Þrýstingi beitt á lífeyrissjóði sem settir hafi verið „í gjaldeyrishöft“ af ríkisstjórninni

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir segir að sér hugn­ist ekki sú áhætta sem líf­eyr­is­sjóðum er ætlað að taka í hluta­fjár­út­boði Icelandair. Bjarni Bene­dikts­son segir að ef líf­eyr­is­sjóðir láti undan þrýst­ingi séu stjórn­endur „ekki að standa sig í vinn­unni.“

Bjarni Benediktsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Bjarni Bene­dikts­son og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir. Mynd: Samsett.

„Rík­is­stjórnin er eina rík­is­stjórnin í Evrópu og bara í heim­inum sem hefur beitt gjald­eyr­is­höftum. Það voru sett gjald­eyr­is­höft á líf­eyr­is­sjóð­ina,“ sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar á Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun, en þar ræddu hún og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks hin ýmsu mál, meðal ann­ars nýsam­þykkta rík­is­á­byrgð til handa Icelandair Group.

Varðandi hana og þunga stöðu Icelandair sagði Þor­gerður Katrín að rík­is­stjórnin hefði að sínu mati átt að „ganga hreinna til verks“, en ekki skilja bank­ana eftir með „þungar og erf­iðar ákvarð­anir“ um að sölu­tryggja hluta­fjár­út­boð Icelandair Group.

Hún vís­aði til þess að danska og sænska ríkið hefðu beina aðkomu að mál­efnum SAS, m.a. með því að þrýsta á að skuldum yrði breytt í hlutafé, en sagði þó ekki beinum orðum að hún hefði vildi sjá íslenska ríkið stíga inn í rekstur Icelandair sem hlut­hafi.

Þor­gerður Katrín sagði að í hluta­fjár­út­boði Icelandair væri mik­ill þrýst­ingur á að félags­legir sjóðir laun­þega tækju á sig mikla áhættu, þeir væru fastir með sitt fjár­magn inn­an­lands og það væri áhætta fyrir líf­eyr­is­þega fram­tíð­ar­innar. Hún sagði að sér þætti rétt­ara að það væri á end­anum rík­is­valdið sem bæri ábyrgð­ina, fremur en líf­eyr­is­þegar.

„Ef það er ykkar til­laga að ríkið bara kaupi hlutafé í Icelandair þá þurfa menn að segja það líka, og tala hreint út,“ sagði Bjarni við Þorgerði í þætt­inum, en nokkur hiti hljóp í sam­tal þeirra.

Stjórnendur lífeyrissjóða „ekki að standa sig í vinnunni“ ef þeir láta undan þrýstingi

Bjarni sagði nálgun Þor­gerðar á þetta ekki boð­lega og að margt væri rangt í mál­flutn­ingi hennar. „Í fyrsta lagi hefur rík­is­stjórnin enga aðkomu að því hvort bankar ákveði að sölu­tryggja þetta og í öðru lagi eru engin gjald­eyr­is­höft í gangi,“ sagði Bjarni, en Þor­gerður Katrín vís­aði með orðum sínum um gjald­eyr­is­höft til þess sam­komu­lags sem er í gildi á milli Seðla­bank­ans og íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna um að hinir síð­ar­nefndu kaupi tíma­bundið ekki gjald­eyri til erlendra fjár­fest­inga.[links]

Kristján Krist­jáns­son þátt­ar­stjórn­andi spurði Bjarna hvort það væri þó ekki aug­ljóst að þrýst­ingur væri á líf­eyr­is­sjóð­ina um að taka þátt í hluta­fjár­út­boði Icelandair Group síðar í mán­uð­inum. Bjarni neit­aði því ekki, en sagði lagaum­hverfið varð­andi fjár­fest­ingu líf­eyr­is­sjóða alveg skýrt. Þeim er ætlað að fjár­festa með hags­muni sjóð­fé­laga í for­grunni.

„Ef að menn láta undan slíkum þrýst­ingi þegar gögnin segja mönnum að gera eitt­hvað annað, þá eru menn ekki að standa sig í vinn­unni,“ sagði fjár­mála­ráð­herra.

Bjarni telur að rík­is­stjórnin hafi gert hár­rétt með því að segja við Icelandair að þeirra fjár­hags­vandi væri þeirra fjár­hags­vandi, ekki rík­is­ins, og félagið hefði „fyrstu skyld­una til að bjarga sér á sundi“.

Rík­is­stjórnin væri síðan núna að veita vil­yrði um tryggða lána­línu, ef að svo illa færi að áætl­anir Icelandair myndu ekki stand­ast. Þetta hafi verið gert með þessum hætti til þess að tak­marka áhættu rík­is­ins.

Þor­gerður Katrín sagði að það væri beint og óbeint verið að þrýsta líf­eyr­is­sjóð­unum til þess að taka þátt í hluta­fjár­út­boði Icelandair. „Þeir hafa lítið um aðra kosti að velja en að vera hér inn­an­lands,“ sagði Þor­gerður Katrín og lagði áherslu á að það hefði að und­ir­lagi rík­is­stjórn­ar­innar og Seðla­bank­ans að sjóð­irnir hefðu verið beðnir um að halda að sér höndum í erlendri fjár­fest­ingu í upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Icelandair þurfi að teikna upp nýja áætlun ef útboð gangi ekki upp

Í lok við­tals­ins spurði þátt­ar­stjórn­andi Bjarna hvað myndi ger­ast ef ekki næð­ist að safna fjár­magni í væntu hluta­fjár­út­boði Icelandair. „Þá verður félagið að svara því hvað það ætlar að gera,“ sagði Bjarni.

„Ef að þeirra eigin áætl­anir [...] ganga ekki upp verða þeir að gera sínar nýju áætl­anir og ef ég á að svara úr sæti mínu myndu ég halda að þeir þyrftu að draga eitt­hvað úr fram­tíð­ar­á­formum sínum og láta á það reyna að leggja upp með nýja áætlun með minni umsvifum,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár