Afneitun helfararinnar sögð geta leitt til uppgangs nasisma

Í umsögn Gyð­inga­safn­að­ar­ins á Íslandi við frum­varp um bann við afneitun helfar­ar­innar segir að aukin menntun og fræðsla í bland við fjöl­breytni og umburð­ar­lyndi sé með­alið við for­dómum. Ein umsögn um frum­varpið var send inn algjör­lega svert.

Gyð­inga­söfn­uð­ur­inn á Íslandi fagnar nýju frum­varpi um breyt­ingu á almennum hegn­ing­ar­lögum sem bannar afneitun helfar­ar­innar. Þetta kemur fram í umsögn safn­að­ar­ins við frum­varpið sem rabbín­inn Avraham Feldman sendir til Alþingis fyrir hönd safn­að­ar­ins. Avraham seg­ist vera ánægður með laga­breyt­ing­ar­til­lög­una, honum finn­ist hún mik­il­væg og hann styðji hana heils­hugar.

Í umsögn­inni er afneitun helfar­ar­innar sögð vera hat­urs­orð­ræða sem geti leitt til upp­risu og fram­gangs nas­isma. Það sé á ábyrgð alls mann­kyns að tryggja það að ras­ismi og hatur fái ekki þrif­ist í sam­fé­lag­inu. Því megi ná fram með auk­inni menntun og fræðslu auk þess sem gefa þurfi fjöl­breytni og umburð­ar­lyndi hátt undir höfði. Þá sé mik­il­vægt að stöðva nas­isma um leið og vart verður við hann.

Sekt eða fangelsisvist í allt að tvö ár.

Með frum­varp­inu er lagt til að ný grein fari inn í almenn hegn­ing­ar­lög og er greinin á þessa leið: „Hver sá sem opin­ber­lega afneitar, gróf­lega gerir lítið úr, eða reynir að rétt­læta eða sam­þykkja þjóð­ar­morð sem framin voru á vegum þýska nas­ista­flokks­ins í síð­ari heims­styrj­öld­inni skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 2 árum.“

Frum­varpið var lagt fram í jan­úar af þing­flokki Sam­fylk­ingar, Andrési Inga Jónssyni, þing­manni Pírata sem þá var utan flokka, og Þor­björgu Sigríði Gunn­laugs­dóttur, þing­konu Við­reisnar. Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir.

Takmörkun tjáningarfrelsisins standist stjórnarskrá

Sér­stak­lega er vikið að tján­ing­ar­frels­inu í grein­ar­gerð frum­varps­ins og rök færð fyrir því hvers vegna sú tak­mörkun á tján­ing­ar­frels­inu sem fólgin er í frum­varp­inu stand­ist stjórn­ar­skrá. Í fyrsta lagi er sagt að frum­varpið full­nægi laga­á­skiln­aði þriðju máls­greinar 73. greinar stjórn­ar­skrár­innar til að tak­marka tján­ing­ar­frelsið. Í þeirri máls­grein er að finna þrjú skil­yrði fyrir því að tján­ing­ar­frels­inu séu settar skorður: „Tján­ing­ar­frelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu alls­herj­ar­reglu eða öryggis rík­is­ins, til verndar heilsu eða sið­gæði manna eða vegna rétt­inda eða mann­orðs ann­arra, enda telj­ist þær nauð­syn­legar og sam­rým­ist lýð­ræð­is­hefðum.“ [links]

Þá er í grein­ar­gerð­inni sagt að frum­varpið hafi þann til­gang að vernda rétt­indi eða mann­orð ann­arra, sem er eitt af skil­yrð­unum sem minnst var á áður, þar sem frum­varp­inu er ætlað að koma í veg fyrir að brotið sé gegn æru og mann­orði þeirra sem urðu fyrir glæpum helfar­ar­innar. Einnig er sagt að tak­mörk­unin sam­ræm­ist lýð­ræð­is­hefðum því hún felur í sér bann við því að afneita opin­ber­lega einna verstu glæpum sem framdir hafa verið gegn mann­kyni, eins og segir í grein­ar­gerð. Nauð­syn­legt sé að „standa vörð um sögu þess­ara hörm­unga sem áttu sér stað á tímum seinni heims­styrj­ald­ar­innar og koma í veg fyrir að unnt verði að grafa undan henni, gera lítið úr, rang­færa eða falsa svo að slíkir atburðir end­ur­taki sig aldrei.“

Refsivert að afneita helförinni í fjölmörgum Evrópuríkjum

Vísað er í dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í máli Pastörs gegn Þýska­landi frá árinu 2019 í grein­ar­gerð­inni. Pastörs dró í efa til­vist helfar­ar­innar í ræðu sem hann flutti árið 2010 en hann var þing­maður í Þýska­landi. Pastörs var í kjöl­farið dæmdir í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að hafa brotið gegn þýskum hegn­ing­ar­lögum með tján­ingu sinni. Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að bann við tján­ingu Pastörs sam­ræmd­ist mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.

„Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu taldi full­yrð­ingar hans fela í sér van­virð­ingu gagn­vart fórn­ar­lömbum helfar­ar­innar. Í dóm­inum kom meðal ann­ars fram að Pastörs hefði vilj­andi haft í frammi ósann­indi til að varpa rýrð á gyð­inga og þær ofsóknir sem þeir urðu fyrir í seinni heims­styrj­öld­inni. Jafn­framt taldi Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn að með sak­fell­ing­unni hefðu við­brögð þýskra yfir­valda verið í sam­ræmi við með­al­hóf og ekki farið í bága við áskilnað um að þau væru nauð­syn­leg í lýð­ræð­is­legu þjóð­fé­lagi,“ segir í grein­ar­gerð.

Þá eru þar talin upp þau Evr­ópu­ríki sem hafa gert það refsi­vert að afneita eða rétt­læta hel­för­ina, þjóð­ar­morð eða stríðs­glæpi. Það eru Aust­ur­ríki, Belgía, Frakk­land, Grikk­land, Holland, Ítalía, Ísrael, Liechtenstein, Litáen, Lúx­em­borg, Pólland, Portúgal, Rúmenía, Rússland, Slóvakía, Spánn, Sviss, Tékkland, Ung­verja­land, Úkraína og Þýska­land.

Ein umsögn um frumvarpið svert

Áður hefur verið fjallað um umsögn sem barst um frum­varpið sem er á „Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd Alþingis, rit­skoð­un­ar­deild“ en umsögnin er öll svert. Í svari Rögnu Árna­dóttur við fyr­ir­spurn Kjarnans um ástæður þess að umsögnin sé svert kemur fram að umsögnin sé birt eins og hún barst Alþingi. Hún hefur því verið send inn yfir­strikuð.

Í frétt RÚV frá því fyrr í þessum mán­uði segir að umsögn um svipað efni hafi verið fjar­lægð af vef Alþingis í des­em­ber. Sú umsögn var send inn við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um sér­stakan minn­ing­ar­dag um fórn­ar­lömb helfar­ar­innar. Laga­skrif­stofa Alþingis hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekki væri hægt að úti­loka að í umsögn­inni fælist hat­urs­orð­ræða. Því var lagt til að Alþingi birti ekki þá umsögn enda bannað með lögum að breiða út hat­urs­orð­ræðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helförin

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár