Þurfa að afhenda minnisblöð skattayfirvalda um Samherja

Fjármála- og efna­gags­ráðu­neytið mátti ekki synja frétta­manni um aðgang að gögnum sem það fékk frá skatta­yf­ir­völdum vegna rann­sóknar á Sam­herj­a­mál­inu.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að emb­ætti Skatt­rann­sókn­ar­stjóra og Rík­is­skatt­stjóra þurfi að afhenda frétta­manni minn­is­blöð sem emb­ættin sendur til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins vegna rann­sóknar á Sam­herj­a­mál­inu svo­kall­aða.

Ráðu­neytið hafði synjað beiðni umrædds frétta­manns, sem er ekki nefndur í úrskurði nefnd­ar­innar, um aðgang að gögn­unum að höfðu sam­ráði við emb­ættin tvö. Það var gert á þeim grund­velli að talið var að þau hefðu að geyma upp­lýs­ingar sem vörð­uðu mik­il­væga virka við­skipta­hags­muni lög­að­ila, upp­lýs­ingar um mögu­lega rann­sókn saka­máls auk upp­lýs­inga um fyr­ir­hug­aðar ráð­staf­anir sem mögu­lega skili ekki til­ætl­uðum árangri séu þær á vit­orði almenn­ings.

[adspot]Úrskurð­ar­nefndin taldi hins vegar að upp­lýs­ing­arnar sem væri að finna í gögn­unum þyrftu ekki að fara leynt nema upp­lýs­ingar um fyr­ir­hug­aðar aðgerðir í tengslum við skipu­lag á fyr­ir­hug­aðri rann­sókn til­tek­ins saka­máls þar sem að „líkur á því að árangur aðgerð­anna spillt­ist yrðu upp­lýs­ing­arnar gerðar opin­berar.“

Ráðu­neyt­inu bar því að afhenda frétta­mann­inum, sem starfar hjá RÚV, gögnin að unda­skyldum til­greindum tölu­liðum í minn­is­blöðum beggja stofn­ana.

Sam­herj­a­málið hófst form­lega í nóv­em­ber í fyrra þegar Kveik­­ur, Stund­in, Wikileaks og Al Jazeera birtu umfjöllun sína um við­­skipta­hætti Sam­herja í Namibíu og víðar þar sem fjallað var um meintar mút­u­greiðsl­­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­­göngu. Í umfjöll­un­inni steig fram upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Sam­herja í Namib­íu, og lýsti ætl­uðum brotum Samherja, sem hann sagði að væru framin með vit­und og vilja for­stjóra sam­stæð­unnar, Þor­steins Más Bald­vins­sonar.

Samherji fól sam­stundis norskri lög­manns­stofu, Wikborg Rein, að fram­kvæma rann­sókn fyrir sig á ásök­unum, sem fyr­ir­tækið greiðir sjálft fyrir og heyrir beint undir stjórn­ina.

Auk rann­sóknar Wikborg Rein á málum Sam­herja eru yfir­­­völd í Namib­­­íu, Angóla, Íslandi og í Nor­egi einnig að rann­saka mál tengd Sam­herj­a og fjöl­margir hafa verið ákærðir fyrir spill­ingu og önnur efna­hags­brot nú þegar í Namibíu vegna Sam­herj­­a­­máls­ins, meðal ann­­ars tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar í rík­­is­­stjórn lands­ins. Alls sitja tíu manns í fang­elsi þar í landi vegna máls­ins. Engin nið­ur­staða liggur fyrir í rann­sókn á mál­inu hér­lendis enn sem komið er og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans hefur hún verið í fullum gangi und­an­farna mán­uð­i, meðal ann­ars hjá skatta­yf­ir­völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár