Skora á alþingismenn að hafna þriðja orkupakkanum

Samtökin Orkan okkar hafa sent áskorun til allra alþing­is­manna um að hafna þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra mun leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þriðja orku­pakk­ann á Alþingi í dag.

Samtökin Orkan okkar hafa sent frá sér áskorun á alla alþing­is­menn um að hafna þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins og beina um leið þeim til­mælum til sam­eig­in­legu EES- nefnd­ar­innar að veita Íslandi und­an­þágu frá inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans í lands­rétt á þeirri for­sendu að landið sé ekki tengt innri raf­orku­mark­aði ESB. Samtökin opn­uðu vef­síðu í dag þar sem almenn­ing býðst að skrifa undir áskor­un­ina.

Þingsályktunartillaga um þriðja orkupakkann lögð fram í dag

[links]Í dag mun Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þriðja orku­pakk­ann á Alþingi. Rík­is­stjórnin sam­þykkti þann 22. mars síð­ast­lið­inn til­lögu ráð­herr­ans um að leggja fyrir Alþingi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans. Í álykt­un­inni felst að þær reglur sem eiga við um flutn­ing raf­orku yfir landa­mæri eru inn­leiddar með þeim laga­lega fyr­ir­vara að þær komi ekki til fram­kvæmda nema að Alþingi heim­ili lagn­ingu raf­orku­strengs. Þá þarf jafn­framt að taka á nýjan leik afstöðu til þess hvort regl­urnar stand­ist stjórn­ar­skrá.

Á vef­síðu sam­tak­anna Orkan okkar segir að sam­tökin hafi verið stofnuð í októ­ber í fyrra til þess að „kynna rökin gegn frek­ari inn­leið­ingu orku­lög­gjafar ESB hér á landi.“ Í grein­ar­gerð með áskor­un­inni segir að raf­orkan sé afurð nátt­úru­auð­linda lands­ins og því telji sam­tökin það afar mik­il­vægt að allar ákvarð­anir sem teknar eru í raf­orku­málum þjóni hag þeirra sem búa á Íslandi.

Segja breytingar af hálfu Alþingis falla undir samningsbrot

Jafn­framt segir í grein­ar­gerð­inni að var­ast eigi að inn­leiða lög­gjöf sem sniðin sé fyrir aðstæður í orku­málum sem séu „mjög frá­brugðnar“ þeim sem við búum við á Íslandi. Auk þess telja sam­tökin að með orku­pökkum Evr­ópu­sam­bands­ins skerð­ist sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttur Íslands í raf­orku­málum. „Lög­gjöfin er samin af ESB og tekur því ekki mið af vilja íslenskra kjós­enda, auk þess sem hluti lög­gjafar-, fram­kvæmda- og dóms­valds í orku­málum flyst úr landi. Orku­pakkar ESB grafa því undan sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti þjóð­ar­innar um eigin auð­lindir og geta haft ófyr­i­séð áhrif á lífs­kjör í land­inu. Þessi þróun er líka í hróp­andi mót­sögn við afstöðu almenn­ings og yfir­lýs­ingar sumra stjórn­mála­flokka um að ekki skuli fram­selja vald í orku­málum til erlendra stofn­ana, “ segir í grein­ar­gerð sam­tak­anna.

Enn fremur segir í grein­ar­gerð­inni að ólíkt Noregi og Liechtenstein sé Ísland ekki tengt raf­orku­mark­aði ESB og ætti því að krefj­ast und­an­þágu frá skyldu til að inn­leiða lög­gjöf ESB um raf­orku­mark­að­inn. Nú þegar séu for­dæmi og heim­ildir fyrir slíkum und­an­þágum í EES-samn­ingnum. Ísland sé til dæmis und­an­þegið inn­leið­ingum laga um jarð­gas, skipa­skurði og járn­brautir. Samið séu um slíkar und­an­þágur í sam­eig­in­legu EES-nefnd­inni.

Að lokum segir í grein­ar­gerð­inni að ef þings­á­lykt­un­ar­til­laga utan­rík­is­ráð­herra verði sam­þykkt geti hver sem er kært íslensk stjórn­völd til ESA vegna rangrar inn­leið­ingar á EES-reglum. „Utan­rík­is­ráð­herra hefur nú lagt fyrir Alþingi til­lögu til þings­á­lykt­unar um að falla frá stjórn­skipu­legum fyr­ir­vara gagn­vart þriðja orku­pakka ESB en boðar um leið að lög­gjöfin verði inn­leidd í íslensk lög með fyr­ir­vara. Verði þessi leið farin gæti hver sem er kært íslensk stjórn­völd til ESA vegna rangrar inn­leið­ingar á EES-reglum. Af álits­gerð Stefáns Más og Friðriks Árna má álykta að sam­þykki Alþingi ákvörðun Sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar um að fella þriðja orku­pakk­ann inn í EES samn­ing­inn, þá verður Ísland að inn­leiða lög­gjöf þriðja orku­pakk­ans eins og hún er. Einhliða fyr­ir­varar eða breyt­ingar af hálfu Alþingis munu falla undir samn­ings­brot.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár