Kraumandi óánægja hjá starfsfólki Hafró

Starfs­fólk Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar hefur miklar áhyggjur af því að hag­ræð­ing hjá stofn­un­inni muni höggva í kjarna­starf­semi stofn­un­ar­innar.

Starfs­fólk Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar (Hafró) er ugg­andi yfir þeim breyt­ingum sem boð­aðar hafa verið á starf­sem­inni, en 14 störf munu hverfa á brott við hag­ræð­ingu og skipu­lags­breyt­ingar.

Ályktun þess efnis var sam­þykkt af starfs­mönnum, sem vitnað var til í frétt Fiski­frétta, en í henni segir að þessar breyt­ingar séu alfarið á ábyrgð stjórn­valda. Þau beri ábyrgð á „alvar­legri stöðu stofn­un­ar­innar“ og starfs­menn hafi veru­legar áhyggjur af fram­tíð hennar. Þeir segja jafn­framt að upp­sagn­irnar hafi áhrif á kjarna­starf­semi hennar, þvert á orð Sigurðar Guð­jóns­sonar, for­stjóra, um hið gagn­stæða.

Í fyr­ir­spurn sem Kjarninn sendi til Hafró vegna þess­ara breyt­inga, var spurt um hvernig störf það væru sem hyrfu á brott vegna hag­ræð­ingar innan stofn­un­ar­innar.

Í svari Sóleyjar Morthens, þró­un­ar­stjóra Hafró, kemur fram að hluti af stör­f­unum sé á sviði rann­sókna, en skipu­lags­breyt­ingar innan Hafró hafi það að mark­miði að auka skil­virkni.

„Fyrst og fremst er um að ræða störf sviðs­stjóra sem leggj­ast niður, þar sem fækkað er í fram­kvæmda­stjórn. Einnig mun störfum í stoð­þjón­ustu (bók­haldi, skjala­vinnslu og UT) fækka. Auk þessa fækka ögn í hóp sér­fræð­inga, en ekki er talið að það muni hafa áhrif á fyr­ir­liggj­andi rann­sóknir. Vonir standa til að með breyttu skipu­riti verði aukin skil­virkni og flæði á milli sviða stofn­un­ar­innar. Það liggur í hlut­ar­ins eðli að eng­inn stjórn­andi vill vera í þeim sporum að hag­ræða þurfi í rekstri með upp­sögn­unum starfs­fólks en þessar aðgerðir hafa verið unnar í sam­ráði við ráðu­neytið,“ segir í svari Sóleyjar.

Ekki er langt síðan að starfs­fólk ann­arrar stofn­unar á sviði rann­sókna og eft­ir­lits í sjáv­ar­út­vegi, sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna breyt­inga sem stjórn­völd boð­uðu. Það var gert þegar stjórn­völd til­kynntu um flutn­ing Fiski­stofu til Akur­eyrar af höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2014, en svo til allir starfs­menn Fiski­stofu mót­mæltu því harð­lega þegar um það var til­kynnt, með skömmum fyr­ir­vara og engri kynn­ingu fyrir starfs­fólki og sér­fræð­ingum Fiski­stofu.

Í skýrslu Fiski­stofu um flutn­ing­ana, frá því 12. febr­úar á þessu ári, segir að kostn­aður við flutn­ing­inn sé umtals­verður og að hann sé við­var­andi baggi á starf­semi stofn­un­ar­innar, ofan á miklar manna­breyt­ingar. Nokkuð vel hafi þó tek­ist, að takast á við þessar breyt­ingar, og nýjar áherslur fylgi

„Kostn­aður við flutn­ing­inn er umtals­verður og hefur verið ákveð­inn baggi á stofn­un­inni og óljóst hvort fjár­fram­lög fáist að fullu vegna þess kostn­að­ar­auka sem orð­inn er og er fyr­ir­sjá­an­legur. Viðbúið er að slíkt geti ekki gengið lengi án þess að koma niður á starf­semi stofn­un­ar­innar. Ef horft er til lang­tíma kostn­að­ar­auka þá má segja að Fiski­stofa þurfi að fórna einu til tveimur stöðu­gildum til þess að standa 10 undir auknum kostn­aði vegna breyttrar stað­setn­ingar höf­uð­stöðv­anna komi ekki til var­an­legt við­bót­ar­fjár­magn til að mæta því,“ segir meðal ann­ars í skýrsl­unni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár