Enn lækka meginvextir – Orðnir 3,75 prósent

Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands hafa verið lækk­aðir um 0,25 pró­sentu­stig.

Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son er seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að lækka meg­in­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig. Það þýðir að vextir hans eru nú 3,75 pró­sent og hafa lækkað um 0,75 pró­sentu­stig í síð­ustu tveimur ákvörð­unum hennar.

Þar með hefur einni af for­sendum Lífs­kjara­samn­ing­anna, um að meg­in­vextir Seðla­banka Íslands myndu lækka um 0,75 pró­sentu­stig fyrir sept­em­ber 2020, verið náð rúmu ári fyrir þá dag­setn­ingu, að minnsta kosti tíma­bundið.

Vaxta­lækk­unin kemur ekki mikið á óvart. Síðast þegar vaxta­á­kvörðun átti sér stað voru vextir lækk­aðir um 0,5 pró­sentu­stig og allir grein­ing­ar­að­ilar voru sam­mála um að áfram­hald­andi vaxta­lækkun væri í kort­unum.

Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands hafa ekki verið lægri frá því seint á árinu 2011, en á því ári voru þeir undir fjórum pró­sentum í nokkra mán­uði.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að nýjar upp­lýs­ingar um þróun efna­hags­mála breyti ekki því mati á efna­hags­horfum sem lá fyrir á síð­asta fundi pen­inga­stefnu­nefndar. „Hag­vöxtur á fyrsta árs­fjórð­ungi var í takt við maí­spá Seðla­bank­ans og áfram er gert ráð fyrir sam­drætti í þjóð­ar­bú­skapnum sem mun birt­ast frekar á kom­andi mán­uðum. Kröft­ugri einka­neysla á fyrsta fjórð­ungi og leið­andi vís­bend­ingar gætu þó bent til þess að und­ir­liggj­andi þróttur inn­lendrar eft­ir­spurnar hafi verið meiri en talið var. Á móti eru horfur á að sam­dráttur í ferða­þjón­ustu verði meiri.

Verð­bólga hefur enn sem komið er verið í sam­ræmi við síð­ustu spá Seðla­bank­ans en sam­kvæmt spánni hefur hún náð hámarki og mun hjaðna í átt að mark­miði þegar líður á árið. Frekari lækkun gengis krón­unnar gæti þó sett strik í þann reikn­ing. Verð­bólgu­vænt­ingar hafa lækkað frá því sem þær voru í kringum síð­asta fund nefnd­ar­innar. Taumhald pen­inga­stefn­unnar hefur því auk­ist á ný.

Sam­dráttur í þjóð­ar­bú­skapnum mun reyna á heim­ili og fyr­ir­tæki en við­náms­þróttur þjóð­ar­bús­ins er umtals­vert meiri nú en áður. Svigrúm pen­inga­stefn­unnar til að mæta efna­hags­sam­drætt­inum er einnig tölu­vert, sér­stak­lega ef fer sem horfir og verð­bólga og verð­bólgu­vænt­ingar hald­ast við verð­bólgu­mark­mið. Þá mun boðuð slökun í aðhaldi rík­is­fjár­mála leggj­ast á sömu sveif.

Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af sam­spili þró­unar efna­hags­um­svifa ann­ars vegar og verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga hins vegar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár