Hagnaður Arion banka minnkar milli ára og arðsemi einnig

Erfiðar aðstæður eru nú á fjár­mála­mörk­uðum, og bera upp­gjör bank­anna það með sér.

Hagnaður sam­stæðu Arion banka á þriðja árs­fjórð­ungi 2019 nam 800 millj­ónum króna sam­an­borið við 1,1 millj­arð króna á sama tíma­bili 2018. Arðsemi eigin fjár var 1,6 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi 2019 sam­an­borið við 2,3 pró­sent á sama tíma­bili árið 2018.

Á þennan mæli­kvarða hefur arð­semi Arion banka verið áber­andi mikið lægri en hjá bæði Íslands­banka og Lands­bank­anum, en íslenska ríkið er eig­andi hinna tveggja síð­ar­nefndu. Markmið Arion banka er að arð­semi eigin fjár sé í kringum 10 pró­sent, til lengdar litið, sam­kvæmt stefnu sem stjórn bank­ans hefur sam­þykkt.

Mark­aðsvirði Arion banka er nú 133 millj­örðum króna, en eigið fé er 196 millj­arðar.

Hagnaður af áfram­hald­andi starf­semi nam 3,8 millj­ónum króna á þriðja árs­fjórð­ungi og 8,8 millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum 2019, sam­an­borið við 1.351 milljón króna á þriðja árs­fjórð­ungi 2018 og 6.805 millj­ónir króna fyrir fyrstu níu mán­uði árs­ins 2018. Arðsemi eigin fjár af áfram­hald­andi starf­semi var um 8,5 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi og 6,5 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019. Dótt­ur­fé­lögin Valitor Holding, Stakks­berg og TravelCo eru skil­greind sem eignir til sölu.

Heild­ar­eignir Arion banka námu 1.213 millj­örðum króna í lok sept­em­ber 2019 sam­an­borið við 1.164 millj­arða króna í árs­lok 2018. Lán til við­skipta­vina lækk­uðu um 21,3 millj­arða króna eða 3 pró­sent og er það í sam­ræmi við auknar áherslur bank­ans á arð­semi fremur en lána­vöxt. Eigið fé nam 196 millj­örðum króna, eins og áður segir, sam­an­borið við 201 millj­arð króna í árs­lok 2018.

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans, að teknu til­liti til afkomu á þriðja árs­fjórð­ungi, var 23,6% í lok sept­em­ber 2019 en var 22,0% í árs­lok 2018. Hlutfall almenns eig­in­fjár­þáttar 1, að teknu til­liti til afkomu á þriðja árs­fjórð­ungi, nam 21,6% í lok sept­em­ber 2019, sam­an­borið við 21,2% í árs­lok 2018.

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, segir í yfir­lýs­ingu að bank­inn muni leggja upp með að efl­ast þjón­ustu og hag­kvæmni í rekstri. „Bankinn kynnti í lok þriðja árs­fjórð­ungs umfangs­miklar skipu­lags­breyt­ingar og nýjar áherslur í starf­sem­inni. Markmið breyt­ing­anna er að styrkja sam­keppn­is­hæfni bank­ans og auka arð­semi eig­in­fjár. Við þessar breyt­ingar fækk­aði starfs­fólki bank­ans um 12% og sviðum bank­ans um tvö. Stefna bank­ans um að veita við­skipta­vinum sínum fjöl­breytta fjár­mála­þjón­ustu og vera í far­ar­broddi þegar kemur að staf­rænni fjár­mála­þjón­ustu er óbreytt. Hins vegar má segja að um ákveðna áherslu­breyt­ingu sé að ræða þegar kemur að fjár­mögnun fyr­ir­tækja. Vegna hárra skatta og mik­illa eig­in­fjár­kvaða á fjár­mála­fyr­ir­tæki getur verið hag­stæð­ara fyrir sum fyr­ir­tæki að fjár­magna sig með öðrum hætti en hefð­bundnum banka­lánum. Arion banki ætlar að efla þjón­ustu við þessi fyr­ir­tæki, vera ráð­gef­andi um hag­stæð­ustu fjár­mögnun hverju sinni og vera öfl­ugur sam­starfs­að­ili með heild­ar­hags­muni þeirra í fyr­ir­rúmi.

Arion banki leggur ríka áherslu á jafn­rétt­is­mál en bank­inn hefur verið með jafn­launa­vottun frá árinu 2015. Fyrir um ári fékk bank­inn svo fyrstur banka heim­ild til að nota jafn­launa­merki vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Eftir að bank­inn var skráður í kaup­höll­ina hér á landi og í Stokk­hólmi þá hafa bæði sænskir og alþjóð­legir aðilar í auknum mæli tekið bank­ann út hvað varðar sam­fé­lags­á­byrgð og stöðu jafn­rétt­is­mála. Nýverið tók Allbrigt stofn­unin í Svíþjóð út stöðu jafn­rétt­is­mála hjá öllum skráðum fyr­ir­tækjum í kaup­höll­inni í Stokk­hólmi, alls 333 fyr­ir­tæki, og það er ánægju­legt að Arion banki er þar í 25. sæti. Það er góður árangur en við ætlum okkur að gera enn betur í þessum efnum.

Við kynntum nýverið nýj­ustu við­bót­ina við Arion appið og er þar um að ræða þjón­ustu í anda opinna banka­við­skipta. Þessa lausn unnum við í góðu sam­starfi við fjár­tækni­fyr­ir­tækið Meniga og gerir hún öllum þeim sem eru með Arion appið kleift að sjá á einum stað yfir­lit yfir reikn­inga sína og kort hjá Arion banka, Lands­bank­anum og Íslands­banka. Þessar upp­lýs­ingar eru svo teknar saman og flokk­aðar eftir útgjalda­liðum heim­il­is­ins, en þannig fæst ein­stök yfir­sýn yfir tekjur og útgjöld heim­il­is­ins og þróun þeirra yfir tíma. Hafa mót­tökur við­skipta­vina verið mjög góðar og geta allir sem ekki eru nú þegar með Arion appið sótt það og byrjað að nýta þessa nýju þjón­ustu,“ segir Benedikt Gíslason í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár