Níu ný smit – 91 í einangrun

Níu ný til­felli COVID-19 greindust hér á landi í gær. 91 er því með virk smit af kór­ónu­veirunni og í ein­angrun. Öll smitin greindust í rann­sóknum veiru­fræði­deildar Land­spít­al­ans.

Fjöldi þeirra sem greinst hefur með virkt smit af kór­ónu­veirunni hér á landi síð­ustu daga er nú orð­inn 91. Slíkur fjöldi hefur ekki verið með COVID-19 hér á landi síðan 30. apríl er til­fellin voru 86. 

Níu ný til­felli greindust í gær. Þá voru 734 manns í sótt­kví en í dag er fjöld­inn kom­inn í 746. Einn sjúk­lingur með COVID-19 hefur legið á sjúkra­húsi síð­ustu daga en sam­kvæmt Covid.is liggur nú eng­inn með sjúk­dóm­inn á sjúkra­húsi. Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hafa 1.926 greinst með sjúk­dóm­inn hér á landi.

[adspot]

„Það er sem stendur óvissa um hvaða stefnu far­ald­ur­inn muni taka,“ sagði Alma Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi gær­dags­ins. „Hvort að smitum muni fjölga eða hvort okkur tekst öllum í sam­ein­ingu að ná tökum á smit­unum. Við teljum að við þurfum að læra að lifa með veirunni til lengri tíma og að það sé óhjá­kvæmi­legt að alltaf verði ein­hver smit í gangi. En hins vegar myndum við vilja hafa betri stjórn á aðstæðum akkúrat núna og þess vegna erum við í öllum þessum aðgerðum.“

Alma ítrek­aði að við værum í miklu betri stöðu núna en í vetur til að sinna þeim sem veikj­ast. „Covid-göngu­deildin heldur vel utan um alla og ef að fólk þarf inn­lögn þá búa læknar og annað heil­brigð­is­starfs­fólk yfir nauð­syn­legri þekk­ingu, reynslu, lyfjum og tækja­bún­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár