Sigurður Ingi vill ganga eins langt og hægt er í nýrri löggjöf um jarðakaup

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, seg­ist binda vonir við að frum­varp um jarða­kaup útlend­inga hér á landi verði til­búið snemma í haust.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­harra, von­ast til að að frum­varp um jarða­kaup útlend­inga hér á landi verði til­búið snemma í haust. Hann segir í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag að laga­breyt­ingar sem gerðar voru árin 2003 og 2004 hafi tekið niður allar „eðli­legar girð­ingar“ er varða jarða­kaup. Hann segir jafn­framt að sú þróun sem hafi átt sér stað síð­ustu ár sé alveg óvið­un­andi.

Óviðunandi þróun

[links]Morg­un­blaðið greindi frá því í fyrra­dag að Fljóta­bakki ehf., íslenskt dótt­ur­fé­lag banda­rísku ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Eleven Experience, hefði keyt jörð­ina Atla­staði í Sval­fjarð­ar­dal. Síðasta haust bár­ust fregnir af því að Fljóta­bakki hefði keypt jörð­ina Hraun í Fljót­um og hygð­ist koma þar upp ferða­þjón­ustu. Skömmu áður hafði fé­lagið keypt land Nefstaða við Stíflu­vatn í Fljót­um. Þá á fé­lagið jarð­irn­ar Knapps­staði, Steina­velli og Stóru-Brekku í Fljót­un­um, auk Depla.

Enn fremur var greint frá því fyrr í vik­unni að fé­lagið Sól­staf­ir, í eigu breska auð­kýf­ings­ins Jim Ratcliffe, festi ný­verið kaup á Jörðinni Brú­ar­landi 2 í Þistil­f­irði. Eft­ir kaup­in eiga fé­lög í eigu Ratcliffe meiri­hluta veiði­rétt­ar í Hafra­lónsá, sem er vin­sæl lax­veiðiá í Þistil­f­irði. Fé­lagið hef­ur und­an­far­in ár keypt fjölda jarða í Vopna­firði og Þistil­f­irði.

Sigurður Ingi segir þessa þróun síð­ustu ára vera alveg óvið­un­andi. „Þess vegna hafa stjórn­völd verið með það til skoð­unar hvaða leiðir séu færar til að hafa þetta umhverfi með eðli­legri hætti og lík­ara því sem við þekkjum bæði í Noregi og Danmörku,“ segir Sigurður í sam­tali við Morg­un­blaðið, spurður um jarða­kaup erlendra aðila, þar á meðal Atla­staði.

Frumvarp í haust

Í lok sept­em­ber í fyrra var skip­aður starfs­hópur til að end­ur­skoða lög um eign­ar­hald á bújörðum. Starfs­hóp­ur­inn lagði meðal ann­ars til að skil­yrði yrði sett um að eig­endur jarða byggju sjálfir á jörð­inni og að erlendir eig­endur þyrftu að hafa þar lög­heim­ili.

Sigurður Ingi segir að nú sé vinna í gangi á vegum stjórn­valda í tengslum við til­lögur starfs­hóps­ins en mál­efnið varðar marga laga­bálka undir ólíkum ráðu­neytum. Hann seg­ist jafn­framt að von­ast sé eftir því frum­varp um jarða­kaup verði til­búið snemma í haust.

„Við erum að skoða hvaða breyt­ingar þurfi að gera á ólíkum laga­bálkum, því breyt­ing­arnar sem gerðar voru upp úr alda­mótum, árin 2003 og 2004, tóku niður allar eðli­legar girð­ingar hvað þetta varðar og þessu verðum við að breyta,“ segir hann og bætir við „Mín skoðun er sú að við þurfum að ganga eins langt og við komumst.“

Mikill og breiður pólitískur vilji

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra, sagði í við­tali í kvöld­fréttum Rík­is­sjón­varps­ins í gær að breiður póli­tísk­ur vilji væri til að tak­marka jarða­kaup auð­manna hér á landi. Það sé skýrt að ekki eigi að líta á land eins og hverja aðra vöru eða þjón­ustu.

„Þar er mitt svar alveg skýrt, það er nei við þeirri spurn­ingu. Við getum ekki litið á land eins og hverja aðra vöru og þjón­ustu. Ég hef falið sér­fræð­ingi að gera til­lögur að laga­breyt­ingum sem koma munu til kasta þings­ins næsta vetur. Ég tel að það sé mik­ill og breiður póli­tískur vilji til að setja strang­ari ramma um þessi mál hér á landi eins og við sjáum svo víða í nágranna­löndum okkar,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár