Airbnb-íbúðir virðast ekki rata í auknum mæli á fasteignamarkað

Þrátt fyrir 29 pró­sent sam­drátt í gist­ingu erlendra ferða­manna í gegnum Airbnb þá eru ekki sér­stakar vís­bend­ingar um að Airbnb-íbúðir séu að rata í auknum mæli inn á fast­eigna- eða lang­tíma­leigu­mark­að­inn.

Fækkun hefur orðið í gist­ingu erlendra ferða­manna í gegnum vef­síður á borð við Airbnb en sam­kvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands hefur slíkum gistin­óttum fækkað um 29 pró­sent milli ára. Engar sterkar vís­bend­ingar eru hins vegar um að miklar flutn­ingar hafi átt sér stað á íbúðum úr skamm­tíma­leigu yfir á fast­eigna- eða lang­tíma­leigu­mark­að­inn það sem af er ári, sam­kvæmt nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs. 

Ekki mikil hreyfing á Airbnb

Í nýrri skýrslu Íbúða­lána­sjóðs er skoðað hvort að fram­boð af litlum og með­al­stórum íbúðum, en það eru algengn­ustu íbúð­irnar á Airbnb, hafi minnkað og hvort að vís­bend­ingar séu um að íbúð­irnar séu farnar að leita inn á lang­tíma­leigu­mark­að­inn eða fast­eigna­mark­að­inn.

Samkvæmt skýrsl­unni hefur fjöldi eins til þriggja her­bergja Airbnb-íbúða auk­ist tölu­vert á síð­ustu fjórum árum, þótt að hægt hafi á aukn­ingu frá árinu 2017. Á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins var fjöldi eins til þriggja her­bergja íbúða á skrá hjá Airbnb, nær óbreyttur frá sama tímabili í fyrra.

Ekki má því greina fækkun slíkra íbúða hjá Airbnb að und­anförnu þrátt fyrir nokkra aukn­ingu í fast­eigna­auglýsingum fyrir íbúðir af þess­ari gerð á sama tíma, sam­kvæmt skýrsl­unni. Þá var var ekki unnt að greina aukn­ingu á langtímaleigu eins til þriggja her­bergja íbúða í skýrsl­unni, en fjöldi þinglýstra leigu­samn­inga slíkra íbúða hefur hald­ist tiltölulega stöðugur frá árinu 2017.

Því segir í skýrsl­unni að ekki séu sterkar vísbend­ingar um að miklir flutn­ingar hafi átt sér stað á umræddum íbúðum úr skammtímaleigu yfir á fast­eigna- eða leigu­mark­að­inn það sem af er ári. Hins vegar verði að hafa í huga að mögulegt sé að íbúðir hald­ist á skrá hjá Airbnb þrátt fyrir að vera á sama tíma auglýstar til langtímaleigu eða sölu.

Þriggja prósenta raunhækkun í veltu á höfuðborgarsvæðinu á milli ára

Tólf mán­aða hækk­un­ar­þró­unin í vísi­tölu íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur á und­an­förnum árum sveifl­ast á milli tæp­lega 4 pró­sent og upp í nær 6 pró­sent, í kjöl­far tals­vert snarpra hækk­ana á árunum 2016 til 2017.

Vísitala íbúðaverðs á höfuð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 0,3 pró­sent á milli apríl og maí, sem er nánast sami hækk­un­ar­taktur og í mánuð­inum á undan. Árshækkun vísitölunnar mælist nú um 3,9 pró­esnt sam­an­borið við 4,7 pró­sent árshækkun í apríl og 5,2 pró­sent í maí í fyrra.[adspot]

Ef horft er til mánað­ar­legrar veltu fast­eigna- mark­að­ar­ins á höfuð­borg­ar­svæð­inu mælist ríflega 6 pró­sent veltu­aukn­ing í krónum talið fyrstu fimm mánuði þessa árs frá sama tímabili árið áður, sem er tæp­lega 3 pró­sent raunaukn­ing að teknu til­liti til verðbólgu og heild­ar­fjöldi kaup­samn­inga verið nánast sá sami.

6 prósent aukning í fjölda seldra íbúða í sérbýli

Fyrstu fimm mánuði árs­ins mæld­ist um 0,1 pró­sent fjölda­aukn­ing kaup­samn­inga á milli ára. Þar af hefur verið 6 pró­sent aukn­ing í fjölda seldra íbúða í sérbýli en 1,2 pró­sent samdráttur í sölu íbúða í fjölbýli. Veltu­aukn­ing yfir umrætt tímabil mælist 13,4 pró­sent miðað við fast verð­lag á íbúðum í sérbýli en á sama tíma 0,6 pró­sent­samdráttur í veltu íbúða í fjölbýli.

Á sama tíma og aukn­ing hefur orðið í fjölda seldra íbúða í sérbýli á höfuð­borg­ar­svæð­inu hefur með­alsölutími þeirra íbúða verið heldur að lengj­ast. Meðalsölutími þeirrar teg­undar íbúða sem seld­ust frá janúar til maí voru 109 dagar sam­an­borið við 96 daga yfir sama tímabil í fyrra. Samkvæmt skýrsl­unni benda þessar tölur til þess að fram­boð sérbýlisíbúða sem eru auglýstar til sölu hafi því auk­ist enn meira en hin aukna eft­ir­spurn.

Meðalsölutími íbúða í fjölbýli hefur aftur á móti lengst minna á milli ára. Það sem af er ári hefur að með­al­tali tekið 94 daga að selja fjölbýlisíbúð á höfuð­borg­ar­svæð­inu sam­an­borið við 89 daga á fyrstu fimm mánuðum ársins 2018. Meðalsölutími íbúða alls á höfuð­borg­ar­svæð­inu mæld­ist 101 dagur í maí sam­an­borið við 87 daga í sama mánuði í fyrra.

8 prósent íbúða seldust á hærra verði en ásettu

Um 80 pró­sent allra íbúðavið­skipta á höfuð­borg­ar­svæð­inu í maímánuði áttu sér stað undir ásettu verði og um 8 pró­sent seld­ust á hærra verði en ásettu ef miðað er við verð í nýjustu fast­eigna­auglýsingu áður en kaup­samn­ingur var und­ir­rit­aður. Til sam­an­burðar var hlut­fall íbúða sem seld­ust undir ásettu verði um 71 pró­sent í maí í fyrra og 11 pró­sent yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár