Hvergi minnst á lén í íslenskri löggjöf

Samgöngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neytið hefur áform um að leggja fram frum­varp um lands­höf­uð­lénið .is. Með til­liti til örygg­is­sjón­ar­miða, neyt­enda­verndar og vegna ímyndar Íslands þykir nauð­syn­legt að setja loks reglur um lands­höf­uð­lénið.

Hvergi í íslenskri lög­gjöf er minnst á lén, hvorki í fjar­skipta­lögum né öðrum sér­lögum er varða netið með ein­hverjum hætti. Lands­höf­uð­lénum er útdeilt til allra ríkja og vísa til land­fræði­legs upp­runa. Hér á landi er hins vegar ekki að finna heild­stæða lög­gjöf um lands­höfuð lén Íslands .is eða önnur höf­uð­lén. Því hefur sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið birt áform um frum­varp til laga um land­höf­uð­lén Íslands í sam­ráðs­gátt­inni.

Nú byggir framkvæmdin aðeins á reglum ISNIC

ISNIC var stofnað árið 1995 til að halda utan um rekstur á íslenska hluta Inter­nets­ins. Á kjör­tíma­bil­inu 1999 til 2003 var hlutur rík­is­ins í ISNIC seldur og þar með var aðkoma íslenskra stjórn­valda að stjórnun og rekstur lands­höf­uð­léns­ins .is. færð yfir til einka­að­ila.

Í dag er aðeins eitt fyr­ir­tæki, ISNIC, sem sinnir skrán­ingu léna undir lands­höf­uð­lén­inu .is. Á árunum 2010 til 2012 voru lögð fram þrjú frum­vörp um lands­höf­uð­lénið .is en frum­vörpin náðu ekki fram að ganga en með þeim átti gera starf­semi ISNIC háða starfs­leyfi.

Því er hér á landi ekki að finna heild­stæða lög­gjöf um lands­höf­uð­lénið .is og í raun hvergi minnst á lén í íslenskri lög­gjöf, hvorki í fjar­skipta­lögum né öðrum sér­lögum er varða netið með ein­hverjum hætti. Í dag byggir fram­kvæmdin aðeins á reglum sem ISNIC hefur sjálft sett.

Landshöfuðlénið hefur áhrif á vörumerkið Ísland

Sveita-og sam­göngu­ráðu­neytið leggur því nú til áform um laga­setn­ingu þar sem lagt er til að samið verði nýtt frum­varp um lands­höf­uð­lénið .is og að settar verði skýrar lág­marks­reglur um skrán­ingu léna undir lands­höf­uð­lén­inu .is. „Líta verður á lands­höf­uð­lénið .is sem mik­il­vægan inn­við fyrir íslenskt sam­fé­lag og því verður að telja bæði tíma­bært og nauð­syn­legt að sett verði lág­marks lagaum­gjörð um skrán­ing­ar­stofu lands­höf­uð­léns­ins .is.,“ segir í laga­á­form­inu.

Auk þess segir í laga­á­form­inu að lands­höf­uð­lénið .is hafi áhrif á vöru­merkið Ísland enda hafi það beina skírskotun til Íslands og ímyndar þess útá­við og inn­á­við í sam­fé­lags­legu sam­hengi. Því segir að með því að gera starf­semi skrán­ing­ar­stofu háða opin­beru eft­ir­liti sé jafn­framt stuðlað að auknu öryggi og trausti í notkun íslenska hluta inter­nets­ins og því að .is haldi áfram að vera traust lén.

Auk þess er gert ráð fyrir að settar verði skýr­ari reglur um úrlausn deilu­mála og að settur verði á fót fagráð um léna­mál. Í áform­inu er jafn­framt bent á að flest nágranna­ríki Íslands hafi sett lagaum­gjörð um lands­höf­uð­lén sín og skrán­ingu léna undir þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár