Gisting í gegnum Airbnb heldur áfram að dragast saman

Framboð á Airbnb gist­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur dreg­ist umtals­vert saman það sem af er ári. Samhliða því hafa gistin­óttum í gegnum vef­síð­una Airbnb á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fækkað um 16 pró­sent á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins.

Umtals­verð fækkun hefur orðið í gist­ingu erlendra ferða­manna í gegnum vef­síður á borð við A­ir­bnb það sem af er ári. Alls hefur gistin­óttum á Airbnb fækkað um 16 pró­sent á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins og veltan dreg­ist saman um 7 pró­sent í krónum talið. Þá hefur fram­boð á íbúðum og húsum á Airbnb á höf­uð­borg­ar­svæð­inu einnig dreg­ist saman.

Gistinóttum fækkaði um 17 prósent í ágúst

Airbnb gist­ing á Íslandi tók af stað árið 2015 þegar erlendum ferða­mönnum fjölg­aði um 30 pró­sent á milli ára. Í nýrri ferða­þjón­ustu­grein­ingu Lands­bank­ans kemur fram að bank­inn áætlar að árið 2015 hafi hlut­deild Airbnb af sam­an­lögðum gistin­óttum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verið 14 pró­sent. Mark­aðs­hlut­deild Airbnb óx hratt og náði hámarki á síð­asta ári í um 38 pró­sentum.[adspot]

Það sem af er þessu ári hefur mark­aðs­hlut­deild Airbnb hins vegar lækkað í fyrsta sinn síðan 2015 en grein­ing­ar­deild Lands­bank­ans áætlar að hlut­deild vef­síð­unnar hafi verið um 36 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrstu 7 mán­uði árs­ins.

Fjöldi gistinótta í gegnum Airbnb byrj­aði að drag­ast saman í nóv­em­ber 2018 ef borið er saman við sama mánuð árið á undan. Þá hefur gistin­óttum í gegnum Airbnb á fyrstu sjö mán­uði árs­ins fækkað um 145 þús­und á höf­uð­borg­ar­svæð­inu miðað við sama tíma­bil í fyrra, sem er um 15,6 pró­sent sam­dráttur.

Jafn­framt dróst gist­ing í gegnum Airbnb saman um 17 pró­sent í ágúst miðað við árið á undan en til sam­an­burðar dróst heild­ar­fjöldi greiddra gistin­átta í ágúst saman um 3 pró­sent á milli ára, sam­kvæmt nýj­ustu tölum Hagstofu Íslands.

Rúmlega 300 færri íbúðir

[links]Í ferða­þjón­ustu grein­ingu Lands­bank­ans kemur jafn­framt fram að fram­boð af Airbnb íbúðum og húsum hefur dreg­ist saman á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á síð­ustu mán­uðum, ef miðað er við sama tíma­bil í fyrra. Í júlí dróst fram­boð íbúða saman um 8,4 pró­sent miðað við sama mánuð í fyrra en það er mesti sam­dráttur í fram­boði frá því að Airbnb ævin­týrið hófst hér á landi, sam­kvæmt Lands­bank­anum.

Í júlí voru skráðar rúm­lega 2.800 Airbnb íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 628 hús. Samtals hefur fram­boð á íbúðum og húsum fækkað um 317 frá júlí í fyrra

Þá dróg­ust leigu­tekjur af gisti­rýmum á höf­uð­borg­ar­svæðin saman um 21 pró­sent mælt í Banda­ríkja­dölum, úr tæpum 68 millj­ónum í 53 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Vegna veik­ingar krón­unnar milli ára var sam­drátt­ur­inn minni í krónum talið, eða 7 pró­sent, sem nemur ríf­lega 500 millj­ónum króna.

Airbnb í sókn utan höfuðborgarsvæðisins

Framboð á Airbnb íbúðum hefur þó ekki dreg­ist saman í öllum lands­hlutum. Enn er tölu­verð aukn­ing á svæðum sem liggja hvað lengst frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu; á Aust­ur­landi, Norð­ur­landi eystra og Vest­fjörðum. Í júlí nam aukn­ingin á þessum svæðum frá 11 til 20 pró­sent sam­kvæmt grein­ingu Lands­bank­ans. Jafn­framt varð nokkur aukn­ing á Vest­ur­landi, eða um 14 pró­sent.

Gistinætur hafa verið um 40 pró­sent sam­an­legra gistinótta hót­ela og Airbnb utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins það sem af er þessu ári. Það er aukn­ing um um 1 pró­sentu­stig miðað við allt árið í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár