Vilja kanna starfshætti í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum

Þing­maður Sam­fylk­ingar vill að rann­sókn­ar­nefnd fari ofan í saumana á mögu­legri mis­beit­ingu valds ásamt því að kanna hvort ólög­mætum aðferðum hafi verið beitt við rann­sóknir lög­reglu og við með­ferð dóm­stóla á árunum 1975 til 1980.

Lögð hefur verið fram til­laga til þings­á­lykt­unar um skipun rann­sókn­ar­nefndar til að fara yfir starfs­hætti lög­reglu­valds, ákæru­valds og dóms­valds í Guð­mundar- og Geir­finns­málum.

Fyrsti flutn­ings­maður er Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Með henni eru flokks­fé­lagar hennar, þau Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, Ágúst Ólafur Ágústs­son, Guðjón S. Brjáns­son, Guð­mundur Andri Thorsson, Logi Ein­ars­son og Oddný G. Harð­ar­dóttir.

Leggja þau til að nefndin kanni hvort og þá hvaða mein­bugir hafi verið á starfs­háttum ákæru­valds og lög­reglu við með­ferð mál­anna sem og máls­með­ferð fyrir dómi. Rann­sóknin taki einnig til aðkomu þýska rann­sókn­ar­lög­reglu­manns­ins Karls Schütz.

Vilja loksins fá skiljanlegan botn í málin

Til­gangur til­lög­unnar „er að fá loks­ins skilj­an­legan botn í hin gömlu Guð­mundar- og Geir­finns­mál með rann­sókn á mögu­legri mis­beit­ingu valds og ólög­mætum aðferðum, þeim veiga­miklu þáttum sem rétt­ar­kerfið hefur aldrei treyst sér til að taka til skoð­unar.“

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að lagt sé til að Alþingi skipi rann­sókn­ar­nefnd til að fara ofan í saumana á mögu­legri mis­beit­ingu valds ásamt því hvort ólög­mætum aðferðum hafi verið beitt við rann­sóknir lög­reglu á svo­nefndum Guð­mundar- og Geir­finns­málum og við með­ferð dóm­stóla á ára­bil­inu 1975 til 1980.

„Fjöl­margt hefur verið um málin fjallað og nýr sýknu­dómur Hæsta­réttar frá 27. sept­em­ber 2018 varð­andi mann­dráps­málin tvö stað­festir að máls­með­ferð var aug­ljós­lega ekki sam­kvæmt lögum. Máls­með­ferð hefur þó ekki verið rann­sökuð mark­visst né heldur hefur hún sem slík komið til kasta dóm­stóla en nauð­syn­legt er að ljúka mál­unum í eitt skipti fyrir öll með því að Alþingi skipi rann­sókn­ar­nefnd til að fara yfir máls­með­ferð alla. Svonefnd „harð­ræð­is­rann­sókn“ Þóris Odds­sonar frá 1979 var að vísu lögð fyrir Hæsta­rétt, en hafði lítil eða engin áhrif, enda má velta fyrir sér hvort til­urð og fram­kvæmd þeirrar rann­sóknar sé sér­stakt rann­sókn­ar­efni,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Skýrsla starfs­hóps um Guð­mundar- og Geir­finns­mál undir for­ystu Arndísar Soffíu Sig­urð­ar­dóttur frá 2013 er ítar­leg, að mati þing­manna Sam­fylk­ing­ar­innar, og telja þau þar vera fjöl­margar vís­bend­ingar um alvar­lega mis­beit­ingu valds ásamt því að farið hafi verið mjög á svig við lög og reglur. „Þá hljóta nið­ur­stöður réttar-sál­fræð­ing­anna Gísla H. Guð­jóns­sonar og Jóns Friðriks Sig­urðs­sonar í 19. kafla skýrsl­unnar og í vitna­skýrslu fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 28. jan­úar 2016 að telj­ast hafa mikla þýð­ingu í þessu sam­hengi. Einnig má nefna harð­ræð­is­rann­sókn Stein­gríms Gauts Krist­jáns­sonar, skip­aðs dóm­ara, frá 1976, sem veitir vissa inn­sýn í harð­ræði sem beitt var í Síðu­múlafang­els­inu, þótt hún snú­ist um aðra fanga en þá sem um ræðir í Guð­mundar- og Geir­finns­málum. Loks er vert að vísa til úrskurða end­ur­upp­töku­nefnda vegna Guð­mundar- og Geir­finns­mála þar sem gerð er ítar­leg grein fyrir marg­vís­legum ann­mörkum á með­ferð máls hvort tveggja hjá lög­reglu sem og fyrir dóm­stólum.“

Dómur frá árinu 1980 stendur enn óhaggaður

Nú liggur fyrir sýknu­dómur Hæsta­réttar varð­andi mann­dráps­málin tvö en dómur Hæsta­réttar frá 1980 stendur enn óhagg­aður að því er varðar rangar sak­ar­giftir á hendur fjórum sak­lausum mönnum. Í hinum nýja dómi Hæsta­réttar er ekk­ert fjallað um máls­at­vik heldur grund­vall­ast nið­ur­staðan ein­vörð­ungu á kröfu setts rík­is­sak­sókn­ara, segir í grein­ar­gerð­inni.

„Strax af þeim gögnum sem lágu fyrir Sakadómi Reykja­víkur 1977 virð­ist aug­ljóst að meg­in­reglur saka­mála­réttar hafi verið brotnar við marg­vís­leg tæki­færi. Aug­ljósust og algeng­ust virð­ast brot á skyld­unni til að rann­saka jafnt þau atriði sem benda til sýknu og hin sem horfa til sektar. Í Guð­mund­ar­mál­inu mein­uðu saka­dóm­arar lög­reglu­manni að rann­saka mögu­lega fjar­vist­ar­sönnun Sævars Ciesielski og í Geir­finns­mál­inu létu dóm­ar­arnir alveg undir höfuð leggj­ast að kanna sann­leiks­gildi fjar­vist­ar­sönn­unar sem Sævar lagði sjálfur fram í bréfi til rétt­ar­ins mán­uði áður en rétt­ar­höld hófust. Lýsingu Sævars í þessu bréfi á frétta­mynd í sjón­varp­inu ásamt nýju sönn­un­ar­gagni, sem lagt var fyrir end­ur­upp­töku­nefnd, kallar Gísli H. Guð­jóns­son „…credible evidence that Saevar had an alibi …“ í bók sinni The Psychology of False Confessions (bls. 457) sem út kom 2018. Í gögnum máls­ins má líka finna nokkur þýð­ing­ar­mikil dæmi þess að skýrslur hafi ekki verið teknar af vitnum þegar vitn­is­burð­ur­inn þótti ekki benda í rétta átt. Það virð­ist jafn aug­ljóst að sak­born­ingar voru sjaldn­ast látnir njóta vafans. Um þetta eru fjöl­mörg dæmi bæði í dómi Sakadóms Reykja­víkur 1977 og dómi Hæsta­réttar 1980. Orðalag á borð við „Ætla verður …“, „Miða verður við …“ og „Leggja verður til grund­vallar …“ ber ekki vott um fulla vissu. Bæði í saka­dómi og Hæsta­rétti tald­ist sannað að Erla Bolla­dóttir hefði fengið far í tveimur áföngum frá Keflavík til Hafn­ar­fjarðar að morgni 20. nóv­em­ber 1974. Gögnin að baki þess­ari full­yrð­ingu sýna þvert á móti að stúlkan sem þarna var á ferð gat ekki hafa verið Erla.“

Fengu fölsuð gögn í hendur

Þá segir í grein­ar­gerð­inni með til­lög­unni að dóm­arar, ákæru­vald og verj­endur hafi bein­línis fengið fölsuð gögn í hendur þegar lögð voru fram „stað­fest end­ur­rit“ úr fang­els­is­dag­bók Síðu­múlafang­els­is­ins. Fulltrúi yfir­saka­dóm­ara hafi ekki fært í dóma­bók­ina kæru Sævars Ciesielski um mis­þyrm­ingar þann 11. jan­úar 1976. Fyrir liggi skrif­leg játn­ing varð­andi þetta atriði. Fleiri lög­brot virð­ist jafn­framt lík­leg. Reykja­vík­ur­lög­reglan hafi hand­tekið mann til að yfir­heyra hann sem vitni. For­sendur gæslu­varð­halds­úr­skurða virð­ist einnig stundum vafa­samar og allt of óljóst til­greindar.

„Veiga­mikil rök hafa verið færð fyrir því að sak­born­ing­arnir í Geir­finns­mál­inu hafi alls ekki farið til Kefla­víkur að kvöldi 19. nóv­em­ber 1974. Dvöl Sævars Ciesielski og Erlu Bolla­dóttur á Kjar­vals­stöðum þetta kvöld fer langt með að úti­loka þann mögu­leika, auk þess sem komið hefur í ljós að sjón­varpið sýndi í raun og sann þá frétta­mynd sem Sævar reyndi að lýsa í bréfi sínu til dóm­ar­anna í sept­em­ber 1977.“

Nefndin stakk erindi Ragnars undir stól

Eftir sýknu­dóm Hæsta­réttar þann 27. sept­em­ber 2018 verða rangar sak­ar­giftir ekki lengur skýrðar með sam­særi þriggja sak­born­inga til að beina grun­semdum frá sjálfum sér, sam­kvæmt grein­ar­gerð­inni. „Af máls­gögn­unum virð­ist líka helst mega ráða að rann­sak­endur máls­ins, tveir rann­sókn­ar­lög­reglu­menn og full­trúi yfir­saka­dóm­ara, hafi fengið þrjá sak­born­inga til að bera vitni í þeim til­gangi að geta hand­tekið þá menn sem rann­sak­end­urnir sjálfir töldu bera ábyrgð á dauða Geir­finns Ein­ars­sonar í tengslum við umfangs­mikið áfeng­is­smygl.

End­ur­upp­töku­nefnd hafn­aði end­ur­upp­töku á grund­velli b-liðar 1. mgr. 211. gr. laga um með­ferð saka­mála, en þar er fjallað um refsi­verða hátt­semi starfs­manna rétt­ar­kerf­is­ins (Úrsk. SMC, mgr. 2820 og víðar). Stakk nefndin undir stól erindi Ragnars Aðal­steins­sonar lög­manns þar sem hann lagði fram nýtt gagn í mál­inu og færði einmitt rök fyrir því að „upp­fyllt séu skil­yrði refs­ingar“. Nefndin gat þessa erindis ein­ungis í upp­taln­ingu og nefndi það „sjón­varps­dag­skrá“, en þótt hér væri lagt fram alveg nýtt sönn­un­ar­gagn fékk erindið alls enga umfjöllun. Slík vinnu­brögð geta ekki talist við­un­andi í nútím­anum og ný rann­sókn­ar­nefnd Alþingis hlýtur að kalla eftir skýr­ingum á þessu atriði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár