Vilja opna á erlenda fjárfestingu í Brimi

Lög banna beina erlenda fjár­fest­ingu í íslenskum útgerðum. For­stjóri Brims vill ræða til­lögur um hvernig með opna á fjár­fest­ingar erlendra fjár­festa.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, sem er í meiri­hluta­eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar for­stjóra Brims, leggur til við hlut­hafa­fund Brims þann 12. des­em­ber næst­kom­andi að skoðað verði að mögu­leg skrán­ing félags­ins í norsku kaup­höll­ina. Þá er einnig lagt til að skoð­aðar verði aðrar leiðir til að opna á fjár­fest­ingu erlendra aðila í félag­inu.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til kaup­hallar, en Brim er eina skráða útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins. Eitt af því sem hefur verið sér­stakt við veru þess á mark­aðnum, er að erlendir fjár­festar hafa ekki getað átt við­skipti með bréf félags­ins vegna banns í lögum um slík við­skipti með félög sem eiga kvóta til veiða í íslenskri lög­sögu.

Tillagan, sem birt hefur verið á vef kaup­hall­ar­innar, er í þremur liðum og felst í því að fela stjórn að skoða að leggja fram til­lögu fyrir aðal­fund félags­ins á næsta ári, um hvernig best er að auka mögu­leika erlendra aðila til óbeinnar fjár­fest­ingar í Brim.

Í til­lög­unum felst meðal ann­ars að breyta til­gangi Brims úr sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki í eign­ar­halds­fé­lag sem eigi nýtt dótt­ur­fé­lag sem stofnað verði utan um sjáv­ar­út­vegs­rekst­ur­inn. Með þeim hætti geti erlendir aðilar átt aðkomum, óbeint, að félag­inu.

Hins vegar að stofnað verði erlent félag sem eigi fjórð­ung hluta­fjár í íslensku félagi sem eigi svo aftur Brim í heild, og erlenda félagið verði skráð í erlenda kaup­höll, t.d. í kaup­höll í Noregi.

Þriðja til­lagan er að kanna og meta aðrar leiðir til að auka mögu­leika erlendra aðila á óbeinum fjár­fest­ingum í Brim.

Mark­aðsvirði Brims er nú 75,9 millj­arðar en það hefur hækkað um rúm­lega 18 pró­sent það sem af er ári. Eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins nam tæp­lega 300 millj­ónum evra í lok þriðja árs­fjórð­ungs á þessu ári, eða sem nemur um 40 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár