Varaþingmaður VG hefur sagt sig úr flokknum

Eydís Blöndal: Það síð­asta sem ég vildi gera er að láta mál fjöl­skyld­unnar snú­ast á ein­hvern hátt um mig, en ég vildi heldur ekki að nokkur mann­eskja velkt­ist í vafa um það hvar ég stæði í mál­efnum útlend­inga og sér í lagi flótta­manna og hæl­is­leit­enda.

Eydís Blöndal var varaþingmaður VG.
Eydís Blöndal var vara­þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Eydís Blöndal hefur sagt sig úr Vinstri hreyf­ing­unni – grænu fram­boði. Eydís hefur verið vara­þing­maður flokks­ins frá síð­ustu kosn­ingum og flutti jóm­frú­ar­ræðu sína á Alþingi í jan­úar.

„Ég tók þessa ákvörðun í gær,“ segir Eydís í sam­tali við Kjarnann, „en hún var ef til vill löngu tíma­bær.“ Það var mál­efni egyp­sku fjöl­skyld­unnar sem vísa á úr landi, sem varð til þess að Eydís tók ákvörð­un­ina. Hún segir að brott­vísun fjöl­skyld­unnar hafi gengið gegn hennar sann­fær­ingu.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­kona greindi frá þeirri ákvörðun sinni í dag að hún hefði sagt skilið við VG vegna þess hvernig stjórn­völd fóru með mál egyp­sku flótta­fjöl­skyld­unnar.

„Hvernig getum við fæðst á Íslandi fyrir full­komna til­viljun, og síðan leyft okkur að ákveða að annað fólk megi ekki vera hérna?“ skrif­aði Eydís á Facebook í gær. „Hvernig getum við sveipað skoð­anir okkar orðum eins og „frelsi“ þegar við sendum lög­regl­una til að fjar­lægja börn og for­eldra af heim­ilum þeirra gegn þeirra vilja? Nei, við nefni­lega getum það ekki, það er órétt­mætt, ógeðs­legt og ómann­úð­legt #ekkiíokk­ar­nafni.“

[adspot]

Hún seg­ist ekki hafa verið virk í flokks­starf­inu frá því að henni bauðst að vera á lista VG fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar en í þeim varð hún vara­þing­maður flokks­ins. „Mér þótti í raun erfitt að taka þátt í flokkspóli­tík yfir höfuð því það er svo margt í því fyr­ir­komu­lagi sem mér finnst ekki ganga almenni­lega upp og oft þjóna þver­öf­ugum til­gangi þegar kemur til dæmis að lýð­ræði,“ segir Eydís og rifjar upp að um tví­tugt hafi hún fengið þá flugu í höf­uðið að skrá sig í alla starf­andi stjórn­mála­flokka. Það væri ef til vill besta leiðin til að hafa áhrif. „Mér fannst stefna VG sam­svara mörgu því sem ég hef trú á. En á kjör­tíma­bil­inu hafa komið upp mál sem mér hafa mis­boðið,“ segir hún

[links]Fljótt fór hún einnig að reka sig á ýmis­legt í póli­tík­inni almennt sem henni hugn­að­ist ekki. Henni fannst oft mynd­ast tog­streita og segir að erfitt geti reynst að koma hug­sjónum sínum hreint og beint til skila. „Það síð­asta sem ég vildi gera er að láta mál fjöl­skyld­unnar snú­ast á ein­hvern hátt um mig, en ég vildi heldur ekki að nokkur mann­eskja velkt­ist í vafa um það hvar ég stæði í mál­efnum útlend­inga og sér í lagi flótta­manna og hæl­is­leit­enda. Svo á sama tíma finnst mér mik­il­vægt að fólk láti í sér heyra og mót­mæli þegar því ofbýður.“

Eydís hefur oft velt því fyrir sér að segja sig úr flokknum en ekki látið verða af því fyrr en í gær. „Síðustu daga hef ég verið hugsi yfir ýmsu í tengslum við þetta hræði­lega sorg­lega mál fjöl­skyld­unnar sem er á flótta frá Egypta­landi. Ég hugs­aði með mér: Hingað og ekki lengra. Því ég sá það enn einu sinni ger­ast sem ég hafði séð ger­ast svo oft áður þegar erfið mál koma upp. Þingmenn og ráð­herrar fara í felur. Það er svo öfug­snúið að standa ekki með því sem þú stendur fyrir. Og ef þú vilt ekki koma þér í aðstæður sem þú getur ekki svarað fyrir þá áttu ekki að koma þér í þær aðstæður til að byrja með. Þetta er kannski barna­legt við­horf en mér finnst þetta þurfa að vera ein­kenni stjórn­mála­fólks.“

Finna sig ekki innan flokka

Þó að Eydís hafi verið ósátt við ýmis mál sem komið hafa upp í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu segir hún ákvörðun sína þó einnig snú­ast um rót vand­ans sem sé stjórn­mála­menn­ingin. Margir hennar jafn­aldra deili þeirri skoðun, þeir finni sig engan veg­inn í póli­tísku starfi stjórn­mála­flokk­anna.

Að mati Eydísar er margt í póli­tískri menn­ingu á Íslandi sem verður til þess að hug­sjónir ein­stak­ling­anna verða undir en hags­munir flokks­ins ofan á. „Þetta sé ég ger­ast í öllum flokkum. Flokk­ur­inn, afstaðan eða skoð­unin verður hluti af sjálfs­mynd ein­stak­lings­ins.. Fólk fer að verja flokk­inn og hans ákvarð­anir eins og það sé að verja sjálft sig – þó að það sé jafn­vel ekki sam­mála ákvörð­unum. Þessi menn­ing finnst mér ólýð­ræð­is­leg og stang­ast á við hug­myndir mínar um rétt­læti og í henni mynd­ast hvati fyrir fólk að hætta að tala frá hjart­anu. Og þegar blikið fer úr aug­unum þá á maður að hætta í póli­tík.“

Eydís var í ítar­legu við­tali við Kjarnann síð­asta vetur. Lesa má við­talið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár