Mest lesnu pistlar ársins: Samherji, kynbundið ofbeldi og íslensk sumarkvöld

Baráttan gegn kyn­bundnu ofbeldi var umfjöll­un­ar­efni fimm af tíu mest lesnu pistlum Stund­ar­innar, en þar var einnig fjallað um Sam­herj­a­skjölin, stétta­skipt­ingu, íslensk sum­ar­kvöld og umdeildan gjörn­ing Hatara.

Mest lesnu pistlar ársins: Samherji, kynbundið ofbeldi og íslensk sumarkvöld

1 Sómakennd Samherja 

Mest lesni pist­ill árs­ins fjall­aði um Sam­herj­a­skjölin. Þar sagði frá því hvernig Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hefur tekið sér hlut­verk þol­anda í íslensku sam­fé­lagi. Hann hefur kvartað undan „árásum“ eft­ir­lits­að­ila og reynt að fá þá í fang­elsi. Í ljós er komið að Samherji stendur fyrir stór­felldum mútu­greiðslum til að ná undir sig fisk­veiði­kvóta.

Leiðari eftir Ingi­björg Döggu Kjart­ans­dóttur og Jón Trausta Reyn­is­son. 

Birtist 12. nóvember. 

54623 lásu.

4.400 líkaði við.

2 Þegar ég trúði því að ég væri í millistétt 

Hún fædd­ist á svip­uðum tíma og ójöfn­uður marg­fald­að­ist í íslensku sam­fé­lagi en taldi sér alltaf trú um að hún væri í milli­stétt því sann­nleik­ur­inn var of sár. Skömmin var samt alltaf þarna. Skömmin yfir nest­inu, föt­unum, blokk­inni, því að hún gæti ekki æft íþróttir eða lært á hljóð­færi.

Höfundur Alma Mjöll Ólafs­dóttir. 

Birtist 5. febrúar. 

49702 lásu. 

5.700 líkaði við.

3 Hin stóra fréttin er að birtast okkur

Stundin hélt áfram umfjöllun um Sam­herj­a­skjölin. „Fallegt veður, finnst mér hérna úti,“ svar­aði Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja um mútu­málið, áður en hann kvart­aði undan ein­hliða umfjöllun. Þingmenn og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herrar tóku sig síðan til við að veita Samherja skjól og gott veður.

„Fallegt veður, finnst mér hérna úti“

Leiðari eftir Jón Trausti Reyn­is­son. 

Birtist 22. nóvember. 

48.012 lásu. 

2.300 líkaði við.

4 Að eigna sér baráttu annarra: Hatari í Eurovision

„Trúa þeir því virki­lega að listin í þessu til­felli hafi ein­hvern göfugan til­gang?“ spurði Nína Hjálm­ars­dóttir list­gagn­rýn­andi vegna þátt­töku Hatara í Eurovision.

Birtist 23. febrúar. 

4.000 líkaði við.

5 Kona féll fram af svölum

Fyrst kyn­bundið ofbeldi þrífst í íslensku sam­fé­lagi má biðja um að þeim konum sem þurfa að búa við það og verða fyrir því sé sýnd sú lág­marks­virð­ing að veru­leiki þeirra sé í það minnsta við­ur­kenndur?

Leiðari eftir Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir

Birtist 20. september. 

6.300 líkaði við.

6 Nauðgun af gáleysi

„Ástæða þess að ég ákvað loks­ins að skrifa þetta niður er frekar vand­ræða­leg, ég fór að gráta vegna þess að mér var ekki boðið í partí. Ég sat í her­berg­inu mínu heima hjá for­eldrum mínum, nýorðin 27 ára gömul, og eftir alla vinn­una sem ég hafði lagt á mig síð­asta ár þá grét ég vegna þess að ger­anda mínum var boðið í partí og þar af leið­andi var ég ekki vel­komin.“

Hvað á að gera ef vinur manns nauðgar? spurði Kristlín Dís. 

Birtist 27. febrúar. 

2.200 líkaði við. 

7 Hvernig þaggað var niður í þolendum

Það sem við lærðum af bisk­ups­mál­inu er þetta: Konurnar voru taldar ótrú­verð­ugar, vegið var að and­legri heilsu þeirra og ásetn­ing­ur­inn sagður ann­ar­legur. Þeir sem tóku afstöðu voru kall­aðir ofstæk­is­fólk og málið var þaggað niður. Hljómar kunnu­lega? Þessi mál­flutn­ingur hefur verið end­ur­tek­inn í hverju mál­inu á fætur öðru, nú síð­ast átti að afskrifa frá­sagnir sjö kvenna með því að dóttir manns­ins væri geð­veik.

Leiðari eftir Ingi­björgu Dögg Kjart­ans­dóttur.

Birtist 25. janúar. 

3.500 líkaði við. 

8 Hræðileg mistök í aðsigi: Til varnar sumarkvöldum

Meiri­hluti þjóð­ar­innar vill breyta klukk­unni þannig að birtu­stundum í vöku­tíma fækki veru­lega, að stórum hluta vegna þess að ung­lingar sofa of lítið. Til þess verður fórnað björtum síð­sum­ars­kvöldum og myrkum eft­ir­mið­dögum fjölgað á vetrum.

Höfundur Jón Trausti Reyn­is­son. 

Birtist 27. febrúar. 

5.700 líkaði við. 

9 Tími hinna klikkuðu kunta

Karlaklíka í Frakk­landi not­aði marg­vís­legar aðferðir til að nið­ur­lægja og ein­elta konur. Konur hafa lýst því hvernig aðferðir þeirra urðu til þess að þær misstu smám saman flugið og kuln­uðu í starfi. En kven­hat­rið hafði ekki slæm áhrif á feril karl­anna. Þvert á móti fengu þeir vax­andi völd og áhrif.

Höfundur Þórdís Elva Þor­valds­dóttir.

Birtist 8. mars. 

3.600 líkaði við. 

10 Saga Sigrúnar Pálínu - saga samfélags

Sigrún Pálína Ingv­ars­dóttir féll frá á árinu. Hennar verður minnst með þakk­læti fyrir hug­rekki, þraut­seigju og bar­áttu­vilja. 

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir skrif­aði leið­ara í minn­ingu hennar. 

Birtist 5. apríl.

4.800 líkaði við. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár