Mjólkursala dregist saman um fjórðung frá árinu 2010

Sala á drykkj­ar­mjólk hefur minnkað hratt á und­an­förnum árum og hefur frá árinu 2010 dreg­ist saman um 25 pró­sent hjá Mjólk­ur­sam­söl­unni. Í fyrra dróst heild­ar­sala á mjólk­ur­vörum saman um 2 pró­sent.

Mjólk­ur­neysla lands­manna hefur farið minnk­andi á síð­ustu árum og hefur heild­ar­sala á drykkj­ar­mjólk dreg­ist saman um 7,9 millj­ónir lítra eða 25 pró­sent frá árinu 2010. Nýmjólk, létt­mjólk, und­an­renna og fjör­mjólk eru flokk­aðar sem drykkj­ar­mjólk. Í fyrra nam heild­ar­salan á drykkj­ar­mjólk 23,8 milljón lítrum og dróst saman um 2,8 pró­sent á milli ára. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Sambands afurða­stöðva í mjólkur­iðn­aði.

Sala á mjólkurvörum dróst saman í fjórum flokkum

Alls dróst heild­ar­sala mjólk­ur­vara frá aðild­ar­fé­lögum SAM saman um 2,2 pró­sent frá árinu 2017 til 2018 eða um 1290 tonn, sam­kvæmt árs­reikn­ingi sam­tak­anna. Aðild­ar­fé­lög SAM eru Auðhumla og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga sem eiga Mjólk­ur­sam­söl­una og rekur KS mjólk­ur­sam­lag KS á Sauð­ar­ár­króki. Sam­dráttur var í öllum vöru­flokkum nema rjóma og dufti.

Alls hefur sala á rjóma, dufti, ostum og við­biti auk­ist tölu­vert frá árinu 2010 en í heild­ina hefur sala á mjólk­ur­vörum dreg­ist saman um 4,1 pró­sent á síð­ustu 9 árum. Sala á rjóma hefur auk­ist hvað mest eða um 30,4 pró­sent frá árinu 2010 og jókst um 7,1 pró­sent í fyrra. Sala skyr­teg­unda dróst saman um 169 tonn í fyrra og sala á osti um 102 tonn í fyrra.

6,5 milljónir í styrki fyrir nýsköpun með mjólk

Árið 2017 veitti Auðhumla þrjá styrki til frum­kvöð­uls­starfs þar sem mjólk kemur við sögu sem hrá­efni. Einn styrk­ur­inn nam þremur millj­ónum krónum og rann til Biobú vegna verk­efnis sem stuðlar að nýsköpun og auk­inni nýt­ingu á líf­rænni mysu sem í dag fellur til við fram­leiðslu mjólk­ur­af­urða. Annar þriggja millj­óna styrkur var veittur verk­efn­inu Jökla, sem er íslenskur mjólk­ur­líkjör en aldrei áður hefur verið fram­leiddur áfengur drykkur úr íslenskri mjólk. Þriðji styrk­ur­inn rann til for­verk­efnis um þróun heilsu­vöru úr brodd­mjólk. Matís sér um utan­hald verk­efn­anna.

MS dæmt til að greiða sekt upp á 480 milljónir

[links]Í maí á síð­asta ári var Mjólk­ur­sam­söl­unni gert að greiða sekt að fjár­hæð alls 480 millj­ónir króna vegna mis­notk­unar á mark­aðs­ráð­andi stöðu í Hér­aðs­dóm. MS seldi keppi­nautum sínum grund­vall­ar­hrá­efni til fram­leiðslu á mjólk­ur­vörum, það er að segja hrá­mjólk, á hærra verði en MS sjálft og tengdir aðil­ar, sem eru Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og dótt­ur­fé­lag þess, þurftu að greiða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár