Útvarpsstjóri segir að það vanti 600 milljónir króna í rekstur RÚV á næsta ári

Stefán Eiríks­son segir að fyr­ir­sjá­an­legt sé að mæta þurfi skertu fram­lagi til RÚV úr rík­is­sjóði, sam­drætti í aug­lýs­inga­tekjum og auknum kostn­aði vegna COVID-19 með breyt­ingum og sam­drætti í dag­skrár­gerð og frétta­þjón­ustu RÚV.

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.
Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Aug­lýs­inga­tekjur RÚV verða um 300 millj­ónum króna lægri á árinu 2020 en áætlað var, beinn auk­inn kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins vegna hlut­verks RÚV í COVID-19 far­aldr­inum er hátt í 80 millj­ónir króna og geng­is­lækkun og aðrir liðir hafa hækkað fjár­magnsliði fyr­ir­tæk­is­ins um 90 millj­ónir króna.

Rekstr­ar­nið­ur­staða RÚV verður því 470 millj­ónum krónum verri í ár en stefnt var að. Þetta er meðan þess sem fram kemur í umsögn Stefáns Eiríks­sonar útvarps­stjóra um fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar.

Staðan á næsta ári, 2021, verður mun alvar­legri sögn Stefáns. Líkt og Kjarninn greindi frá í byrjun októ­ber er gert ráð fyrir því í fjár­laga­frum­varp­inu að fram­lög til RÚV úr rík­is­sjóði verði lækkuð um 310 millj­ónir króna milli ára og verði rúm­lega 4,5 millj­arðar króna. Þau voru rúm­lega 4,8 millj­arðar króna á yfir­stand­andi ári.

Heild­ar­fjár­heim­ild til fjöl­miðla, sem fjár­mögnuð er með að mestu með inn­heimtu útvarps­gjalds, er áætluð fimm millj­arðar króna. Það þýðir að 484 millj­ónir króna munu fara í eitt­hvað annað RÚV. Þar af fara 92 millj­ónir króna í rekstur Fjöl­miðla­nefndar en það sem út af stend­ur, 392 millj­ónir króna, er ætl­aður stuðn­ingur við einka­rekna fjöl­miðla.

[adspot]Stefán segir að nettó áhrif af fram­an­greindri lækkun útvarps­gjalds­ins séu mun meiri en 310 millj­ónir króna í ljósi þess að RÚV líkt og aðrir standi frammi fyrir verð­lags­hækk­unum á næsta ári í sínum rekstri, þar á meðal vegna nýrra kjara­samn­inga. Hann telur að það eigi að meta áhrifin á um 400 millj­ónir króna vegna þessa. Stefán segir auk þess að áfram sé gert ráð fyrir veru­legum sam­drætti í aug­lýs­inga­tekjum á næsta ári. „Árið 2021 mun því í heild vanta yfir 600 m. kr. í fjár­mögnun RÚV,“ skrifar Stefán í umsögn sína.

Samdráttur í fréttaþjónustu í pípunum

Hann segir ljóst að svo umfangs­mikil lækkun á tekjum, alls um tíu pró­sent hjá RÚV, veðri ekki mætt ein­ungis með frek­ari hag­ræð­ingu og nið­ur­skurði í yfir­stjórn og stoð­deildum RÚV, líkt og þegar hafi verið ráð­ist í. „Fyr­ir­sjá­an­legt er að mæta þurfi þessu með breyt­ingum og sam­drætti í dag­skrár­gerð og frétta­þjón­ustu RÚV.“

Stefán telur mik­il­vægt að Alþingi sé vel með­vitað um þau áhrif sem meðal ann­ars muni koma niður á getu RÚV til þess að mæta auk­inni eft­ir­spurn og kröfum um fréttir, upp­lýs­ingar, fræðslu og afþr­ey­ingu á þeim tímum sem nú eru. „Eins og öllum er kunn­ugt um hefur öll menn­ing­ar­starf­semi í land­inu verið mjög tak­mörkuð og í sumum til­vikum alfarið stöðvast vegna COVID-19. Við þessu hefur RÚV brugð­ist m.a. með fjöl­breyttri sam­vinnu við aðrar menn­ing­ar­stofn­anir um miðlun á efni og með þróun á eigin dag­skrá í takt við breyttar aðstæður og auknar kröfur. Miklar kröfur eru gerðar til RÚV í þeim efnum af hálfu ann­arra menn­ing­ar­stofn­ana og sam­taka lista­manna, en vand­séð er hvernig RÚV á að geta staðið undir öfl­ugri dag­skrár­gerð við þær fjár­hags­að­stæður sem blasa við.“

Stefnt að því að styrkja einkarekna miðla

Líkt og áður sagði þá er gert ráð fyrir að 392 millj­ónir króna af heild­ar­fjár­heim­ild til fjöl­miðla úr rík­is­sjóði fari í stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla. Slíkur stuðn­ingur hefur verið í deigl­unni árum saman og drög að frum­varp­inu voru fyrst kynnt af Lilju Alfreðs­dótt­ur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, í lok jan­úar 2019. Það kom­st hins vegar ekki á dag­­skrá vor­þings þess árs vegna mik­illar and­­stöðu við málið hjá hluta þing­­flokks Sjálf­­stæð­is­­flokks.

Í kjöl­farið voru gerðar breyt­ingar á frum­varp­inu til að koma til móts við þá and­stöðu. Í þeim fólst aðal­lega að stærstu fjöl­miðlar lands­ins myndu fá hærri styrkja­greiðslur en minni fjöl­miðlar myndu skerð­ast á mót­i.

Gert ráð fyrir stuðn­ings­greiðslum til fjöl­miðla í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árið 2020.

[links]Nýtt frum­varp, sem átti að leggj­ast fram í sept­em­ber 2019, lét þó á sér standa. Lilja mælti á end­anum ekki fyrir frum­varpi um að lög­festa slíkt styrkja­kerfi fyrr en í des­em­ber 2019. Frum­varpið var hins vegar svæft í nefnd, aftur að mestu fyrir til­stilli þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks, og fékk ekki afgreiðslu.

Þess í stað var ákveðið að taka þá fjár­muni sem búið var að heita í styrk­ina og breyta þeim í ein­skiptis neyð­ar­styrk vegna COVID-19. Lilju var falið að útfæra greiðslu þeirra í reglu­gerð. Það gerði hún í byrjun júlí.

Í reglu­gerð­inni var sú breyt­ing gerð á upp­runa­legri úthlut­un­ar­að­gerð að sú upp­hæð sem stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins gátu sótt í rík­is­sjóð var tvö­föld­uð, úr 50 millj­ónum króna í 100 millj­ónir króna. Fyrir vikið skert­ust greiðslur sem upp­runa­lega voru ætl­aðar 20 smærri fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum um 106 millj­ónir króna en sama upp­hæð flutt­ist til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­fyr­ir­tækja lands­ins, Árvak­­urs, Sýnar og Torgs. Árvak­ur, sem gefur út Morg­un­blaðið og tengda miðla, fékk mest allra, eða hámarks­styrk upp á 99,9 millj­ónir króna.

Samkvæmt þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar átti að leggja fram frum­varp Lilju um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla í þriðja sinn í októ­ber­mán­uði. Það hefur enn ekki verið lagt fram.

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­­­­­fyllir þau skil­yrði sem sett eru fyrir stuðn­­­ings­greiðsl­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár