Óska eftir mati Landsvirkjunar á rekstrarstöðu fyrirtækja í orkufrekum iðnaði

Fjár­mála­ráð­herra og ráð­herra iðn­að­ar­mála fund­uðu í síð­ustu viku með for­stjóra og stjórn­ar­for­manni Lands­virkj­unar og ósk­uðu þar eftir mati Lands­virkj­unar á rekstr­ar­stöðu fyr­ir­tækja í orku­frekum iðn­aði á Íslandi.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra fund­uðu í síð­ustu viku með for­stjóra og stjórn­ar­for­manni Lands­virkj­unar og ósk­uðu eftir því að Lands­virkjun myndi skila stjórn­völdum mati sínu á rekstr­ar­stöðu við­skipta­vina sinna, fyr­ir­tækja í orku­frekum iðn­aði á Íslandi.

Þetta kom fram í máli Bjarna, er hann svar­aði fyr­ir­spurn frá Gunnari Braga Sveins­syni, þing­manni Mið­flokks­ins, um stöðu mála í við­ræðum Rio Tinto á Íslandi og Lands­virkj­unar á Alþingi í dag.

[links]Gunnar Bragi spurði Bjarna hvort hann hefði sem fjár­mála­ráð­herra „beitt sér“ eða tekið beinan þátt í þeim við­ræðum.

Þing­mað­ur­inn gaf í skyn að fjár­mála­ráð­herra ætti að beita sér fyrir því að Rio Tinto fengi lægra orku­verð frá Lands­virkjun eins og fyr­ir­tækið hefur kraf­ist, til þess að tryggja að störf og afleidd störf vegna álverk­smiðj­unnar í Straums­vík glat­ist ekki, ofan á öll önnur störf sem fyr­ir­sjá­an­lega munu nú glat­ast á Íslandi vegna áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Bjarni sagði að hann hefði ekki „beitt sér“ gagn­vart Lands­virkjun, enda væri um að ræða fyr­ir­tæki á sam­keppn­is­mark­aði með sjálf­stæða stjórn og stjórn­endur sem eru sjálf­stæðir í sínum störfum. Þar gætu stjórn­mála­menn ekki beitt sér.

[adspot]

Þó sagð­ist ráð­herra hafa átt fundi með for­svars­mönnum Rio Tinto á Íslandi til þess að heyra afstöðu þeirra í við­ræð­unum við Lands­virkjun, en Rio Tinto óskaði eftir fundum með Bjarna til að ræða þau mál.

Vonar að Rio Tinto fái „lausn á sínum áhyggjuefnum“

Fjár­mála­ráð­herra sagð­ist hafa „tölu­vert miklar áhyggjur“ af stöðu alls orku­freks iðn­aðar í land­inu og bætti við að nýlega hefðu hann og Þórdís Kolbrún heim­sótt helstu fyr­ir­tæki lands­ins í orku­frekum iðn­aði til þess að heyra hvernig rekstr­ar­skil­yrðin væru. Frá fyr­ir­tækj­unum fengu ráð­herr­arnir þau skila­boð að staðan á alþjóða­mörk­uðum væri mjög snúin.

„Ég ætla að leyfa mér að binda vonir við að þessi mik­il­vægi við­skipta­vinur Lands­virkj­unar geti fengið, í sam­skiptum við Lands­virkjun, lausn á sínum áhyggju­efnum, sem ég er ekki inni í í neinum smá­at­riðum,“ sagði Bjarni, um stöðu Rio Tinto.

Hann sagði jafn­framt að fylgst yrði náið með því hvernig sam­skipti fyr­ir­tækja í orku­frekum iðn­aði yrðu við Lands­virkjun og stjórn­völd almennt næstu mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár