Ásaka Glitni um að klippa sjö sentimetra neðan af samningum

Deilumál milli Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur og Glitnis vegna afleiðu­samn­inga upp á tvo millj­arða króna sem gerðir voru í aðdrag­anda hruns­ins standa enn yfir. Útgerð­ar­fé­lagið kærði Glitni til lög­reglu í fyrra fyrir að klippa neðan af samn­ing­unum.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, félag í meiri­hluta­eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar sem er stærsti eig­andi Brim, kærði þann 17. apríl í fyrra hátt­sett­semi Glitni HoldCo sem í fólst að, að sögn fyr­ir­tæk­is­ins, að „rang­færa sönn­un­ar­gögn“ í dóms­máli milli aðila. Í árs­reikn­ingi félags­ins segir að sú hátt­semi hafi falið í sér „að „klippa“ eða fjar­lægja með öðrum hætti, 7 cm neðan af öllum samn­ingum svo að þeir myndu líta út á annan veg en þeir gerðu.“

[links]Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hefur verið í deilum við þrotabú Glitnis banka, sem nú heitir Glitnir HoldCo, árum saman vegna 31 afleiðu­samn­inga sem gerðir voru haustið 2008, rétt áður en að íslenska banka­kerfið hrundi. Samn­ing­arnir eru upp á alls um tvo millj­arða króna. Útgerð­ar­fé­lagið hefur ávallt neitað kröf­unni og hún ekki verið færð í rekstur eða efna­hag fyr­ir­tæk­is­ins. 

Glitnir höfð­aði mál sum­arið 2012 og krafð­ist þess að Útgerð­ar­fé­lagið, sem þá hét enn Brim, myndi greiða millj­arð­anna tvo auk drátt­ar­vaxta. Málið hefur þvælst um innan dóms­kerf­is­ins alla tíð síðan og er enn óleyst, en í árs­reikn­ingi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur segir m.a. um þetta mál að fyrir liggi „að eng­inn starfs­maður Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur hf. hafi beðið um eða gert 23 af 31 samn­ingi sem gerð er krafa um greiðslu á í dóms­mál­inu og mynda um 90 pró­sent af kröfu Glitnis Holdco ehf.“

[adspot]Málið hefur tekið á sig margs­konar myndir. Meðal ann­ars kærði Útgerð­ar­fé­lagið fram­ferði Ólafs Eiríks­sonar, lög­manns Glitnis HoldCo, í dóms­mál­inu til Úrskurð­ar­nefndar lög­manna sem úrskurð­aði í mál­inu þann í lok jan­úar í fyrra. Þar var hátt­semi hans, sem í fólst að veita lyk­il­vitni rangar upp­lýs­ingar um stað­reyndir og láta hjá líða að til­kynna Útgerð­ar­fé­lag­inu að til stæði að hafa sam­band við vitnið, sögð vera aðfinnslu­verð.

Þá kærði Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur til lög­reglu, þann 17. apríl 2018, það sem í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins er kallað þá „hátt­semi að rang­færa sönn­un­ar­gögn“ í dóms­mál­inu. Sú hátt­semi á að hafa falið í sér „að „klippa“ eða fjar­lægja með öðrum hætti, 7 cm neðan af öllum samn­ingum svo að þeir myndu líta út á annan veg en þeir gerðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár