Krefjast tafarlausrar afsagnar Sigríðar Á. Andersen

Þing­flokkur Pírata gerir kröfu um taf­ar­lausa afsögn Sigríðar Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra. Þá hefur þing­flokks­for­maður flokks­ins kallað eftir því að dóms­mála­ráð­herra komi á opinn fund í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd.

Þing­flokkur Pírata gerir kröfu um taf­ar­lausa afsögn Sigríðar Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra. Þá hefur Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður flokks­ins, kallað eftir því að dóms­mála­ráð­herra komi á opinn fund í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd vegna dóms Mann­rétt­inds­dóm­stóls Evrópu og að fram fari sér­stakar umræður við for­sæt­is­ráð­herra á Alþingi um áhrif dóms­ins á rétt­ar­ríkið á Íslandi.

[links]Þetta kemur fram í til­kynn­ing frá þing­flokki Pírata sem send var út í dag.

Í henni segir jafn­framt að nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu um máls­með­ferð dóms­mála­ráð­herra við skipan dóm­ara í Lands­rétt sé áfell­is­dómur yfir athöfnum ráð­herr­ans. Með þessu séu stað­festar ítrek­aðar við­var­anir þing­flokks Pírata, fyrst við skipan dóm­ara í Lands­rétt árið 2017 og svo í umræðu um van­traust­s­til­lögu á dóms­mála­ráð­herra ári síðar.

„Dómurinn sýnir svo ekki verður um villst að með ólög­mætri skipan sinni hafi dóms­mála­ráð­herra stuðlað að mann­rétt­inda­brotum í garð allra þeirra sem hafa þurft að sæta máls­með­ferð af hálfu ólög­lega og póli­tískt skip­aðra dóm­ara. Píratar hafa ítrekað bent á að skip­anin væri ólög­mæt og athafnir Sigríðar Á. Andersen ófor­svar­an­legar og brot á 1. mgr. 6. gr. mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu um rétt­láta máls­með­ferð. Það hefur nú verið stað­fest bæði af Hæsta­rétti og af Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu.

Lands­rétt­ar­málið er skýrt dæmi um óeðli­leg afskipti fram­kvæmda­valds­ins af dóms­vald­inu og póli­tíska spill­ingu. Viðbrögð rík­is­stjórn­ar­innar í dag munu koma til með að skera úr um traust almenn­ings til Alþingis, dóm­stóla og fram­kvæmda­valds­ins til fram­tíðar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár