Án lóðasölu hefði RÚV verið ógjaldfært

Rík­is­end­ur­skoðun leggur til að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra fari með mál­efni RÚV, ekki mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Stofn­unin segir RÚV ekki hafa farið að lögum um stofnun dótt­ur­fé­laga.

Afkoma RÚV ohf. á árunum 2013 til 2018 var jákvæð um 1,5 millj­arða króna, en sú afkoma skýrð­ist fyrst og fremst af hagn­aði vegna sölu bygg­inga­réttar á lóð félags­ins við Efsta­leiti. Ef litið er á afkomu félags­ins fyrir tekju­skatt og sölu­hagnað hefði heild­ar­af­koma félags­ins á þessu tíma­bili verið nei­kvæð um 61 milljón króna. Án lóða­söl­unnar hefði RÚV ohf. orðið ógjald­fært.

Þetta er á meðal þess sem má finna í nið­ur­stöður stjórn­sýslu­út­tektar Rík­is­end­ur­skoð­unar á RÚV sem birt var í dag.

Þar bendir rík­is­end­ur­skoð­andi enn fremur á að RÚV beri að upp­fylla laga­legar skyldur um stofnun dótt­ur­fé­laga fyir aðra starf­semi en fjöl­miðlun í almanna­þágu. Það hafi RÚV ekki gert þrátt fyrir að laga­á­kvæði krefj­ist þess. „Rík­is­end­ur­skoð­andi bendir á að ekki sé val­kvætt að fara að lögum. Það er skylda RÚV ohf. að fara eftir þeim. Sé það aftur á móti vilji stjórn­valda að félagið raun­geri ekki ákvæðið ber þeim að stuðla að því að það verði fellt brott úr lögum. Á meðan svo er ekki ber RÚV ohf. að upp­fylla laga­legar skyldur sínar.“

[adspot]Rík­is­end­ur­skoð­andi bendir jafn­framt á að efla þurfi fjár­hags­legt eft­ir­lit með starf­semi RÚV og leggur til að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti fari með hlut rík­is­ins í félag­inu í stað mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytis. „Þá telur rík­is­end­ur­skoð­andi rétt að tryggt verði með betri hætti en nú er gert að a.m.k. hluti stjórn­ar­manna í RÚV hafi sér­þekk­ingu á fjár­málum.“

Þá er lagt til, til að auka gagn­sæi um aðskilnað fjöl­miðla í almanna­þjón­ustu og sam­keppn­is­rekstrar og tryggja fjár­hags­legan aðskilnað, að RÚV verði gert að verð­meta aug­lýs­inga­rými milli dag­skrár­liða og tekju- og gjald­færa með við­eig­andi hætti.

Margar leiðir til að auka rekstrarhæfi

Kjarninn hefur ítrekað greint frá því á und­an­förnum árum hvernig RÚV hefur getað aukið rekstr­ar­hæfi sitt með öðrum leiðum en auknum tekjum og fram­lögum úr rík­is­sjóði á síð­ustu árum. Árinu 2017 var afkoma RÚV jákvæð um 321 milljón króna og þar skipti hagn­aður af sölu á bygg­inga­lóðum í Efsta­leiti sköp­um, en heild­ar­sölu­verð þeirra var um tveir millj­arðar króna. Í fyrra var afkoman jákvæð um 2,2 millj­ónir króna.

Auk þess samdi RÚV í maí við Líf­eyr­is­­­sjóð starfs­­­manna rík­­­is­ins (LSR) um að breyta skil­­­málum á skulda­bréfi í eigu sjóðs­ins sem er til­­­komið vegna ógreiddra líf­eyr­is­skuld­bind­inga. Í sam­komu­lag­inu fólst að veru­­lega er lengt í greiðslu­­­ferli bréfs­ins, en loka­gjald­dagi þess er nú 1. októ­ber 2057 í stað 1. apríl 2025. Sam­hliða er höf­uð­­­stóll hækk­­­aður og vextir lækk­­­aðir úr fimm pró­­­sentum í 3,5 pró­­­sent. Þetta mun gera það að verkum að greiðsla skuld­­ar­innar mun teygja sig til nýrra kyn­slóða en fjár­­­magns­­gjöld sem RÚV greiðir árlega munu lækka umtals­vert. Þau voru 282,5 millj­­ónir króna í fyrra.

Umfangsmikill samkeppnisrekstur

Í sam­keppn­is­rekstri RÚV felst aðal­lega sala aug­lýs­inga og kost­unar en einnig útleiga af t.d. mynd­veri RÚV. Sam­keppn­is­rekstur skil­aði RÚV tæp­lega 2,4 millj­örðum króna í tekjur í fyrra sem bætt­ust við þá 4,3 millj­arða króna sem fyr­ir­tækið fékk fyrir að sinna almanna­þjón­ustu úr rík­is­sjóði.

Rík­is­end­ur­skoðun kemur með fjórar megin til­lögur til úrbóta í úttekt sinni. Sú fyrsta er að RÚV verði að fara að lögum og stofna dótt­ur­fé­lög fyrir aðra starf­semi sína en fjöl­miðlun í almanna­þágu. Í öðru lagi er RÚV gert að verð­meta rétt­inn til nýt­ingar á við­skipta­boðum. Í þriðja lagi að það þurfi að gæta sam­ræmis í eignum rík­is­ins og í fjórða lagi að efla þurfi fjár­hags­legt eft­ir­lit stjórnar RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár