Landsvirkjun vill aflétta trúnaði af samningi við Rio Tinto

„Æskilegt og í anda gagn­sæis að almenn­ingur verði upp­lýstur um hvað stendur í samn­ingnum,“ segir Hörður Arnarson for­stjóri Lands­virkj­unar.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Lands­virkjun hefur óskað form­lega eftir því við Rio Tinto, eig­anda álvers­ins í Straums­vík, að trún­að­ar­á­kvæðum verði aflétt af raf­magns­samn­ingi fyr­ir­tækj­anna þannig að hægt verði að ræða opin­ber­lega um meg­in­efni samn­ings­ins.

Þetta kom meðal ann­ars fram í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun þar sem Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar var gestur Krist­jáns Krist­jáns­sonar.

„Við teljum æski­legt og í anda gagn­sæis að það væri upp­lýst meira um samn­ing­inn og þess vegna skrif­uðum við bréf til Rio Tinto í síð­ustu viku þar sem við höfum óskað form­lega eftir því við fyr­ir­tækið að trún­aði sé aflétt af samn­ingnum,“ sagði Hörður Arnarson for­stjóri Lands­virkj­unar.

[links]Hörður sagði mik­il­vægt fyrir sam­fé­lagið að trún­aði sé aflétt. Í honum væru meðal ann­ars ákvæði um end­ur­skoðun sem eiga að tryggja sam­keppn­is­hæfni verk­smiðj­unnar og væri til mik­ils gagns fyrir alla að trún­aði yrði aflétt af þessum samn­ingi þannig að aðilar gætu rætt um hann opin­ber­lega.

Rio Tinto, eig­andi álvers­ins í Straums­vík, hefur til­kynnt að leitað sé leiða til þess að bæta rekstur álvers­ins í þeim aðstæðum sem nú eru uppi á álmörk­uðum og hefur sjónum meðal ann­ars verið beint að raf­orku­samn­ingnum við Lands­virkjun.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Lands­virkjun segir að Lands­virkjun og álverið í Straums­vík hafa átt í far­sælu og löngu við­skipta­sam­bandi frá stofnun. Núgild­andi raf­orku­samn­ingur milli Lands­virkj­unar og Rio Tinto hefur verið í gildi síðan 2010 og var end­ur­skoð­aður 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár