Tekjur hótela í Reykjavík drógust saman um 98 prósent í lok mars

Í mars­mán­uði 2019 var her­bergj­a­nýt­ing á hót­elum í höf­uð­borg Íslands 82 pró­sent. Í síð­ustu viku mars­mán­aðar 2020 var hún 2,1 pró­sent.

Ferðamenn hafa verið mjög fyrirferðamiklir á Reykjavík undanfarin ár. Nú eru þeir vart sjáanlegir í höfuðborginni.
Ferða­menn hafa verið mjög fyr­ir­ferða­miklir á Reykja­vík und­an­farin ár. Nú eru þeir vart sjá­an­legir í höf­uð­borg­inni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Nýting á herbergjum hótela í Reykjavík fór úr því að vera að meðaltali 72,3 prósent fyrstu vikuna í marsmánuði 2020 í að vera 2,1 prósent í síðustu viku mánaðarins. Tekjur hótela í borginni í síðustu vikunni í mars voru sömuleiðis einungis tvö prósent af tekjum þeirra í saman mánuði 2019.

Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Hagfræðideildar Landsbankans sem birt var í dag.

Ástæðan er auðvitað það ástand sem skapast hefur í heiminum vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúkdómnum, en vegna þess hafa helstu viðskiptalönd Íslands flest lokað landamærum sínum og ferðamenn hætt að ferðast.

[adspot]Í Hagsjánni segir hins vega að herbergjanýting hafi víða verið verri en hún var í Reykjavík í síðasta mánuði. „Herbergjanýting í höfuðborgum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkja hefur einnig hrunið í marsmánuði. Herbergjanýting í höfuðborgum Skandinavíu lá á bilinu 24-26 prósent í mars en til samanburðar var hlutfallið 37,5 prósent í Reykjavík og því töluvert hærra en í Skandinavíu. Í mars í fyrra var herbergjanýting í Skandinavíu á bilinu 63-74 prósent en hún var 82 prósent í Reykjavík.“

Þar er bent á að stórar hótelkeðjur hér á landi hafi brugðið á það að ráð að loka hluta starfseminnar meðan mestu ferðatakmarkanirnar verða í gildi. Þannig hafi stærsta hótelkeðja landsins, Íslandshótel, tilkynnt að hún muni loka fimm af 17 hótelum sínum bæði innan og utan höfuðborgarsvæðisins. Icelandair Hotels og Center Hotels hafa einnig lokað hótelum tímabundið.

Í fyrra voru gistinætur Íslendinga tæplega tíu prósent af öllum gistinóttum á hótelum hérlendis, en það hlutfall er þó afar breytilegt eftir landsvæðum. Hagfræðideild Landsbankans telur að það verði athyglisvert að fylgjast með fjölgun gistinótta Íslendinga á innlendum hótelum þegar samkomubanni og fyrirmælum um takmörkun ferðalaga innanlands verður aflétt. „Upp frá því kann aukin gisting Íslendinga á hótelum að milda það högg sem brotthvarf erlendra ferðamanna mun valda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár