Gert ráð fyrir fjármagni til einkarekinna fjölmiðla í fjárlagafrumvarpi

Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar sem kynnt var í morgun munu 400 millj­ónir króna renna í stuðn­ings­greiðslur við einka­rekna fjöl­miðla á næsta ári. Framlög rík­is­ins til RÚV aukast um 190 millj­ónir króna á næsta ári.

Gert er ráð fyrir að 400 millj­ónir króna fari í stuðn­ing við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla á næsta ári í nýju fjár­laga­frum­varpi.

[links]Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, lagði frum­varp um stuðn­ing við einka­rekna miðla fram í vor og það hefur verið afgreitt úr rík­is­stjórn. Hún á þó enn eftir að mæla fyrir því á Alþingi. Andstaða hefur verið við það innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, en sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar stendur vilji hennar til að fjár­magna áform Lilju á næsta ári. Af þeim 400 millj­ónum króna sem eyrna­merktar eru þessum til­gangi eiga 50 millj­ónir króna að renna til text­unar og tal­setn­ingar.

Til við­bótar við 350 milljón króna greiðslu vegna beinna styrkja til einka­rek­inna fjöl­miðla á að styðja við slíka með stuðn­ingi sem nemi allt að 5,15 pró­­­sent af launum starfs­­­fólks á rit­­­stjórn sem fellur undir lægra skatt­­­þrep tekju­skatts­­­stofna. Umfang þeirrar aðgerðar er metið 170 millj­ónir króna. Því eiga áformin í heild að kosta um 520 millj­ónir króna á ári.

Fjórðungur kostnaðar upp að þaki

Mark­miðið með aðgerð­unum er að efla hlut­verk rík­­­is­ins, þegar kemur að fjöl­miðlaum­hverf­inu, og styrkja rekstr­­­ar­um­hverf­ið, en í frum­varp­inu felst meðal ann­­­ars að stíga fyrstu skrefin í átt að því sem þekkst hefur á Norð­­­ur­lönd­unum um ára­bil. Í frum­varp­inu er lagt til að stuðn­­­ingur rík­­­is­ins við einka­rekna fjöl­miðla verði tví­­­þætt­­­ur.

[adspot]Sá stuðn­ingur sem nú er gert ráð fyrir í fjár­laga­frum­varp­inu felur í sér að veita stjórn­­völdum heim­ild til að styðja við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla í formi end­­ur­greiðslu á allt að 25 pró­­sent af til­­­teknum hluta ­rit­­stjórn­­­ar­­kostn­að einka­rek­inna fjöl­miðla. Skil­yrði fyrir styrknum verða að við­tak­endur upp­­­fylli ýmis skil­yrði fjöl­miðla­laga, efni þeirra sé fjöl­breytt og fyrir allan almenn­ing og bygg­ist á frétt­um, frétta­tengdu efni og sam­­fé­lags­um­ræðu í víðum skiln­ing­i.

Lagt er til að lögin taki gildi 1. jan­úar 2020 og end­­ur­greiðslur mið­ist við síð­­ast­liðið ár.Gert er ráð fyrir end­­ur­greiðslu­hæfur kostn­aður verði bund­inn við beinan launa­­kostnað blaða- og frétta­­manna, rit­­stjóra og aðstoð­­ar­­rit­­stjóra, mynda­­töku­­manna, ljós­­mynd­­ara og próf­­arka­­les­­ara auk verk­taka­greiðslna fyrir sömu störf.

Hlut­fall end­­ur­greiðslu verði að hámarki vera 25 pró­­sent af kostn­aði við fram­an­­greint, þó ekki hærri en 50 millj­­ón­ir til hvers umsækj­anda vegna síð­­ast­lið­ins árs. Jafn­­framt kom fram í frum­varps­drög­unum að heim­ild sé til að veita stað­bundnum fjöl­miðlum við­­bótar end­­ur­greiðslu.

Framlög til RÚV aukast

Útvarps­gjaldið hækkar um 2,5 pró­sent milli ára og áætl­aðar tekjur Rík­is­út­varps­ins (RÚV) vegna þeirra aukast um 190 millj­ónir króna. Áætlað er að útvarps­gjaldið veðri 4.780 millj­ónir króna á næsta ári.

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra sagði í ágúst að í und­ir­bún­ingi væri að RÚV hverfi af aug­lýs­inga­mark­aði. Rík­is­miðl­inum verði hins vegar bætt upp það tekju­tap en hann hefur haft yfir tvo millj­arða króna í slíkar tekjur á und­an­förnum árum.

Þjón­ustu­samn­ingur RÚV við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­ið, sem skil­greinir hlut­verk, skyldur og umfang RÚV, rennur út í lok þessa árs. Heim­ildir Kjarn­ans herma að vinna við nýjan samn­ing sé þegar hafin en sá mun taka gildi í byrjun næsta árs.

Á meðal þess sem er undir í þeirri vinnu er hvernig starf­semi RÚV verður fjár­mögnuð og hvort að RÚV verði áfram heim­ilt að sækja sér tekjur á sam­keppn­is­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár