styrj­öld­inni, ef nýtt frum­varp sem lagt hefur verið fram á þingi nær fram að ganga.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, sem myndi gera afneitun helfararinnar refsiverða á Íslandi.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins, sem myndi gera afneitun helfar­ar­innar refsi­verða á Íslandi. Mynd: Bára Huld Beck

„Hver sá sem opin­ber­lega afneitar, gróf­lega gerir lítið úr, eða reynir að rétt­læta eða sam­þykkja þjóð­ar­morð sem framin voru á vegum þýska nas­ista­flokks­ins í síð­ari heims­styrj­öld­inni skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 2 árum,“ segir í nýju frum­varpi til breyt­inga á almennum hegn­ing­ar­lögum, sem lagt hefur verið fram á Alþingi. 

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Allir aðrir þing­menn Sam­fylk­ingar og Andrésar Ingi Jónsson þing­maður utan flokka og Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar eru með­flutn­ings­menn.

Í grein­ar­gerð segir að frum­varpið eins og það er lagt fram fari ekki í bága við tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði stjórn­ar­skrár, þar sem tak­mörk­unin sé bundin við það eitt að afneita hel­för­inni. Einnig sé þessi tak­mörkun tján­ing­ar­frelsis nauð­syn­leg og sam­ræm­ist lýð­ræð­is­hefðum. Refsiramm­inn sem lagður er til er sá sami og í ákvæðum almennra hegn­ing­ar­laga um hat­ur­orðs­ræðu.

[adspot]

„Tak­mörk­unin felur í sér bann við því að afneita opin­ber­lega einna verstu glæpum sem framdir hafa verið gegn mann­kyni. Glæpir sem bæði í sögu­legu sam­hengi sem og land­fræði­legu standa nærri Íslandi. Nauð­syn­legt er að standa vörð um sögu þess­ara hörm­unga sem áttu sér stað á tímum seinni heims­styrj­ald­ar­innar og koma í veg fyrir að unnt verði að grafa undan henni, gera lítið úr, rang­færa eða falsa svo að slíkir atburðir end­ur­taki sig aldrei. Þótt ekki hafi svo ein­hverju nemi reynt á tján­ingu af því tagi sem frum­varp­inu er stefnt gegn er mik­il­vægt að vera á varð­bergi og fyr­ir­byggja hana eftir því sem unnt er. Þá er haft í huga að í mörgum nágranna­löndum hafa glæpir byggðir á gyð­inga­andúð auk­ist og sam­tökum sem ala á kyn­þátta­hatri vaxið fiskur um hrygg,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Víða bannað að afneita helförinni

[links]

Vísað er til þess að Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að bann við tján­ingu gegn hel­för­inni sam­ræmd­ist mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.

„Fjölmörg Evr­ópu­ríki hafa gert það refsi­vert að afneita eða rétt­læta hel­för­ina, þjóð­ar­morð eða stríðs­glæpi. Finna má slíkt í lögum Aust­ur­ríkis, Belgíu, Frakk­lands, Grikk­lands, Hollands, Ítalíu, Ísraels, Liechtenstein, Litáens, Lúx­em­borgar, Póllands, Portú­gals, Rúmeníu, Rúss­lands, Slóvakíu, Spánar, Sviss, Tékk­lands, Ung­verja­lands, Úkraínu og Þýska­lands,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Samfélagsmiðlatjáning gæti talist refsiverð

Í umfjöllun um 1. gr. frum­varps­ins segir að form tján­ingar sem talist gæti refsi­verð geti verið með ýmsu móti, t.d. prentuð eða munn­leg eða á öðru formi, eins og í listum eða athöfnum.

Einnig er gert ráð fyrir að tján­ingin sem yrði refsi­verð fari fram opin­ber­lega og falli því ekki undir einka­sam­töl. Tjáning á sam­fé­lags­miðlum gæti í þessum skiln­ingi talist opin­ber. „Það verður þó að meta í hverju til­viki fyrir sig,“ segja flutn­ings­menn frum­varps­ins.

Svo er afmarkað hvaða opin­bera tján­ing gæti orðið refsi­verð. „Fyrst er það afneitun en þá er átt við tján­ingu þar sem tekið er fram að atburð­irnir eða hluti af þeim hafi ekki átt sér stað. Einnig að gera lítið úr þeim en það er þó háð því að það sé gert gróf­lega. Loks ef atburðir eru rétt­lættir eða sam­þykktir en það felur í sér stuðn­ing eða jákvætt við­horf til þeirra. Í fjórða lagi er and­lag tján­ing­ar­innar þjóð­ar­morð sem nas­istar frömdu á tímum seinni heims­styrj­ald­ar­innar en um var að ræða kerf­is­lega útrým­ingu á gyð­ingum,“ segir í skýr­ingum frum­varps­ins.

Bókatíðindi og umsögn til Alþingis

Örfá dæmi um afneitun helfar­ar­innar hafa verið til umfjöll­unar á Íslandi und­an­farna mán­uði. Núna fyrir jól varð tölu­vert fjaðrafok vegna útgáfu Bóka­tíð­inda, en þar var að finna kynn­ingu á bók­inni Trölla­saga 20. ald­ar­innar, íslensk þýð­ing bók­ar­innar The Hoax of the Twentieth Century: The Case Against the Presumed Extermination of European Jewry eftir Arthur R. Butz. Bókin kom út árið 1976, en þar er dregið í efa að hel­för nas­ista hafi átt sér stað.

Einnig var sagt frá því í byrjun des­em­ber að umsögn um þing­mál, n.t.t. þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að halda minn­ing­ar­dag um fórn­ar­lömb helfar­ar­innar 27. jan­úar ár hver, var fjar­lægð af vef Alþingis vegna efa­semda sem þar voru settar fram um hel­för­ina gegn gyð­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helförin

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár