Þorri yngra fólks er fylgjandi aðskilnaði ríkis og kirkju og telur sig ekki eiga samleið

Aldur, menntun og stjórn­mála­skoð­anir er ráð­andi breytur í afstöðu Íslend­inga til þess hvort að aðskilja eigi ríki og kirkju. Einungis 6,4 pró­sent lands­manna á aldr­inum 18-29 ára telur sig eiga mikla sam­leið með þjóð­kirkj­unni.

Höfuðstöðvar þjóðkirkjunnar.
Höf­uð­stöðvar þjóð­kirkj­unnar. Mynd: Kirkjan.is

Afger­andi meiri­hluti yngri hluta þjóð­ar­innar er hlynntur aðskiln­aði ríkis og kirkju. Alls segj­ast 68,9 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum 18-29 ára vera á þeirri skoðun en ein­ungis 10,6 pró­sent innan hans eru and­víg aðskiln­aði. Stuðn­ingur við aðskilnað er líka mjög mik­ill á meðal lands­manna á fer­tugs­aldri, þar sem 64,2 pró­sent eru fylgj­andi en 15,6 pró­sent and­víg. Stuðn­ing­ur­inn lækkar svo lít­il­lega á meðal lands­manna á fimm­tugs og sex­tugs­aldri en er samt meiri en and­staðan í öllum mældum ald­urs­hópum. Mest er and­staðan hjá lands­mönnum yfir sex­tugu þar sem 40 pró­sent eru fylgj­andi aðskiln­aði en 30,6 pró­sent eru and­víg.

[links]Þetta eru nið­ur­stöður í könnun sem Mask­ína gerði fyrir Sið­mennt í byrjun árs og Kjarninn hefur fengið aðgang að. Nið­ur­stöður um bak­grunn svar­enda hafa ekki verið birtar áður en Kjarninn greindi frá hluta heild­ar­nið­ur­staðna í októ­ber. Þar kom meðal ann­ars fram að þegar allt er talið saman eru rúm­lega 54 pró­sent fremur eða mjög hlynnt aðskiln­aði ríkis og kirkju og 25,7 pró­sent þeirra segj­ast vera í með­al­lagi hlynnt hon­um. Rúm­lega 20 pró­sent segj­ast vera fremur eða mjög and­víg aðskiln­að­i.

Menntun er líka mjög afger­andi breyta þegar kemur að afstöðu til aðskiln­aðar ríkis og kirkju. Þeir sem eru með grunn­skóla­próf sem æðstu menntun eru lík­leg­astir til að vera minnst á móti því að aðskiln­aður verði fram­kvæmdur, þótt mun fleiri innan þess hóps eru hlynntir því að af honum verði en á móti. Stuðn­ingur við aðskilnað eykst eftir því sem menntun er meiri og er þar af leið­andi mestur hjá lands­mönnum sem lokið hafa fram­halds­námi á háskóla­stigi. Innan þess hóps eru 69,5 pró­sent hlynnt aðskiln­aði, 16,1 pró­sent í með­al­lagi hlynnt en ein­ungis 14,3 pró­sent eru and­víg.

[adspot]Kyn, tekjur og heim­il­is­gerð eru ekki ráð­andi breytur í afstöðu til aðskiln­aðar ríkis og kirkju en íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru lík­leg­astir til að vera hlynntir aðskiln­aði þegar horft er á búsetu.

Þegar horft er á stjórn­mála­skoð­anir kemur í ljós að stuðn­ings­menn Pírata eru að uppi­stöðu mjög eða fremur fylgj­andi aðskiln­aði (87,1 pró­sent fylgj­andi og 8,5 pró­sent í með­al­lagi fylgj­andi). Þeir sem kjósa Viðreisn (78,7 pró­sent fylgj­andi og 10,7 pró­sent í með­al­lagi fylgj­andi) og Sam­fylk­ing­una (76,5 pró­sent og 15,6 pró­sent í með­al­lagi fylgj­andi) eru ekki langt undan.

Rúmur meiri­hluti kjós­enda Vinstri grænna (53,5 pró­sent) eru mjög eða fremur fylgj­andi aðskiln­aði og 26,8 pró­sent þeirra eru í með­al­lagi fylgj­andi. Hjá Sjálf­stæð­is­flokki eru 29,8 pró­sent fylg­is­manna and­vígir aðskiln­aði, 45,3 pró­sent fylgj­andi og 24,8 pró­sent í með­al­lagi fylgj­andi.

And­staðan við aðskilnað ríkis og kirkju mælist mest í Mið­flokknum (48,8 pró­sent and­víg, 19 pró­sent fylgj­andi og 32,2 pró­sent í með­al­lagi fylgj­andi), Fram­sókn­ar­flokkum (43,2 pró­sent and­víg, 23,1 pró­sent fylgj­andi og 33,7 pró­sent í með­al­lagi fylgj­andi) og Flokki fólks­ins (36,1 pró­sent and­víg, 29,6 pró­sent fylgj­andi og 34,3 pró­sent í með­al­lagi fylgj­andi).

Örlítið hluti yngsta hópsins telur sig eiga samleið

Einungis 6,4 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum 18 til 29 ára telur sig eina mikla sam­leið með þjóð­kirkj­unni. Hjá fólki á fer­tugs­aldri er það hlut­fall 15,8 pró­sent og hjá lands­mönnum á fimm­tugs­aldri 29,1 pró­sent. Þegar horft er á fólk á aldr­inum 50 til 59 ára er hlut­fall þeirra sem telja sig eiga mikla sam­leið með þjóð­kirkj­unni 37,1 pró­sent og hjá Íslend­ingum eldri en sex­tugt er það 45,8 pró­sent.

Heild­arsvör í þessum lið könn­un­ar­innar voru þannig að 25,7 pró­sent aðspurðra sögð­ust eiga fremur mikla eða mjög mikla sam­leið með þjóð­kirkj­unni, 25,7 pró­sent sögð­ust eiga nokkra en 48,7 pró­sent sögð­ust eiga litla eða enga sam­leið.

Þeir sem voru með grunn­skóla­próf sem æðstu menntun voru lík­leg­astir til að eiga mikla sam­leið með þjóð­kirkj­unni en þeir sem voru með fram­halds­menntun á háskóla­stigi ólík­leg­astir.

Kjós­endur Pírata, Við­reisnar og Sam­fylk­ingar eiga minnsta sam­leið með þjóð­kirkj­unni en kjós­endur Flokks fólks­ins, Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks eiga mesta sam­leið með henni. Kjós­endur Vinstri grænna eru lík­legri til að eiga litla eða enga sam­leið með kirkj­unni en mikla þó hlut­fall þeirra sem telur sig eiga sam­leið með henni sé tölu­vert hærra en hjá frjáls­lyndu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum.

Íbúar á Suð­ur­landi og Reykja­nesi og íbúar á Norð­ur­landi eru mun lík­legri til að telja sig eiga sam­leið með þjóð­kirkj­unni en íbúar á öðrum svæðum lands­ins. Tekjur og kyn virð­ast ekki skipta telj­andi máli þegar Íslend­ingar taka afstöðu til trúar sinnar. Það gerir heim­il­is­gerð ekki heldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár