Rósa Björk segir sig úr Vinstri grænum

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, hefur til­kynnt for­sæt­is­ráð­herra um úrsögn sína úr þing­flokki Vinstri grænna. Ástæðan eru nýlegir atburðir er varða brott­vísun á barna­fjöl­skyldu frá Egypta­landi.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

„Ég hef átt fund í dag með Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni VG, og til­kynnt henni um úrsögn mína úr þing­flokki Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs og úr hreyf­ing­unni.

Nýlegir atburðir er varða brott­vísun stjórn­valda á barna­fjöl­skyldu sem hefur beðið eftir lausn sinna mála í 25 mán­uði og við­brögð rík­is­stjórnar sem VG er í for­ystu fyrir í því máli, urðu til þess að ég finn end­an­lega að ég á ekki lengur sam­leið með þing­flokki VG.“

Svona hefst yfir­lýs­ing sem Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, hefur sent á fjöl­miðla.

Þar segir Rósa Björk að ákvörð­unin hafi ekki verið auð­veld, sér í lagi gagn­vart kjós­endum flokks­ins og félögum hennar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hun muni þrátt fyrir þetta halda áfram að vinna af krafti og ein­urð að góðum málum á Alþingi, sér­stak­lega er varða mann­rétt­indi, umhverfis- og lofts­lags­mál, kynja­jafn­rétti og fleiri góðum málum.

Rósa Björk er annar þing­maður Vinstri grænna sem segir sig úr þing­flokknum á þessu kjör­tíma­bili. Í lok nóv­em­ber í fyrra sagði Andrés Ingi Jóns­son sig úr honum og greindi frá því að hann myndi starfa sem óháður þing­maður út kjör­tíma­bilið.

Andrés Ingi og Rósa Björk eru þeir tveir þing­menn sem hafa verið í þing­flokki Vinstri grænna en studdu ekki stjórn­ar­sátt­mála Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Rósa Björk segir í yfir­lýs­ingu sinni að mál barna­fjöl­skyld­unnar, sem telur for­eldra og fjögur börn frá Egypta­landi, hafi verið þess eðlis að það væri ekki hægt annað en að taka afstöðu með mann­úð­inni, með rétt­indum barna á flótta sem hér hafi fest rætur og myndað tengsl. „Og taka afstöðu gegn því að íslensk yfir­völd vísi á brott börnum og barna­fjöl­skyldum. Á þeim þremur árum sem VG hefur setið í rík­is­stjórn hefur lítið sem ekk­ert miðað í átt að móta hér nýja stefnu í mál­efnum inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda eða að fylgja mann­úð­ar­sjón­ar­miðum í mála­flokknum, sem er þó það sem rík­is­stjórnin lof­aði. Það er mjög miður.“

Hún segir að sem vara­for­maður flótta­manna­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins hafi hún feng­ist mikið við mál­efni fólks á flótta, og sér­stak­lega mála sem varði börn á flótta, sem hún hafi unnið ötul­lega að. „Í því ljósi finnst mér þessi stefnu­breyt­ing og aðgerða­leysi rík­is­stjórn­ar­innar sér­stak­lega dap­ur­leg og bera vitni um afstöðu sem er langt frá því sem afstaða VG í þessum mála­flokki hefur verið hingað til og langt frá því sem við bárum fram bæði í stjórn­ar­and­stöðu og fyrir kosn­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár