Íslensk stjórnvöld hafa ekki mótað afstöðu til Beltis og brautar

Kín­verski sendi­herr­ann á Íslandi segir íslensk stjórn­völd vera opin fyrir þátt­töku í Belti og braut. Íslensk stjórn­völd hafa þó ekki mótað sér afstöðu til verk­efn­is­ins.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kínversk stjórn­völd hafa lýst yfir áhuga á und­ir­ritun sam­komu­lags við Ísland um sam­starf undir yfir­skrift „Beltis og brautar.“ Íslensk stjórn­völd hafa ekki mótað sér end­an­lega afstöðu til verk­efn­is­ins. Þetta kemur fram í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

[links]Belti og braut er alþjóð­legt inn­viða- og fjár­fest­inga­verk­efni kín­verskra stjórn­valda. Sam­starfið gæti aukið kín­verskar fjár­fest­ingar í innviðum lands­ins og jafn­framt aukið við­skipti á milli ríkj­anna. Fram­takið er þó afar umdeilt og hafa banda­rísk stjórn­völd til dæmis gagn­rýnt það harð­lega.

Sendiherrann jákvæður

Í við­tali á Hring­braut þann 12. maí síð­ast­lið­inn, sagði Jin Zhijian, sendi­herra Kína á Íslandi, að íslensk stjórn­völd væru opin fyrir þátt­töku í Belti og braut. Hann sagði einnig að verk­efnið væri afar árang­urs­ríkt.

[adspot]Í svari sínu varð­andi gagn­rýni Banda­ríkj­anna á verk­efn­inu svar­aði Jin því að Belti og braut hafi skapað tæki­færi til fram­þró­unar, grænnar þró­unar og að verk­efnið skapi ekki skulda­gildrur.

Málið til skoðunar

Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir að ráðu­neytið hafi haft málið til skoð­unar „í því augna­miði að greina hvað í fram­tak­inu felst og hvað aðild eða teng­ing við það gæti þýtt fyrir íslenska hags­muni.“

Utan­rík­is­ráðu­neytið telur að samn­inga­um­hverfi Íslands og Kína vera nú þegar hag­fellt og að það nái til frí­versl­unar, mál­efna norð­ur­slóða, vís­inda­sam­starfs, net­við­skipta og jarð­hita. Meg­in­á­hersla íslenskra stjórn­valda sé á fram­kvæmd og fulln­ustu þeirra samn­inga sem fyrir liggja, að því er kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins.

Í svar­inu segir enn fremur að meg­in­inn­tak Beltis og brautar sé „upp­bygg­ing og fjár­fest­ing í innviðum og sam­göngum í sam­starfs­ríkjum Kína. Hafa ein­staka ríki gerst form­legir þátt­tak­endur í fram­tak­inu með gerð tví­hliða sam­starfs­samn­inga, sem samið er sér­stak­lega um. Áherslan hefur þó iðu­lega verið þar á inn­viða­upp­bygg­ingu og fjár­fest­ingar þar að lút­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár