Trump lýsir yfir neyðarástandi í Bandaríkjunum

Banda­ríkja­for­seti hefur lýst yfir neyð­ar­á­standi sem hægt er að gera, til dæmis þegar far­sóttir geisa. Aðgerðin veitir banda­rískum stjórn­völdum aðgang að 50 millj­örðum Banda­ríkja­dala.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, lýsti rétt í þessu yfir neyð­ar­á­standi í land­inu. Sú aðgerð, sem er hugsuð sem örþrifa­ráð sem hægt er að grípa til vegna nátt­úr­ham­fara, far­sótta eða stríða, veitir aðgang að um 50 millj­örðum Banda­ríkja­dala til að berj­ast við útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Eins og er hafa yfir 1.800 til­felli greinst í Banda­ríkj­unum, alls í 46 ríkjum, og 41 hafa lát­ist. Banda­ríkja­stjórn hefur legið undir ámæli fyrir að bregð­ast seint við ástand­inu og Trump gerði ítrekað lítið úr stöð­unni á síð­ustu vikum. Þetta er í fyrsta sinn sem Trump talar um veiruna og útbreiðslu hennar sem vanda­mál innan Band­arikj­anna, en ekki ein­ungis vágest sem þurfi að halda utan landamæra lands­ins.

Á blaða­manna­fundi sem Trump boð­aði til í dag og hófst rúm­lega hálf átta að íslenskum tíma fór hann yfir allar þær aðgerðir sem hann og rík­is­stjórn hans hefðu gripið til og sagði að þær hefðu bjargað fjöl­mörgum manns­lífum. Hann neit­aði að taka ábyrgð á því að illa hefur gengið að hefja víð­tækar próf­anir á því hvort að Banda­ríkja­menn væru sýktir af veirunni og sagði að ástæðan fyrir töf­unum hefði verið kerf­is­legur galli. Hans fólk væri búið að end­ur­hanna kerfið hratt og nú væru próf­anir að kom­ast í rétt horf.

Á fund­inum sagði Banda­ríkja­for­seti að hann væri búinn að fyr­ir­skipa öllum ríkjum lands­ins að setja í gang neyð­ar­að­gerðir og veitti heil­brigð­is­mála­ráð­herra lands­ins, Alex Azar, víð­tækar heim­ildir til að gera læknum og spít­ölum kleift að bregð­ast hart við veirunni og afleið­ingum hennar.

[adspot]Á meðal þess sem hann minnt­ist á var ákvörðun um að setja ferða­bann á Kína og svo ferða­bannið sem hann ákvað að setja á Evrópu og tekur gildi á mið­nætti. Sagði hann að bannið hefði þegar skilað gríð­ar­legum árangri, þrátt fyrir að það hefði ekki enn tekið gildi.

Trump sagði að ekk­ert ríkið væri betur í stakk búið til að takast á við útbreiðslu veirunnar og að ekk­ert ríki væri að gera meira til þess að hefta úbreiðsl­una hennar. Auk þess væru Banda­ríkin að hjálpa öðrum ríkjum í þeirra bar­áttu við far­ald­ur­inn.

Með Trump á blaða­manna­fund­inum í dag voru meðal ann­ars stjórn­endur frá stórum banda­rískum lyfja­fyr­ir­tækjum og stærstu dag­vöru­versl­unum Banda­ríkj­anna, á borð við Wallmart og Target.

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnti aðfara­nótt fimmtu­dags að ferð­u­m frá Evr­ópu­löndum utan Bret­lands til Banda­ríkj­anna yrði aflýst í þrjá­tíu daga. Hann sagði Evr­ópu­sam­band­inu hafa mis­tek­ist að hefta útbreiðsl­una. Yfir­völd í Banda­ríkj­unum hafi hins vegar brugð­ist hratt við og að til­felli nýju kór­ónu­veirunnar þar í landi væru fá miðað við í Evr­ópu. Að­gerð­irnar væru „harðar en nauð­syn­leg­ar“.

Síðan þá hefur staðan versnað hratt í Banda­ríkj­unum og leitt til þess að neyð­ar­á­standi var lýst yfir í dag.

Trump var spurður af blaða­mönnum hvort hann hefði verið próf­aður svo að hægt væri að ganga úr skugga um að hann væri ekki sýktur af veirunni. Ástæðan er sú að fjöl­miðla­full­trúi for­seta Brasilíu, sem var við­staddur fund hans með Trump á laug­ar­dag, hefur greinst með COVID-19. Trump svar­aði spurn­ing­unni ekki beint en sagð­ist ekki hafa sýnt nein ein­kenni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár