Hryðjuverk í Nýja Sjálandi – Tugir látnir

49 manns hafa lát­ist eftir skotárás í Christchurch í Nýja Sjálandi í nótt. Maður á þrí­tugs­aldri sem aðhyllist öfga-hægri skoð­anir hefur verið hand­tek­inn.

Fjörtíu og níu manns hafa lát­ist eftir skotárásir í tveimur moskum í borg­inni Christchurch í Nýja Sjálandi í nótt. Samkvæmt frétt BBC hafa að minnsta kosti 20 manns særst til við­bótar.

Hundruð voru í mosk­unum þegar árás­irnar voru gerðar. Vitni segja árás­ar­menn hafa skotið á það sem fyrir þeim var og flúið áður en við­bragðs­að­ilar komu á stað­inn.

Maður á þrí­tugs­aldri hefur verið hand­tek­inn og ákærður fyrir morð og mun vera leiddur fyrir dóm­ara á sunnu­dag­inn. Ástr­alski for­sæt­is­ráð­herr­ann, Scott Morrison, segir að meintur árás­armaður sé ástr­alskur rík­is­borg­ari og „öfga-hægri hryðju­verka­maður“.

Auk hans hafa tveir menn og ein kona verið tekin höndum, sam­kvæmt lög­reglu­stjór­anum, Mike Bush. Hann segir að eitt þeirra hafi þó ekki verið bendlað við atvikið en lög­reglan sé að vinna í því að finna út hvort tengsl séu milli hinna tveggja.

Ekkert þeirra sem hafa verið hand­tekin voru á lista yfir­valda yfir grun­aða hryðju­verka­menn eða lík­lega til grimmd­ar­verka.

For­sæt­is­ráð­herra Nýja Sjálands, Jacinda Ardern, segir ekki hægt að lýsa árás­unum öðru­vísi en sem hryðju­verkum.

Samkvæmt vef Guardian byrj­aði allt í Masjid Al Noor mosk­unni í mið­borg­inni klukkan 13:40 að stað­ar­tíma. Þangað réð­ist inn maður vopn­aður byssu og skaut á alla sem fyrir honum urðu. Skömmu síðar var greint frá skotárás í annarri mosku í borg­inni. Lög­reglan greindi frá því á blaða­manna­fundi í nótt að nokkrir bílar fullir af sprengjum hafi fund­ist í borg­inni, en sprengj­urnar hafi allar verið aftengdar.

For­sæt­is­ráð­herr­ann ávarp­aði þjóð­ina í nótt. Hún sagði mörg fórn­ar­lambanna mögu­lega vera inn­flytj­endur í land­inu, jafn­vel flótta­menn. Þeir hafi valið að gera Nýja Sjáland að heima­landi sínu, og Nýja Sjáland sé þeirra heima­land. Árás­ar­menn­irnir sem ákváðu að beita ofbeldi af þessu tagi séu hins vegar ekki Nýsjá­lend­ingar. Þannig hegðun sé ekki liðin í Nýja Sjálandi. Eftir ávarpið fór hún á fund rík­is­stjórnar sinnar og örygg­is­stofn­ana í Wellington.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár