„Stjórnendur koma og fara en starfsfólkið er og verður alltaf grunnstoð fyrirtækisins“

Formaður VR gagn­rýnir stjórn­endur Icelandair harð­lega og segir að aldrei hafi verið mik­il­væg­ara en nú að standa í lapp­irnar og verja rétt­indi launa­fólks.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

„Það hefur aldrei verið mik­il­væg­ara en nú að standa í lapp­irnar og verja rétt­indin. Við erum í raun­veru­legu stríði um lífs­kjör okkar og fram­tíð. Starfs­fólk Icelandair stendur nú í fremstu víg­línu í þessu stríði. Ekki til að bjarga sínu eigin skinni heldur fyrir okkur öll.“ Þetta segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag.

Hann gerir kjara­mál starfs­fólks Icelandair að umtals­efni, sem og sam­keppn­is­hæfni fyr­ir­tæk­is­ins. „Fyrir alla muni látum ekki kúga okkur eða beygja til hlýðni með hræðslu­á­róðri því það verður ekk­ert flug­fé­lag án ykkar og ekki gæfu­leg fram­tíð ef stjórn­endur Icelandair ráða för. Án vinn­andi handa, okkar, geta fyr­ir­tækin ekki starfað.“

Ragnar Þór seg­ist hafa velt fyrir sér mál­flutn­ingi stjórn­enda Icelandair um mik­il­vægi þess að end­ur­semja við starfs­fólk til að bjarga fyr­ir­tæk­inu en Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, sagði í bréfi til starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins um helg­ina að lækka þyrfti launa­kostnað með breyt­ingum á kjara­samn­ingum.

Stjórnendur náðu að toppa sig

Ragnar Þór hefur áður minnst á að leitun væri að stjórn­endum sem stigið hefðu fleiri feil­spor í fyr­ir­tækja­rekstri og stjórn­endur Icelandair. Þeir hafi þó nú náð „að toppa sig, ótrú­legt en satt, með árásum á sitt eigið starfs­fólk sem er hið raun­veru­lega verð­mæti fyr­ir­tæk­is­ins“.

Stjórn­endur tali ótt og títt um sam­keppn­is­hæfni í þeim efnum. Ragnar Þór spyr hvaða sam­keppni sé verið að tala um.

„Eigum við að sætta okkur við það að vinnu­mark­að­ur­inn verði end­ur­reistur eftir Covid hrunið á for­sendum fjár­magns og stjórn­enda þess?

Hvað ef sam­keppn­is­hæfnin þýðir að launa­kjörin fari á par við það sem ger­ist hjá sví­virði­leg­ustu lággjalda­flug­fé­lög­unum sem stunda gerfi­verk­töku, skattaund­an­skot, stór­felld brot á kjara­samn­ingum og mann­rétt­indum og bein­línis þrælkun á starfs­fólki sem er svo algjör­lega ótryggt í vinnu. Öllu er svo úthýst til landa sem gera litlar sem engar kröfur um skatta á stór­fyr­ir­tæki eða vel­ferð starfs­fólks,“ skrifar hann.

Hvaða leið eiga Íslendingar að fara?

Ragnar Þór spyr enn fremur hvort þetta sé leiðin sem Íslend­ingar vilji fara. „Eigum við bara að sætta okkur við það að end­ur­reisnin verði með þeim hætti að hér geti fyr­ir­tækin almennt kraf­ist þess að við afsölum okkur rétt­indum sem hafa tekið ára­tugi að ná fram?

Og eigum við bara að sætta okkur við að hér geti fyr­ir­tækin farið fram á að starfs­fólk fari almennt á strípaða taxta og afsali sér rétt­indum í nafni sam­keppn­is­hæfni?“

Hann segir að Íslend­ingar ættu miklu frekar að koma í veg fyrir að slík fyr­ir­tæki fái að fljúga til lands­ins eða stunda hér við­skipti, neita þeim um afgreiðslu á flug­völl­unum eða fyr­ir­tækjum að selja vörur sínar á íslenskum mark­aði nema að kjara­samn­ingar og grund­vall­ar­mann­rétt­indi séu virt.

Við starfs­fólk Icelandair vill hann segja: „Ekki láta kúga ykkur út í stór­felldar launa­lækk­anir og afsal rétt­inda. Stjórn­endur koma og fara en starfs­fólkið er og verður alltaf grunn­stoð fyr­ir­tæk­is­ins.

Spyrjið stjórn­endur Icelandair út í sam­keppn­is­hæfni út frá vaxta­ber­andi skuldum félags­ins eða ávinn­ing félags­ins á launa­lækk­unum sam­an­borið við tug­millj­arða tap á afleiðu­samn­ingum með olíu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár